05.05.1965
Efri deild: 80. fundur, 85. löggjafarþing.
Sjá dálk 1597 í B-deild Alþingistíðinda. (1411)

168. mál, tékkar

Menntmrh. (Gylfi Þ. Gíslason):

Herra forseti. Þetta frv. er eins og hið síðasta, sem ég var að mæla fyrir áðan, komið frá hv. Nd. og var einnig samþ. þar með shlj. atkv. Flutningur þess stendur einnig í sambandi við þá ákvörðun Seðlabankans um s.l. áramót að hækka dráttarvexti í því skyni að stuðla að aukinni skilvísi við greiðslu skulda. Í þessu frv. er lagt til, að teknir verði upp dráttarvextir, sem Seðlabankinn heimilar innlánsstofnunum að taka hæsta, vegna vanskilatékka og yrðu þá vextir vegna tékkaskulda 1% á mánuði eða broti úr mánuði að óbreyttri ákvörðun Seðlabankans um dráttarvexti innlánsstofnana. Með þessu móti er komið á nauðsynlegu samræmi á milli vaxta af vanskilatékkum og vaxta af vanskilavíxlum.

Ég leyfi mér að óska þess, herra forseti, að málinu verði vísað að lokinni þessari umr, til 2. umr. og hv. fjhn., af því að hinu málinu var vísað til fjhn.