28.04.1965
Neðri deild: 74. fundur, 85. löggjafarþing.
Sjá dálk 1565 í B-deild Alþingistíðinda. (1299)

191. mál, lausaskuldir iðnaðarins

Dómsmrh. (Jóhann Hafstein):

Herra forseti. Eins og fram kemur í aths. við þetta frv., hefur það þótt eðlilegt, þegar verið var að athuga undirbúning að setningu reglugerðar skv. lögunum um breyt. á lausaskuldum iðnaðarins, sem síðasta Alþ. afgreiddi, að breyta svolítið tímamörkum, sem þar voru, en þar var miðað við, að breyting á lausaskuldum iðnaðarins eftir l. frá því í fyrra, skyldi miðast við skuldir, sem stofnazt hefðu á árunum 1957–62. Nú hefur tekið nokkuð langan tíma að koma framkvæmd þessa máls í gang. Ég hef lagt mikla áherzlu á það, að reglugerð yrði ekki sett um þetta nema í samráði við bankana, fyrst og fremst Seðlabankann og svo viðskiptabankana, og með það sjónarmið fyrir augum að tryggja þú betur raunhæfa framkvæmd málsins.

Það var sameiginlegt álit þeirra, sem ég átti viðræður við f.h. bankanna, að eðlilegt væri, eins og nú horfir, að taka árið 1963 með og með þessari breytingu mundi það þýða, að lausaskuldir, sem stofnað hefði verið til á árinu 1963 af sömu sökum og annars er miðað við í lögunum, komi til álíta, þegar á að fara að breyta þessum lausaskuldum iðnaðarins í föst lán. Þessi breyting felur að þessu leyti í sér nokkurt hagræði fyrir iðnaðinn.

Aftur á móti hefur það ekki þótt raunhæft við nánari athugun málsins að miða við neitt fyrra mark, hvenær var til skuldarinnar stofnað og það er í sjálfu sér alltaf nokkurt álitamál, hvenær lausaskuld er til orðin og þess vegna er það tímamark fellt niður.

Að öðru leyti þarfnast ekki þetta mál sérstakrar skýringar. Ég vil aðeins geta þess, að ég geri mér von um, að það verði nú á næstunni, innan mjög skamms tíma, hægt að gefa út ýtarlega reglugerð um framkvæmdaratriði þessa máls og þá, eins og ég sagði, í samráði við bankana, sem ég hef lagt mikla áherzlu á, að mundi verða tryggari undirstaða undir því, en ella væri, að málið fengi raunhæfa þýðingu í framkvæmd.

Ég vil svo leyfa mér að leggja til, að málinu verði að þessari umr. lokinni vísað til 2. umr. og hv. iðnn.