04.05.1965
Efri deild: 79. fundur, 85. löggjafarþing.
Sjá dálk 1572 í B-deild Alþingistíðinda. (1326)
192. mál, dráttarbrautir og skipasmíðastöðvar
Dómsmrh. (Jóhann Hafstein):
Herra forseti. Ríkisstj. hefur gefið fyrirsvarsmönnum dráttarbrauta og þeirra, sem stunda skipasmíðar hér, fyrirheit um það að verða þeim til liðsinnis í sambandi við ráðagerðir, sem uppi eru um stækkun dráttarbrauta og byggingu skipasmíðastöðva. Safnað var upplýsingum um þetta af hálfu iðnmrn. í sumar og síðan var málið í athugun bæði hjá Efnahagsstofnun og Seðlabankanum og það er til þess að efna þessi fyrirheit, sem leitað er eftir heimild fyrir ríkisstj. til þess að mega taka ábyrgð á lánum, og þá miðað við það, að ætla verður, að það gæti orðið mönnum til hagræðis og auðveldað lántökurnar. En á það er einnig að líta, að ríkisstj. hefur almenna heimild í hafnarl. til þess að ábyrgjast lán, þegar dráttarbrautir eru byggðar innan hafnanna og þá sömu upphæð og hér er farið fram á, 60%, fyrir utan það, að þar leggur ríkið einnig 2/5 fram sem styrk til hafnanna eða óafturkræft framlag.
Mál þetta er komið frá Nd. og þar var samkomulag um afgreiðslu þess. Að vísu kom fram till, þar um að hækka heimildina upp í 75%, en þegar sú till. hafði komið fram, lét ég athuga málið nánar af hálfu Seðlabankans og niðurstaða hans varð sú, að þetta mundi vera nægjanlegt mark, sem þarna væri sett, 60%, og það er í samræmi við hinar almennu ríkisábyrgðarheimildir fyrir frystihúsin. Bankinn átti viðræður við fyrirsvarsmann Félags ísl. dráttarbrauta um þetta og hann féllst á það, að það mundi vera rétt metið af hálfu bankans og þyrfti ekki til þeirrar aðstoðar, sem ætlað er að veita, að veita yfirleitt meira en 60% heimild til ábyrgðar.
Ég vil leggja til, að málinu verði að lokinni þessari umr. vísað til 2. umr. og til hv. iðnn.