29.03.1965
Efri deild: 59. fundur, 85. löggjafarþing.
Sjá dálk 1390 í B-deild Alþingistíðinda. (1135)
155. mál, eftirlaun
Jón Þorsteinsson:
Herra forseti. Þegar mál þetta kom til kasta fjhn., var ég þessu máli andvígur og það er í raun og veru í samræmi við þá afstöðu, sem ég hef tekið undanfarin ár við afgreiðslu fjárl., þegar greidd hafa verið atkv. um 18. gr., þá hef ég alltaf greitt atkv. gegn henni og ég er þá auðvitað í samræmi við það andvígur því, að uppbætur sé greiddar á þær fjárhæðir, sem eru í 18. gr. fjárlaga.
Ég er ekki sammála hv. frsm. nefndarinnar, að þetta fólk, sem fær þessi eftirlaun í 18. gr., þ.e.a.s. eftirlaun, sem eru umfram lögboðin eftirlaun og lífeyri, að viðbættum heiðurslaunum og styrktarfé, — ég er ekki sammála hv. frsm. um það, að þarna sé yfirleitt um efnalítið fólk að ræða. Sjálfsagt eru fjárhagsástæður þessa fólks nokkuð misjafnar. Ég held, að það sé einmitt um að ræða fólk, sem hefur góð eftirlaun. Margt af þessu eru ríkisstarfsmenn og eftirlaun þeirra hafa stórlega hækkað nú fyrir tveimur árum og eru miklu hærri en áður. Þau eru nú miðuð við laun fyrir stöðuna, eins og þau eru greidd á hverjum tíma, en ekki meðaltal af launum mörg ár aftur í tímann, þannig að þótt ég setji ekki allt þetta fólk í sama flokk, þá tel ég, að mikill meiri hluti af þessu fólki sé svo vel settur, að það sé algjörlega ástæðulaust fyrir ríkið að vera að greiða því sérstakar uppbætur á eftirlaun umfram það, sem það nýtur að lögum eða biðlaun; heiðurslaun eða styrktarfé. Og þess vegna er ég auðvitað andvígur því, að það sé verið enn á ný að greiða uppbætur ofan á þetta, þar sem ég hef alltaf líka verið andvígur þessum undirstöðugreiðslum skv. 18. gr.