08.05.1965
Efri deild: 85. fundur, 85. löggjafarþing.
Sjá dálk 1596 í B-deild Alþingistíðinda. (1398)
166. mál, víxillög
Frsm. (Magnús Jónsson):
Herra forseti. Fjhn. hefur athugað þetta mál og jafnframt vildi ég leyfa mér að mæla um leið fyrir næsta máli, vegna þess að það er alveg sama eðlis, um breyt. á l. um tékka. Þessi frv. eru bæði flutt eftir ósk Seðlabankans og eru í samræmi við þá stefnu Seðlabankans og bankakerfisins yfirleitt að koma lagi á bæði tékkaviðskipti og víxlaviðskipti, þannig að girða fyrir vanskil, og stefna bæði þessi frv. í þá átt að setja viss viðurlög við slíkum vanskilum. Þetta telja bankarnir hafa mikla þýðingu. Það hefur verið unnið mikið í þá átt að koma þessum málum í réttara horf og t.d. með tékkaviðskiptin hefur það mjög lagazt. En það þykir vera þörf á því að fá þær heimildir, sem í þessum frv. greinir og það er sameiginlegt álít fjhn. að leggja til, að frv. verði samþ.