06.04.1965
Neðri deild: 64. fundur, 85. löggjafarþing.
Sjá dálk 1515 í B-deild Alþingistíðinda. (1220)
138. mál, læknaskipunarlög
Þórarinn Þórarinsson:
Herra forseti. Mér fannst það vera hálfeinkennilegt að heyra hjá hæstv. forsrh., þegar hann var að útskýra þá till., sem hér liggur fyrir á þskj. 380, þar sem fjallað er um námslaun til læknastúdenta, að skv. henni sé þeim gert að skilyrði að vera við læknisþjónustu í héraði alla sína ævi, ef þeir fái námslaun, eins og þar segir. Ég hygg, að hæstv. ráðh, hafi séð, að hér er fylgt alveg nákvæmlega sömu hugsun og er í 13. gr., þar sem talað er um, að ríkisstj. sé heimilt að veita læknastúdentum ríkislán til náms gegn skuldbindingu um læknisþjónustu í héraði að loknu námi. Ég hygg, að enginn hafi skilið þessa till. þannig, að það væri ætlazt til þess, þó að læknastúdentum væri veitt nokkurt námslán á þennan veg, að það ætti að þýða það, að þeir væru skuldbundnir til að starfa í læknishéraði alla sína ævi, heldur á að sjálfsögðu, eins og kemur fram í þessari gr. og líka í brtt., að setja um þetta nánari ákvæði í reglugerð. Mér finnst það hálfleiðinlegt, þegar hæstv. forsrh. er að venja sig á málflutning eða útúrsnúninga eins og þessa.
Annars var það ekki vegna hæstv. forsrh., sem ég kvaddi mér hljóðs, heldur vegna þeirra upplýsinga, sem hæstv. menntmrh. taldi sig vera með, þegar þetta mál var hér seinast til umr., um hækkun námslauna og námslána siðan 1950. Hæstv. ráðh. taldi sig hafa komizt að þeirri niðurstöðu, að á þessum tíma hafi þetta 15–16–faldazt. En ég álít, að það sé mjög villandi í þessu sambandi að taka saman í einu námslán og námsstyrki eða námslaun, en námsstyrkir og námslaun eru að vísu hið sama. Ég held, að ef við tökum það, sem er hið rétta í þessum efnum, námsstyrkina alveg sér og námslánin þá líka út af fyrir sig, þá komi allt annað upp á teningnum. Ég hef hérna fyrir framan mig þingtíðindin frá þingi 1949, þar sem er að finna fjárl. fyrir árið 1950, eins og þau voru afgr. Mér sýnist, að samkv. þeim hafi verið veitt á fjárl. í námsstyrki 1.3 millj. kr. Öll þessi upphæð var veitt sem námsstyrkir. Samkvæmt fjárl. í ár sýnist mér, að ekki sé veitt í námsstyrki, þegar búið er að draga frá það framlag, sem er hluti Lánasjóðs íslenzkra námsmanna, nema 3.7 millj. kr. Það eru sem sagt á 14. gr. fjárl. í ár veittar 11 millj. kr. til styrktar íslenzkum námsmönnum, en þar af fær lánasjóðurinn 8.7 millj., svo að af þeirri upphæð eru ekki eftir nema 2.3 millj. Svo er auk þess sérstakur liður, sem eru 5 ára styrkir, sem eru 1.4 millj. Samanlagt gera námsstyrkirnir á 14. gr., að því er mér virðist, 3.7 millj. kr., en námsstyrkirnir voru sem sagt árið 1950 1.3 millj. kr., 1.3, ekki 1.1, eins og hæstv. forsrh. hélt fram, því að ég sé ekki betur en að það sé um 1.3 millj. kr. að ræða.
Ef þessar tölur mínar eru réttar, sé ég ekki annað en að heildarupphæðin, sem farið hefur til námsstyrkja, hafi hækkað úr 1.3 millj. kr. 1950 í 3.7 millj. kr. nú eða tæplega þrefaldazt. Það er að sjálfsögðu allt of lítil upphæð til þess að mæta þeim stórfellda kostnaði, sem síðan hefur orðið, — þeirri dýrtíðaraukningu, sem síðan hefur orðið og þeirri stúdentafjölgun, sem síðan hefur orðið, — þannig að ef við tökum námsstyrkina eina, þá hefur augljóslega átt sér stað stórfelld afturför á þessum tíma. Hitt er svo rétt að viðurkenna, að á þessu tímabili hefur það fyrirkomulag verið tekið upp að veita námslán, sem er að vísu gagnlegt fyrir námsmenn að fá, en er þó allt annars eðlis en námstyrkir. Og ég held, að það, sem gerist nú yfirleitt annars staðar í þessum efnum í öðrum löndum, sé miklu frekar að auka námsstyrkina eða námslaunin heldur en námslánin. Ég veit ekki betur, en nú fyrir nokkru hafi verið sett í Svíþjóð sérstök löggjöf um námslaun, sem nái ekki aðeins til stúdenta, heldur einnig til þeirra, sem stunda menntaskólanám og iðnaðarskólanám eða nám við hliðstæða tækniskóla, og sams konar löggjöf sé nú einnig á döfinni í Noregi og e.t.v. búið að samþykkja hana þar. Það er alveg víst mál, að ef við ætlum að tryggja okkur nægilega tæknimenntaða menn á komandi árum, verðum við í vaxandi efnum að fara inn á þessa braut, m.a. vegna þess, að ýmsir hafa við það örðuga efnahagslega aðstöðu að búa, að þeim er ekki fært að stunda slíkt nám, nema þeir fái aðstoð einhvers staðar annars staðar frá. Og sú skoðun virðist líka ryðja sér til rúms erlendis og hafa áhrif á aðgerðir manna í þessum efnum, að námslán séu ekki heppileg að því leyti, að menn verða að standa undir miklum skuldum, þegar námi er lokið og það verði til þess, að þeir verði að krefjast hærri launa en ella. Þess vegna verki námsstyrkirnir eða námslaunin á margan hátt betur í þessum efnum heldur en námslánin. Ég held, að það verði þess vegna óhjákvæmilegt fyrir okkur á komandi árum að fara miklu meira inn á þá braut, en hefur átt sér stað að undanförnu að auka sjálfa námsstyrkina eða námslaunin, en ekki veita þá aðstoð, sem veitt er, nær eingöngu í formi námslána, eins og nú á sér stað.
Það er alveg ótvírætt, að ef þessar tölur eru réttar, sem ég hef hér farið með, hefur átt sér stað afturför síðan 1950, hvað námslaun snertir, þó að hið gagnstæða hefði vitanlega átt að eiga sér stað.