09.03.1965
Neðri deild: 52. fundur, 85. löggjafarþing.
Sjá dálk 1450 í B-deild Alþingistíðinda. (1184)

138. mál, læknaskipunarlög

Menntmrh. (Gylfi Þ. Gíslason):

Herra forseti. Það eru aðeins örfá orð. Ég er síður en svo að mælast undan því að um Háskóla Íslands eða einstakar deildir hans og starfsemi þeirra sé rætt og hún gagnrýnd hér á hinu háa Alþingi eða annars staðar. Það var síður en svo þess vegna, sem ég sagði nokkur orð um þetta mál við umr. hér í hinni hv. d. í gær. Það var eingöngu það atriði í málflutningi hv. þm., sem kom aftur fram í ræðu hans nú, að sú stefna virtist ráða í læknadeildinni að torvelda ungum mönnum að verða læknar, sem gaf mér tilefni til þess að segja þau fáu orð, sem ég sagði og gefa mér aftur tilefni til þess að segja fáein orð núna, því að þessi staðhæfing er að mínu viti bæði röng og ómakleg.

Ég lét þess getið í gær og tel mig hafa fært að því full rök, sem ég sé enga ástæðu til að endurtaka nú, að héraðslæknaskortinn og læknaskortinn á Íslandi almennt er ekki hægt að rekja til þess, að Háskóli Íslands brautskráir of fáa lækna. Það er þessi staðreynd, sem er meginstaðreynd í því máli, sem hér er um að ræða. Ég benti á það, að læknaviðkoman hér er heldur meiri, en hún gerist í mörgum nágrannalandanna og að höfuðorsök til læknaskortsins almennt hér á Íslandi er sú, að óeðlilega margir læknar eru við nám og störf erlendis og við bráðabirgðastörf og framhaldsnám hér á Íslandi, en ekki við eiginleg læknastörf. Orsakir héraðslæknaskortsins eru svo alveg sérstaks eðlis og ekki í beinum tengslum við það, að læknar eru hér vissulega færri, en þeir ættu að vera í heild. En þetta tel ég útrætt með því, sem ég sagði um þetta mál hér í gær.

Nú vil ég aðeins undirstrika það, sem hv. þm. sjálfur lagði megináherzlu á í ræðu sinni áðan, að það virðist vera stefna læknadeildarinnar og þar með háskólans og þá væntanlega með samþykki yfirvalda háskólans að torvelda ungu fólki að verða læknar. Þetta tel ég, að ekki megi vera ómótmælt. Að þetta er ekki svo, kemur fyrst og fremst fram af því, að aðgangur að læknadeildinni hér er ótakmarkaður og enginn, sem til þekkir, mun geta staðhæft með nokkrum rétti eða með nokkrum sanni, að námsreglur og prófskilyrði við læknadeildina hér séu torveldari eða þyngri eða yfirleitt með nokkuð öðrum hætti, en tíðkast í öllum helztu nágrannalandanna og þá fyrst og fremst á Norðurlöndunum hinum, sem læknadeildin er fyrst og fremst sniðin eftir, eins og raunar starfsemi háskólans í heild. Læknanámið hér á Íslandi er ekki lengra, en það tíðkast á Norðurlöndunum hinum og ég leyfi mér að staðhæfa, að prófkröfur hér og námsreglur allar eru í engu meginatriði, engu, sem máli skiptir, frábrugðnar því, sem þar tíðkast. En því aðeins væri hægt að segja, að læknadeildin eða yfirvöld háskólans legðu sérstakar torfærur í veg þeirra manna, sem óska að verða læknar, ef hægt væri að benda á ákveðnar sannanir þess, að námskröfur eða prófkröfur hér væru að einhverju leyti öðruvísi en tíðkast hjá þeim þjóðum og í þeim háskólum, sem við höfum helzt viljað sækja fyrirmyndir til.

Hv. þm. spurði, hvort til væru einhverjir menn í læknastétt eða innan læknadeildar, sem vildu hafa sem fæsta menn í þessari stétt. Ég þori að fullyrða og geri það af talsverðum kunnugleik á málefnum háskólans, einnig málefnum læknastéttarinnar, að þessa sjónarmiðs hefur aldrei gætt, síðan ég fór að hafa nokkur kynni innan læknadeildar, að það væri ekki sjálfsagt að keppa að því, að læknafjölgun yrði hér eins ör og eins mikil og kennsluaðstaða og kennslukraftar frekast leyfðu. Það, sem einmitt hefur verið sérstaklega keppt að á undanförnum árum, er að bæta kennsluaðstæður og fjölga kennurum í læknadeildinni. Í engri deild háskólans hefur verið lögð jafnmikil áherzla á að fjölga kennurum og bæta kennsluaðstöðu og einmitt í læknadeildinni á undanförnum árum. Sem dæmi um það vil ég aðeins nefna, að fyrir 5 árum voru 7 prófessorar við læknadeildina, nú eru þeir 11. Þeim hefur verið fjölgað um 4 á undanförnum 5 árum. Fyrir 5 árum störfuðu 9 dósentar við læknadeildina, nú eru 14 dósentar við deildina, þ.e.a.s. þeim hefur verið fjölgað um 5. Föstum kennurum læknadeildarinnar hefur því verið fjölgað aðeins á undanförnum 5 árum um 10 og það er meiri kennarafjölgun, en átt hefur sér stað nokkurn tíma áður í sögu læknadeildarinnar og við nokkra aðra deild háskólans á jafnskömmum tíma og eru þó ótaldar þær gífurlega miklu endurbætur, sem gerðar hafa verið á öllum kennsluskilyrðum í læknadeildinni. Ég hygg, að þetta sýni glöggt, hver afstaða yfirvalda hefur verið til læknanámsins. Á það hefur verið lögð sérstök áherzla að bæta skilyrði læknastúdentanna og vinnuskílyrði kennara þeirra.

Varðandi það, sem hv. þm. sagði um það, að æskilegt væri að auðvelda stúdentum læknanám með því að taka hér upp námslaun, vil ég aðeins segja þetta: Auðvitað er það orðaleikur, hvort menn kalla stuðning við stúdenta og aðra námsmenn námslaun, námsstyrki eða námslán. Aðalatriðið er, að stúdentarnir séu studdir til námsins, hvað svo sem sá stuðningur er nefndur. En einmitt á þessu sviði hefur einnig átt sér stað gífurleg breyting á allra síðustu árum. Framlög á fjárl. til námslána og námsstyrkja hafa á s.l. 5 árum eða frá 1960, þegar framlagið nam 6.6 millj. kr., verið aukin upp í 10.6 millj. kr. á fjárl. fyrir yfirstandandi ár. Framlög beint úr ríkissjóði til námsstyrkja og námslána hér við háskólann og erlendis hafa verið hækkuð um 60% á undanförnum 5 árum og er þá þess ógetið, að samkv. gildandi l. um lánasjóð íslenzkra námsmanna við Háskóla Íslands og erlendis hafa íslenzkir bankar lánað mjög verulegt fé, sem ég hef ekki nákvæmar tölur um í höfðinu, lánað mjög verulegt fé til lánastarfsemi í þágu íslenzkra námsmanna, þannig að aðstaða þeirra hefur verið bætt stórkostlega á allra síðustu árum til þess að stunda sitt nám, bæði heima og erlendis. Í því sambandi er mér einmitt ánægja að geta þess, að alveg sérstök áherzla hefur verið lögð á það að bæta styrkja skilyrði og námslána skilyrði stúdenta við læknadeildina, því að öllum, sem um þessi mál hafa fjallað, hefur verið ljóst, að þeirra er þörfin mest fyrir sívaxandi námslán og námsstyrki. Hitt er annað mál, að enn hefur ríkisstj. ekki talið hér vera nóg að gert og þess vegna stendur nú einmitt yfir endurskoðun á gildandi l. um lánasjóð íslenzkra námsmanna við háskólann hér og erlendis og vona ég, að þeirri endurskoðun geti orðið lokið nú í vor eða að sumri, þannig að unnt verði að leggja nýtt frv. um lánasjóð íslenzkra námsmanna fyrir Alþ., þegar það kemur saman á hausti komanda.

Þessi atriði taldi ég rétt, að hér kæmu fram, fyrst og fremst til þess að undirstrika það, að því fer víðs fjarri, enda væri það stórum ámælisvert, ef svo væri, að sú stefna eða það hugarfar sé ráðandi í læknadeild háskólans, að torvelda eigi íslenzkum námsmönnum að leggja stund á læknisfræði og verða læknar.