08.03.1965
Neðri deild: 51. fundur, 85. löggjafarþing.
Sjá dálk 1422 í B-deild Alþingistíðinda. (1176)

138. mál, læknaskipunarlög

Birgir Finnsson:

Herra forseti. Ég vil leyfa mér að þakka hæstv, heilbrmrh. fyrir að hafa lagt þetta mál fyrir þingíð, því að í frv. felast margháttaðar tillögur, sem líklegar eru til þess að geta bætt úr læknaskortinum. Ég varð þess vegna, eins og hv. síðasti ræðumaður, undrandi á því, hvernig frv. var tekið við 1. umr., þótt í því séu atriði, sem e.t.v. getur verið ágreiningur um, eins og það, hvort leggja skuli niður Suðureyri sem sérstakt læknisumdæmi. Ég álít, að með þeirri till., sem felst í frv., að gerð skuli tilraun til að ráða lækni til Suðureyrar á þann hátt að auglýsa héraðið þrisvar sinnum laust til umsóknar með þeim hlunnindum, sem boðin eru samkv. 6. gr. frv., ættu að geta verið mjög miklar líkur á því, að þangað fengist læknir. A.m.k. verða líkurnar meiri, en verið hefur með því að auglýsa héraðið hvað eftir annað með venjulegum læknislaunum. Þetta finnst mér vera aðalatriðið gagnvart Suðureyri. Það má náttúrlega segja, að ef þessi tilraun dugir ekki, — en hún mun taka allt að því ár í framkvæmd, því að mér skilst, að allt að því eitt ár þurfi til að auglýsa embættið þrisvar sinnum í röð, — ef slík tilraun ber ekki árangur, þá sé það nokkurn veginn sjálfgert að leggja héraðið undir næsta læknishérað. En þetta má vitanlega ræða betur og verður væntanlega um það fjallað í heilbr.- og félmn., hvaða háttur verður á þessu hafður. Ég vil benda á, að í frv. er mjög víðtæk heimild til að sameina læknishéruð, og sú heimild er auðvitað sett inn vegna þess, að menn hafa talið, að undanfarið væri ein ástæða til þess, að ekki fengjust læknar út í héruðin, sú, að þau væru of litil. Er talið, að fyrir menn með allt að 8–10 ára læknisnám að baki sér sé það of lítið starf að sitja yfir 300–400 manns í einu héraði. Hvað þetta snertir er Suðureyri ekkert einsdæmi. Þetta er eins með læknaskipunina, prestaköllin og hreppsfélögin. Gamla skipunin á þessum málum er orðin úrelt, miðað við núverandi þjóðfélagsaðstæður og við þurfum að taka upp breyttar starfsaðferðir hvað það snertir að skipuleggja þessi mál. Því miður er það samt svo, þótt margir játi í orði kveðnu, að það þurfi að sameina slík umdæmi, að þegar til kastanna kemur, rekur sú stefna sig á allharða mótspyrnu. Ég er ekki hissa á þessu hvað snertir læknisumdæmið Suðureyri, því að eins og hér var tekið fram í umr. s.1. fimmtudag, hagar þar þannig til, að samgöngur eru mjög erfiðar, einkum að vetrarlagi. Þess vegna er eðlilegt, að það sjónarmið sé uppi, að þar eigi að vera sérstakt læknisumdæmi, sé þess nokkur kostur, enda er búið að búa þar mjög vel í haginn fyrir héraðslækni með byggingu ágætrar íbúðar og góðs sjúkraskýlis.

En þrátt fyrir þetta getur svo farið, að við ráðum ekki við þetta, þótt aðstaða sé góð fyrir lækninn og þótt boðin verði góð kjör. Fámennið getur hindrað það, að læknir fáist til Suðureyrar og þá þýðir ekki annað, en horfast í augu við þá staðreynd.

Ég skal ekki ræða frekar um þetta atriði. Það kemur vafalaust til nánari athugunar í heilbr.- og félmn. og við áframhaldandi meðferð frv. hér á þinginu. En með frv. í heild er stefnt að því að bæta úr læknaskorti í dreifbýlinu, að svo miklu leyti sem það er unnt, með því að bjóða héraðslæknum launabætur og með því að endurskoða skiptingu landsins í læknisumdæmi. Læknaskorturinn hefur lengi verið mikið vandamál og á sér svo margþættar orsakir, að jafnvel þótt launakjör læknanna verði bætt og nokkuð verði dregið úr þeim annmörkum, sem eru á núgildandi skiptingu landsins í læknishéruð, þá er samt óvíst, að þessi úrræði dugi, til þess að frv. nái tilgangi sínum. Þetta hygg ég, að öllum verði Ijóst, sem lesa hina ýtarlegu grg., sem frv. fylgir, og þá einkum almennu grg.: Um orsakir læknaskorts í dreifbýli, en þar er bent á margar orsakir aðrar en launakjör, sem valdi því, að læknar vilja helzt ekki starfa í dreifbýli. Samt sem áður er hér um svo merkilega tilraun að ræða til að ráða bót á miklum vanda, að hana verður að framkvæma, þótt óvíst sé um árangurinn og þrátt fyrir það að deila megi um einstaka atriði í frv.

Í þessu sambandi vil ég fyrir mitt Ieyti taka fram, að ég lít ekki á þær launabætur og þau fríðindi, sem bjóða á læknum samkv. frv., sem beinharðar kaupgreiðslur til læknanna sjálfra, heldur sem kostnað við björgunarstarf, sem óhjákvæmilegt er að inna af hendi vegna fólksins; sem býr við læknaskort. Það gildir allt annað í þessu tilliti hvað læknana snertir heldur, en aðra opinbera starfsmenn og þetta finnst mér nauðsynlegt að komi fram þegar við þessa umr., vegna þess að hv. 11. þm. Reykv., formaður Bandalags starfsmanna ríkis og bæja, sem um stundarsakir á sæti hér á Alþingi, fann sig knúinn til þess s.1. fimmtudag að lýsa hér kröfum um sams konar kjarabætur og bjóða á læknum samkv. frv. til handa öllum öðrum opinberum starfsmönnum úti um landið. Læknisþjónustan er neyðarþjónusta, sem veita verður, jafnvel þótt fara verði út fyrir ramma þeirra reglna, sem almennt gilda um kaupgreiðslur til opinberra starfsmanna, en slík úrræði eiga að mínum dómi ekki að skapa nein fordæmi fyrir opinbera starfsmenn almennt. Þetta sama sjónarmið undirstrikaði hæstv. heilbr.- og dómsmrh. rækilega í framsöguræðu sinni fyrir frv. og vil ég eindregið taka undir þau orð hans, að ekki komi til mála að veita t.d. prestum, sýslumönnum eða kennurum sams konar hlunnindi og frv. gerir ráð fyrir að læknum verði boðin. Ég vara eindregið við slíkri túlkun, einnig alla þá hv. alþm., sem ég veit að hafa áhuga fyrir framgangi frv. og ég vona, að margir flokksbræður hv. 11. þm. Reykv. séu í þeirra hópi.

Þetta mundi horfa öðruvísi við, ef læknisleysið úti um land stafaði eingöngu af því, að læknar væru vanhaldnir í launum. Svo er ekki, eins og ég gat um áðan, sbr. grg. frv., og þess vegna á ekki að nota þetta mál til framdráttar launakröfum fyrir aðra starfshópa í þjónustu þess opinbera, eins og hv. 11. þm. Reykv. gerði fyrr við þessa umr. Með þessu er ekki sagt, að opinberir starfsmenn almennt geti ekki gert réttmætt tilkall til kjarabóta eins og aðrir. Það geta þeir vissulega, þótt þeir beri sig ekki saman við læknana í þessu sérstaka tilfelli.