30.04.1965
Efri deild: 77. fundur, 85. löggjafarþing.
Sjá dálk 1587 í B-deild Alþingistíðinda. (1367)
8. mál, náttúrurannsóknir
Frsm. (Auður Auðuns):
Herra forsetl. Menntmn. þessarar hv. d. hefur haft þetta frv, til athugunar alllengi. Eins og fram kemur í nál. á þskj. 544, sendi n. háskólanum og Hinu íslenzka náttúrufræðifélagi frv. til umsagnar. Hafa þær umsagnir borizt og einnig hefur n. borizt erindi frá stjórn Náttúrugripasafnsins.
Því er ekki að leyna, að nokkuð hefur borið á milli í umsögnum þessara aðila og erindum, og hefur það m.a. leitt til þess, að þess hefur verið óskað af einstökum nm. að fá svigrúm til þess að kynna sér til hlítar umsagnirnar og fá tíma til þess að athuga vel málið og rækilega, áður en það yrði afgreitt í n. Hins vegar er orðið það áliðið þingtímans, að n. varð sammála um að mæla með frv. við 2. umr. málsins til þess að þoka því áleiðis, en einstakir nm. áskilja sér rétt til þess að flytja brtt. við frv. við 3. umr. Og eins og fram kemur í nál., mun nefndin hafa málið áfram til frekari athugunar milli umr.
Sé ég ekki á þessu stigi ástæðu til þess að fjölyrða frekar um málið.