01.04.1965
Neðri deild: 61. fundur, 85. löggjafarþing.
Sjá dálk 1493 í B-deild Alþingistíðinda. (1208)

138. mál, læknaskipunarlög

Frsm. (Matthías Bjarnason):

Herra forseti. Það eru aðeins örfá orð út af ræðu hv. 3. þm. Vestf. (SE). Hann las hér upp bréf frá oddvita Árneshrepps um samþykkt hreppsnefndar Árneshrepps og ég vil í sambandi við það leggja áherzlu á niðurlag þessa bréfs. Þar segir: „Vér leggjum þess vegna til, að héraðið verði fyrst um sinn látið standa áfram og landlækni falið að sjá um að auglýsa það til umsóknar með þeim kjörum, sem frv. gerir ráð fyrir.“ Ég vil vekja athygli þessa hv. þm. á því, að í frv., eins og það var lagt hér fyrir, er þetta læknishérað sameinað Hólmavíkurlæknishéraði og þar með lagt niður. Breyt., sem heilbr.- og félmn. gerir, er sú, að hún tekur þetta læknishérað upp í ákvæði til bráðabirgða ásamt Flateyjarlæknishéraði og þar segir, að þessi héruð skuli auglýst laus til umsóknar þrisvar í röð með sömu kjörum og læknar njóta í læknishéruðum þeim, sem um ræðir í 6. gr. frv. eða með 11/2 læknislaunum, auk þeirra fríðinda, sem hér hafa áður verið rædd. Ég fyrir mitt leyti, og ég hygg, að ég megi þar mæla fyrir munn allra nm. í heilbr.- og félmn., að við höfum komið til móts við óskir hreppsnefndar Árneshrepps í þessu efni og ég vil segja fyrir mitt leyti, að ég tel miklu meira virði fyrir dreifbýlið að geta tryggt í þeim héruðum, þar sem eru möguleikar á að fá lækna, að geta tryggt þar lækna til frambúðar, sem setjast þar að a.m.k. í nokkur ár, og það er í raun og veru bezta tryggingin fyrir þessa hreppa, sem verst eru settir hvað samgöngur snertir og eru svo fámennir, að það eru ekki möguleikar á því þrátt fyrir þetta að fá lækni til frambúðar. Úr þessu verður skorið, eftir að þetta frv. er orðið að lögum og þessi tvö læknishéruð verða auglýst laus til umsóknar, hvort það verða möguleikar á að fá lækna í þessi tvö héruð. — Ég endurtek, að við í n. höfum komið fyllilega til móts við óskir þessa fólks með því að taka þessi tvö læknishéruð inn í ákvæði frv. til bráðabirgða.