09.03.1965
Neðri deild: 52. fundur, 85. löggjafarþing.
Sjá dálk 1456 í B-deild Alþingistíðinda. (1187)

138. mál, læknaskipunarlög

Gísli Guðmundsson:

Herra forseti. Í grg. þess frv., sem hér liggur fyrir, segir, að hæstv. heilbrmrh. hafi með bréfi 22. maí 1964 skipað n. til þess að framkvæma endurskoðun á læknaskipunarlögum nr. 16 9. apríl 1956 og læknisþjónustu dreifbýlisins almennt í því skyni að finna lausn á hinu aðkallandi vandamáli, sem stafar af skorti á læknum til héraðslæknisstarfa, einkum í hinum fámennari og afskekktari héruðum landsins. Það kemur fram, að í þessa n. hafa verið skipaðir nokkrir af hinum æðri embættismönnum úr læknastétt og tveir embættismenn úr stjórnarráðinu og að landlæknir hefur verið formaður n. Það er auðsætt, að í þessa n. hafa valizt ágætir menn, enda sýnir það sig, að í frv. kemur fram ýmiss konar viðleitni til að bæta úr þeim vanda; sem hér er um að ræða. Eigi að síður fæ ég ekki varizt þeirri hugsun, að heppilegra hefði verið, þegar um slíkt mál er að ræða sem þetta, að í n. hefðu ekki verið eingöngu embættismenn úr læknastétt og úr stjórnarráði, heldur hefðu einnig verið í n. einhverjir, sem hefði mátt líta á sérstaklega sem fulltrúa þeirra byggðarlaga, sem við mikinn vanda eiga að stríða sakir læknaskortsins. Ég hygg, að það hefði verið vænlegt, til þess að öll sjónarmið hefðu fengið að koma fram nógu glögglega, og vænlegra til samkomulags í þessu máli. En eigi að síður vil ég endurtaka það, að mér þykir þetta frv. bera vott um viðleitni til úrbóta í þessu vandamáli.

Það voru svo aðeins nokkur orð, sem ég vildi leyfa mér að beina til þeirrar hv. n., sem væntanlega fær þetta mál til meðferðar.

Í frv., 1. gr., er gert ráð fyrir, að lögð verði niður 5 læknishéruð. Eitt þessara læknishéraða, sem gert er ráð fyrir að lögð verði niður, er Raufarhafnarlæknishéra, og þessi orð, sem ég vildi beina til hv. n., eru í sambandi við það læknishérað.

Frv. til l. um, að Raufarhöfn og nágrenni hennar yrði gert að sérstöku læknishéraði, mun fyrst hafa verið flutt hér á Alþ. árið 1936. En svo leið langur tími og þetta frv. var flutt oftar en einu sinni, áður en það væri lögtekið að stofna þetta læknishérað. Nú vil ég leyfa mér að benda á það, að á Raufarhöfn stendur að ýmsu leyti nokkuð sérstaklega á. Í grg. frv. er skýrt svo frá, að í læknishéraðinu séu íbúar hátt á 5. hundrað eða nánar tiltekið 479, að ég ætla. Þetta er rétt, að íbúatalan mun hafa verið þessi í desember 1963, en hins er þá jafnframt að gæta, að nokkur hluti af Presthólahreppi og einnig nokkur hluti af Svalbarðshreppi mun einnig að jafnaði sækja lækni til Raufarhafnar eða vitja læknis til Raufarhafnar, þannig að gera má ráð fyrir, að sú fólkstala, sem hér er um að ræða, sé a.m.k. nokkuð yfir 500. Það var lengi haft á móti stofnun Raufarhafnarlæknishéraðs, að þar væri enginn læknisbústaður og að ekki væri líklegt, að Raufarhafnarmenn hefðu tök á að koma honum upp á næstunni. Nú hefur þessum læknisbústað þegar verið komið upp fyrir nokkrum árum ásamt sjúkraskýli, sem er í sama húsi. Læknisbústaðurinn er nú fyrir hendi og ég veit ekki, hvernig menn hugsa sér að ráðstafa þessu húsi, ef ekki verður lengur staðsettur héraðslæknir á Raufarhöfn. En það, sem veldur því, að segja má, að alveg sérstaklega standi á um Raufarhöfn, er það, að þó að fjöldi heimilisfastra manna þar í nágrenninu sé ekki meiri en rúmlega 500, er þarna saman kominn hluta úr árinu mikill fjöldi fólks, mjög mikill fjöldi fólks, í sambandi við sumarsíldveiðarnar. Það er starfsfólk, aðkomufólk, í síldarverksmiðjum og síldarsöltunarstöðvum og auk þess er oft og til langframa meiri og minni hluti af síldveiðiflotanum staddur í höfn á Raufarhöfn og ákaflega algengt, að leita þurfi læknis í sambandi við það. Ég hygg, að það megi segja, að um þennan tíma eigi læknir annríkt á Raufarhöfn. Og auk þessa má nefna það, að þessi íbúatala, þ.e.a.s. tala fastra íbúa í héraðinu, nálgast mjög íbúatölu þeirra héraða sumra, sem gert er ráð fyrir að ekki verði lögð niður.

Ég vildi mega vænta þess, að sú hv. n., sem fær þetta mál til meðferðar, athugi sérstaklega þetta málsatriði í sambandi við Raufarhafnarlæknishérað og afli sér, áður en hún afgreiðir málið, upplýsinga og álits hjá forsvarsmönnum þessarar byggðar og má vera, að í sambandi við slíkt samráð kynni ýmislegt að skýrast til gagns í þessu máli, að því er Raufarhafnarlæknishérað varðar.