25.02.1965
Efri deild: 46. fundur, 85. löggjafarþing.
Sjá dálk 1582 í B-deild Alþingistíðinda. (1362)
8. mál, náttúrurannsóknir
Ólafur Jóhannesson:
Herra forseti. Eins og hæstv. menntmrh. gerði grein fyrir, hefur þetta frv. þegar gengið í gegnum Nd. og verið samþ. þar ágreiningslaust. Það er í sjálfu sér ekki ágreiningur um þetta frv. og ég vil láta í ljós þá skoðun af minni hálfu, að þetta frv. sé til bóta frá þeirri löggjöf, sem nú er og það sé eðlileg sú breytta skipan, sem í því felst og það sé eðlileg sú stjórnarskipun, sem gerð er á þessari stofnun. Ég er þess vegna þessu frv. út af fyrir sig meðmæltur.
En það, sem ég vil benda á í sambandi við 1. umr. málsins hér í þessari hv. d., er það atriði, sem ég sakna í þessu frv. og það atriði er; að það skuli ekki vera að neinu leyti gert ráð fyrir neinum tengslum milli þessarar Náttúrufræðistofnunar og háskólans og ég sakna þess alveg sérstaklega, þegar horfið hefur verið að því ráði að endurskoða þessa löggjöf og breyta henni til þess betra horfs þó, sem nú hefur verið gert, að það skuli ekki hafa verið athugað gaumgæfilega, hvort ekki væri ástæða til þess að tengja þessa stofnun háskólanum með sérstökum hætti og þá um leið taka upp kennslu í þeim greinum, sem þessari stofnun er sérstaklega ætlað að fjalla um, náttúruvísindum, en á því tel ég mikla þörf. Og ég álít raunar, að það hljóti að koma til þess fyrr en seinna, að það verði við háskólann tekin upp kennsla í þeim greinum og þá er vitaskuld sjálfsagt, að sú kennsla hlýtur að fara fram að öllu verulegu leyti á vegum eða í sambandi við þessa Náttúrufræðistofnun eða ég fæ ekki annað skilið. Þess vegna hefði mér fundizt eðlilegt, að það hefði nú strax verið horfið að því ráði að tengja þessa stofnun háskólanum og vinda að því bráðan bug að setja upp vísi að kennslu í þessum greinum. En eins og ég sagði, álít ég af mörgum ástæðum, að á því sé mikil þörf. Stúdenta fjöldinn fer hér á landi, eins og annars staðar, mjög ört vaxandi, eins og öllum er kunnugt. Og stúdenta fjöldinn við Háskóla Íslands fer mjög vaxandi. Það er t.d. talið, að á s.l. 5 árum hafi stúdentum innrituðum í háskólann fjölgað um 26% . Það hefur verið gerð áætlun um það, hvernig stúdenta fjöldinn við Háskóla Íslands, stúdentar innritaðir við Háskóla Íslands, mundi að öllu óbreyttu verða að um það bil 20 árum liðnum, 1983 og það er gert ráð fyrir því, að stúdenta fjöldinn, sem er í dag við Háskóla Íslands, 950, verði þrefaldaður að þeim tíma liðnum, 1983. En þá er ekki sérstaklega höfð í huga sú breyting, sem þarf að verða á og nauðsynlega þarf að verða á, sem sé sú að taka upp fleiri kennslugreinar við háskólann, en á því er brýn nauðsyn, bæði til þess að létta að nokkru leyti aðsókn að þeim deildum, sem þegar eru þar fyrir, svo og vegna þess, að þörfin fyrir menntaða menn í ýmsum fleiri greinum kallar að. Og ég sé það einmitt, að í sambandi við þetta frv., sem lagt hefur verið á sínum tíma fyrir háskólaráð, hefur háskólarektor einmitt í sambandi við háskólaráð vakið alveg sérstaka athygli á þessu atriði, og hann segir þar, með leyfi forseta:
„Hins vegar er fullt efni til að minnast hér á þá höfuðþörf, sem á því er að koma á stofn kennslu í náttúruvísindum við Háskóla Íslands. Þegar til slíkrar kennslu verður stofnað, þarf að nýju að endurskoða stöðu safnsins og tengsl þess við háskólann.“
Ég vildi aðeins leyfa mér, einmitt í sambandi við þetta mál, að vekja athygli á þessu. Ég geri ráð fyrir því, að úr því sem komið er séu ekki tök á því í sambandi við meðferð þessa máls á þessu þingi að taka upp því líka breytingu á því, en þó vil ég nota þetta tækifæri til þess a.m.k. að gefa hæstv. menntmrh. tækifæri til þess að skýra frá því, að ráðagerðir eru uppi í því efni, að hverfa að kennslu í þessum greinum mjög bráðlega. Ef það er meiningin, er auðvitað hægurinn hjá að breyta þessu frv. í samræmi við það. En ég verð að lýsa því sem minni skoðun, að ég hefði talið það eðlilegra og myndarlega í sambandi við þessa laga endurskoðun, sem hér hefur farið fram, að sporið væri stigið til fulls og gert væri um leið ráð fyrir vísi að kennslu við háskólann í þessum greinum, sem þetta frv. fjallar sérstaklega um.