25.02.1965
Efri deild: 46. fundur, 85. löggjafarþing.
Sjá dálk 1581 í B-deild Alþingistíðinda. (1361)

8. mál, náttúrurannsóknir

Menntmrh. (Gylfi Þ. Gíslason):

Herra forseti. Þetta frv. kemur frá hv. Nd. og hefur verið samþ. þar að einróma meðmælum hv. menntmn. og með samhljóða atkv.

Ég skal í örstuttu máli gera grein fyrir meginefni þessa frv. Flutningur þess stendur í nánu sambandi við flutning frv. um rannsóknir í þágu atvinnuveganna. En svo er mál með vexti, að 1940 var sett heildarlöggjöf um náttúrurannsóknir á Íslandi, bæði almennar eða undirstöðurannsóknir og hagnýtar rannsóknir. Meginkafli þeirra l. fjallar um atvinnudeild háskólans og hagnýtu rannsóknirnar. En þegar þau lög voru sett 1940, var engin stofnun til í landinu, sem gat annazt eða haft umsjón með hinum almennu náttúrurannsóknum. Þess vegna var það ekki nema eðlilegt, að þá væri Rannsóknaráði ríkisins, sem komið var á fót með l. frá 1940, falið að hafa umsjón með hinum almennu náttúrurannsóknum. 7 árum síðar, eða 1947, var Náttúrugripasafnið hins vegar gert að ríkisstofnun og jafnframt voru þá ráðnir að Náttúrugripasafninu nokkrir fastir ríkisstarfsmenn. Með lagasetningunni 1947 var þannig komið á fót opinberri stofnun, sem eins og öðrum ríkisstofnunum að sjálfsögðu ber að hafa forustu um almennar rannsóknir á sínu sviði, þ.e. á sviði dýrafræði, grasafræði, jarðfræði og landafræði. Í framhaldi af þeirri lagasetningu 1947 hefði verið eðlilegt að breyta löggjöfinni frá 1940 og fela hinni nýju ríkisstofnun, Náttúrugripasafninu, umsjón með almennum náttúrurannsóknum í landinu. Þetta var þó látið undir höfuð leggjast og gömlu l. frá 1940 látin haldast.

Nú hefur verið lengi á döfinni endurskoðun á l. frá 1940 um atvinnudeild háskólans og rannsóknir í þágu atvinnuveganna og hefur nú fyrir undanförnum tveim þingum legið frv. um gagngera endurskipulagningu á rannsóknum í þágu atvinnuveganna. Í því sambandi hefur verið talið eðlilegt að gera þá breytingu á löggjöfinni um Náttúrugripasafnið, sem í sjálfu sér hefði verið eðlilegt að gera, þegar það varð ríkisstofnun og lög voru sett um þá stofnun. Rannsóknaráð ríkisins, sem skipað hefur verið samkv. l. frá 1940, hefur haft með höndum að forminu til, eftirlit með almennum náttúrurannsóknum í landinu, en í reynd hefur það leitað samvinnu við sérfræðinga Náttúrugripasafnsins um framkvæmd þessa verkefnis. Þess vegna hefur þótt eðlilegt, að um leið og löggjöfin um rannsóknir í þágu atvinnuveganna væri endurskoðuð, væri líka endurskoðuð löggjöfin um Náttúrugripasafn Íslands og þá m.a. þeirri stofnun falið það almenna eftirlit með náttúrurannsóknum, sem nú er samkv. l. í höndum Rannsóknaráðs, en í reynd er að mestu leyti í höndum sérfræðinga Náttúrugripasafns Íslands.

Meginefni þess frv., sem hér liggur fyrir, er það, að nafninu er breytt úr Náttúrugripasafni Íslands í Náttúrufræðistofnun Íslands, enda veldur núverandi nafn stofnunarinnar nokkrum misskilningi. Af því mætti draga þá ályktun, að aðalverkefni stofnunarinnar væri að safna náttúrugripum til sýnis fyrir almenning. Hins vegar er verkefni stofnunarinnar fyrst og fremst að gera vísindalegar rannsóknir á náttúru landsins og þess vegna hefur verið talið eðlilegra, að nafn stofnunarinnar væri Náttúrufræðistofnun Íslands.

Þá eru felld inn í þetta frv. ýmis ákvæði úr l. frá 1940 um náttúrurannsóknir, sem ég gerði að umtalsefni áðan og lúta að almennu eftirliti með eða almennri forustu um rannsóknir á náttúru Íslands. Því er þó haldið sem verkefni Náttúrufræðistofnunarinnar að safna náttúrugripum og varðveita þá og hafa þá til sýnis fyrir almenning.

Þetta er meginefni þessa frv. og ég vona, að svo fari hér í hv. Ed. eins og í hv. Nd., að menn verði sammála um, að ástæða sé til þess að gera þær breytingar á l., sem hér er lagt til og vona ég, að frv. fái greiða göngu gegnum þessa hv. d. Ég vil enn fremur láta þess getið, að menntmn. Nd. vinnur nú að afgreiðslu frv. um almennar náttúrurannsóknir og tel ég mega segja, að vonir standi til þess, að n. afgreiði málið innan fárra daga, þannig að framgangur þess verði einnig tryggður á þessu þingi.

Að svo mæltu leyfi ég mér, herra forseti, að leggja til, að þessu frv. verði vísað til 2. umr. og hv. menntmn.