03.05.1965
Neðri deild: 79. fundur, 85. löggjafarþing.
Sjá dálk 1380 í B-deild Alþingistíðinda. (1126)
187. mál, lausn kjaradeilu atvinnuflugmanna
Frsm. minni hl. (Sigurvin Einarsson):
Herra forseti. Ég gerði fyrirspurn til hæstv. samgmrh. í dag um það, hvað hann ætlaði, að hinn væntanlegi gerðardómur þyrfti langan tíma til að kveða upp sinn úrskurð. Honum þótti þetta fávíslega spurt, sagði að ég væri að spyrja um það, sem stæði í frv., um greiðslur skv. slíkum gerðardómi. Í 5. gr. segir, að ákvarðanir gerðardóms skv. 2. gr. skuli gilda frá gildistöku laga þessara til 1. febr. 1966. Með þessu vildi hann segja, að það væri engin ástæða til að kvarta undan því, þó að gerðardómur kvæði upp úrskurð um þessi nýju laun. Ég er ekkert að spyrja um þessa grein frv., auðvitað hafði ég lesið hana. .Ég sagði, að flugmennirnir yrðu að bíða eftir úrskurði gerðardóms til þess að fá önnur laun en þau, sem þeir hafa nú. Þetta stendur óhaggað, hversu langan tíma sem það tekur hinn væntanlega gerðardóm að kveða upp sinn úrskurð, verða flugmennirnir að starfa á meðan eftir hinum gamla samningi. Og það veit enginn, hversu langan tíma þetta tekur. Menn eru nú að gera því skóna, að hæstv. ríkisstj. muni hlutast til um, að þetta dragist a.m.k. fram yfir samningana í vor, en það getur dregizt miklu lengur, eftir því sem flugmálastjóri svaraði spurningu um, hvað það þyrfti langan tíma til að undirbúa till. um hvíldartíma flugmanna, það getur dregizt allt upp í 6 mánuði. Þennan tíma verða flugmennirnir að vinna eftir sínum gömlu kjörum, svo að spurning mín var ekki út í hött.
Hæstv. ráðh. hefur sagt í þessum umr., að ástæðan fyrir því, að gripið var til þessarar lagasetningar, hafi verið sú, að engar líkur væru til, að samningar tækjust, það hefði borið svo mikið á milli aðilanna og þá hefur hann auðvitað í huga 810 þús. frægu, sem blöð hafa mjög flíkað að væru kröfur flugmanna. Og það er svo sem ekkert ótrúlegt, að hæstv. ráðh. hafi litið svona á, af því að hann hefur trúað þessu. Hann hefði bara ekki átt að trúa því. Þessi upphæð er ekki svona há. Hún er mjög nálægt 500 þús. hjá hæstu mönnunum og eins og ég hef áður sagt, eru það ekki nema 3 menn, sem koma til greina sem flugstjórar, með þessum launum. Hinir eru allir miklu lægri í kröfum og það lágir, að það, sem ber á milli hjá þeim og Loftleiðum, eru ekki nema 4–5 þús. kr. á mánuði. Ég gæti vel trúað því, að þeir, sem að þessu frv. standa, hafi einmitt trúað þessum fyrstu upplýsingum og hagað sér svo eftir því. Af því að það var ekki komið fram í þessum umr., vil ég skýra frá því, að flugmenn hafa boðizt til að vinna fyrir óbreytt kaup, ekki einn einasta eyri í hækkun á kaupi, ef þeir fengju eftirlaunasjóð. Og þeim er þetta mikið nauðsynjamál. Það er ekki langt síðan einn flugmaðurinn hjá þessu félagi missti heilsuna, kornungur maður og eftirlaunin hans eru, eftir því sem mér er tjáð, ekki nema eitthvað um 30 þús. kr. á ári og á þessu á hann að lífa. Þeim er þetta mikið kappsmál og hefðu þeir fengið undirtektir undir þessa hugmynd, hefðu þeir ekki gert kröfu um einn einasta eyri í kauphækkun og þeir munu enn standa við þetta. Þetta er þá það, sem ber á milli og kostar gerðardómslög. Ætli hæstv. ráðh. viti nokkurn skapaðan hlut um þetta? Bezt gæti ég trúað því.
Enn endurtók hæstv. ráðh. það, að flugmennirnir vildu miklu frekar þennan gerðardóm, en að standa í verkfalli og það væri ekkert að marka það, sem stæði í bréfi þeirra, sem fram hefur komið, að þeir mundu ekki sætta sig við gerðardóm. Það er ekkert að marka, hvað flugmennirnir segja, segir hæstv, ráðh. En er þá álit að marka, sem flugfélögin segja eða það, sem hæstv. ríkisstj. segir?
Ég gagnrýndi það mjög á föstudaginn var, að hæstv. ráðh. hafði vanrækt að setja reglugerð um hvíldartíma flugmanna og loksins nú fer hann að svara því, sem þá var verið að spyrja um, hvers vegna þessi reglugerð hefði ekki verið sett. Svarið er það, að það hafi engar till. komið frá flugmönnunum. Með þessu er hann að gefa í skyn, að það hafi verið lagt fyrir þá að gera till. um þetta. Ég fullyrði, að það hefur aldrei verið lagt fyrir þá. Þeir hafa aldrei verið spurðir um það. Ráðh. hefur ekki hreyft hönd né fót til þess að setja reglugerð. Og þegar við í samgmn. spurðum flugmálastjóra að þessu, af hverju reglugerðin var ekki sett, svaraði hann: „Það veit ég ekki.“ Ákvæði laganna um þetta atriði eru svo: „Ráðh. setur í reglugerð ákvæði um lágmarkshvíldartíma flugmanna til að tryggja fyllsta öryggi, að fengnum till. félagssamtaka flugverja, flugfélaga og flugmálastjórnar.“ En hæstv. ráðh. hefur aldrei beðið um eina einustu till. frá neinum þessara aðila. Og hvað ætlar hann lengi að bíða? Ég segi það enn: mér þykir það mjög líklegt, að ekki hefði komið til þessarar kaupdeilu, ef þessi reglugerð hefði verið komin með ákvæðunum um hvíldartíma flugmanna, því að út af hvíldartímanum og þar með vinnutímanum er aðaldeilan. Og svo er þetta öryggisákvæði. Þetta er til öryggis fyrir farþega og áhöfn, sem fljúga með þessum flugvélum, að flugmennirnir vinni ekki of lengi og þetta öryggisákvæði er ekki sett enn, það er alvarlegt mál að mínum dómi.
Nei, það er ekki hægt að saka flugmenn um það, að það hafi staðið á einhverjum till. frá þeim, því að þeir hafa aldrei verið spurðir að neinu. Þeir eiga ekki að arka upp í stjórnarráð og segja hæstv. ráðh., hvaða hvíldartíma þeir eigi að hafa. Á hæstv. ráðh. hvílir skyldan, en ekki flugmönnum. Og hafi hann haft einhvern áhuga á því að setja þessi ákvæði í reglugerð, hefði hann verið löngu búinn að því, og þá hefði ekki staðið á flugfélögum eða flugmönnum að segja álít sitt á því, hver hvíldartíminn ætti að vera og þá hefðu kannske komið í ljós þær tillögur, sem fram komu í fyrra, að eftir hvert 10 klst. flug skuli flugmenn hafa 10 stunda hvíld, þá hefði það kannske ekki átt sér stað, að þeir þurfi að vinna allt að 22 klst. á sólarhring, eins og nú er. Þetta eru þá öryggisákvæðin, sem við búum við.