14.10.1964
Efri deild: 2. fundur, 85. löggjafarþing.
Sjá dálk 14 í B-deild Alþingistíðinda. (14)

Kosning fastanefnda

Forseti (SÓÓ):

Samkv. þingsköpum mega ekki vera fleiri en 5 þm. í hverri fastanefnd í deildum. Fram er komið stjórnarfrumvarp um að hækka þessa tölu í 7. Því hefur verið hreyft, að hagkvæmt væri, að þessi breyting á skipun nefnda kæmi til framkvæmda þegar í þingbyrjun. Ég legg því til, að samþykkt verði þau afbrigði frá þingsköpum, að hver fastanefnd deildarinnar verði skipuð 7 þm.