08.05.1965
Efri deild: 85. fundur, 85. löggjafarþing.
Sjá dálk 1604 í B-deild Alþingistíðinda. (1431)

196. mál, Listasafn Íslands

Menntmrh. (Gylfi Þ. Gíslason):

Herra forseti. Í tilefni af ræðu hv. síðasta ræðumanns, hv. 5. þm. Reykn. (GilsG), vil ég taka þetta fram: Með hliðsjón af því, að menntamálaráð hefur nú þegar, þegar frv. þetta er afgreitt hér á hinu háa Alþ., gert fjárhagsáætlun fyrir yfirstandandi ár og í þeirri fjárhagsáætlun er gert ráð fyrir 500 þús. kr. framlagi til Listasafns Íslands, eins og gert er ráð fyrir í gildandi lögum, tel ég eðlilegt, að þessi lög, ef samþykkt verða, yrðu skilin þannig, að ákvæði þeirra taki til fyrsta heila almanaksársins, sem lögin eru í gildi, þ.e.a.s. að ákvæði þeirra breyti ekki þegar gerðri samþykkt menntamálaráðs um fjárhagsáætlun fyrir yfirstandandi ár, heldur taki fyrst gildi, þegar menntamálaráð semur fjárhagsáætlun fyrir næsta heilt almananaksár, þ.e. fyrir árið 1966.

Ég mun beita mér fyrir því, að safnráð Listasafns Íslands óski ekki eftir, að þessi ákvæði komi til framkvæmda á þessu ári, þ.e.a.s. sætti sig við ákvæði þeirra laga, sem nú gilda, þ.e. við þá fjárhæð, sem gert er ráð fyrir í þeirri fjárhagsáætlun menningarsjóðs, sem nú er í gildi og hef rætt þetta mál við formann safnráðsins og forstöðumann Listasafnsins.