26.04.1965
Efri deild: 71. fundur, 85. löggjafarþing.
Sjá dálk 1541 í B-deild Alþingistíðinda. (1257)
186. mál, Húsmæðrakennaraskóli Íslands
Menntmrh. (Gylfi Þ. Gíslason):
Herra forseti. Húsmæðrakennaraskóli Íslands tók til starfa haustið 1942 samkv. heimild í í. nr. 65 frá 1941, um húsmæðrafræðslu í kaupstöðum og l. nr. 60 frá 1938, um húsmæðrafræðslu í sveitum og reglugerð, sem gefin mun hafa verið út 1942, nr. 47, um stofnun Húsmæðrakennaraskóla Íslands. Fyrsti skólastjóri skólans var Helga Sigurðardóttir, en síðan 1961 hefur Vigdís Jónsdóttir, sem áður var skólastjóri húsmæðraskólans á Varmalandi í Borgarfirði, verið skólastjóri skólans. Skólinn var fyrst til húsa í kjallara háskólabyggingarinnar í 2 ár, árin 1956–1958, starfaði skólinn ekki sökum skorts á hæfu húsnæði, en 1958 var honum fenginn til afnota fyrrverandi rektorsbústaður menntaskólans í Reykjavík í Háuhlíð og hefur skólinn starfað þar í góðu húsnæði síðan. Þá starfar skólinn og annað hvert ár að Laugarvatni. Fyrsti formaður skólanefndar skólans var Ólöf Jónsdóttir húsmæðrakennari, en síðan 1950 hefur Karitas Sigurðardóttir verið formaður skólanefndarinnar. Auk skólastjórans starfa nú við skólann 2 fastir kennarar og 7 stundakennarar. Frá því að skólinn tók til starfa, hefur hann útskrifað 118 nemendur, en á þessu skólaári eru nemendurnir 13.
Þar eð löggjöfin um Húsmæðrakennaraskóla Íslands er orðin næstum aldarfjórðungsgömul, þótti mér tími til kominn að fá skólanum nýjan lagagrundvöll. Í maí 1962 skipaði ég því n. til þess að semja nýja reglugerð fyrir húsmæðrakennaraskólann, en síðar var starfssvið n. fært út og n. einnig falið að semja till. um nýja löggjöf fyrir skólann. Í n. voru þær Vigdís Jónsdóttir, skólastjóri skólans, sem var formaður n., Halldóra Eggertsdóttir námsstjóri húsmæðrafræðslunnar og Knútur Hallsson deildarstjóri í menntmrn. Hefur þessi n, samið frv. það, sem hér er nú flutt.
Meginbreytingarnar, sem gert er ráð fyrir frá gildandi lagaákvæðum, eru þessar: Starfstími skólans er lengdur úr 21/2 ári í 31/2 ár. Inntökuskilyrðum í skólann er breytt með hliðsjón af núgildandi inntökuskilyrðum í Kennaraskóla Íslands. Gert er ráð fyrir að fjölga námsgreinum. Og auk þess eru í frv, ýmis fyllri ákvæði um skólann og skólastarfið, en eru í gildandi l., og er nánari grein gerð fyrir þessu í grg. með frv., sem ég sé ekki ástæðu til þess að rekja nánar hér. En það vil ég undirstrika, að meginbreytingin, sem yrði á starfsemi skólans, ef þetta frv. næði fram að ganga, er fólgin í því, að samkv. frv. er gert ráð fyrir því, að skólinn brautskrái húsmæðrakennara eftir þriggja vetra nám í skólanum og eins sumars nám að Laugarvatni í stað þess að útskrifa nú nemendur sína, húsmæðrakennarana, eftir tveggja vetra nám og eins sumars nám. Tala þeirra, sem útskrifast, mun væntanlega verða hin sama. En skortur á húsmæðrakennurum virðist ekki vera slíkur í bili, að það ætti að hafa nokkra röskun í för með sér, þótt skólinn útskrifi framvegis húsmæðrakennara þriðja hvert ár í stað annars hvers árs. Það, sem vinnst, er mjög mikilvægt, þ.e.a.s. að nemendur skólans fá tækifæri til mun fullkomnari menntunar og íslenzkir húsmæðrakennarar mundu, ef frv. nær fram að ganga, hafa svipað menntunarstig til að bera og húsmæðrakennarar á hinum Norðurlöndunum og þá um leið öðlast nauðsynlegan undirbúning til þess að geta stundað nám í norræna búsýsluháskólanum, sem Ísland eins og hin Norðurlöndin er aðili að. Það er og rétt að láta þess getið, að í raun og veru er námsefni húsmæðrakennaraskólans nú meira en svo, að það rúmist með góðu móti á því námstímabili, sem nemendum er nú ætlað, eða 21/2 ár. En auk þess að veita meira svigrúm til þess að nema þær námsgreinar, sem þegar eru kenndar í skólunum, mundu með eins árs lengingu á skólanum skapast möguleikar til þess að bæta við nýjum námsgreinum, sem ýmist eru taldar æskilegar eða óhjákvæmilegar.
Ég leyfi mér því að vænta þess, að þetta frv. fái góðar undirtektir hv. d., og leyfi mér að leggja til, að frv. verði að lokinni þessari umr. vísað til 2. umr. og hv. menntmn.