03.11.1964
Neðri deild: 10. fundur, 85. löggjafarþing.
Sjá dálk 1605 í B-deild Alþingistíðinda. (1437)
30. mál, rannsóknir í þágu atvinnuveganna
Menntmrh. (Gylfi Þ. Gíslason):
Herra forseti. Þetta frv. um rannsóknir í þágu atvinnuveganna er nú lagt í þriðja sinn fyrir hið háa Alþingi. Ég hef áður flutt allýtarlega framsöguræðu um það og gert um leið grein fyrir því rannsóknarstarfi, sem nú fer fram á Íslandi. Ég sé því ekki ástæðu til að fara mörgum orðum um frv. nú.
Ég skal þó í fáum orðum gera grein fyrir þeim meginbreytingum á ríkjandi skipulagi íslenzkra rannsóknarmála, sem samþykkt þessa frv. mundi hafa í för með sér.
Rannsóknaráð ríkisins, sem stofnað var árið 1939 og aðstoðar atvmrn. við yfirstjórn Atvinnudeildar háskólans, er nú skipuð 3 mönnum eftir tilnefningu þriggja stærstu þingflokkanna. Í þessu frv. er gert ráð fyrir því, að rannsóknaráð ríkisins verði ráðgjafarstofnun, sem vinni að eflingu hagnýtra rannsókna í landinu, en einnig að eflingu undirstöðurannsókna, að því leyti sem þau verkefni eru eigi í höndum Háskóla Íslands og þá jafnan í fullu samráði við hann. Aðalverkefni rannsóknaráðs ríkisins eiga að vera efling og samræming hagnýtra rannsókna og undirstöðurannsókna í landinu. Það á að hafa samráð við hinar ýmsu rannsóknastofnanir, fá sem gleggsta yfirsýn yfir alla rannsóknarstarfsemi í landinu og gera tillögur til úrbóta, ef það telur rannsóknarstarfsemina ófullnægjandi, rannsóknarskilyrði ófullkomin eða markverð rannsóknarefni vanrækt.
Þá á ráðið að hafa með höndum athuganir á hagnýtingu náttúruauðæfa landsins til nýrra atvinnuvega, gera till. um framlög ríkisins til rannsóknarmála og fylgjast með ráðstöfun opinberra fjárframlaga til þeirra rannsóknastofnana, sem lögin taka til. Það á að hafa með höndum öflun fjármagns til rannsóknarstarfseminnar almennt til viðbótar framlagi ríkisins og tillögugerð um skiptingu þess milli rannsóknastofnana og rannsóknarverkefna. Það á að hafa í sínum vörzlum skýrslur um rannsóknir á sviði raunvísinda, sem kostaðar eru af opinberu fé, semja árlega skýrslu um rannsóknarstarf í landinu og enn fremur stuðla að söfnun erlendra rita og annarra erlendra upplýsinga um vísindastörf, rannsóknarstörf, tækni og úrvinnslu þeirra til hagnýtingar fyrir atvinnuvegi landsins. Enn fremur á það að beita sér fyrir skjótri hagnýtingu tæknilegra nýjunga í atvinnuvegunum með kynningarstarfsemi og upplýsingaþjónustu.
Verkefni rannsóknaráðs er þannig samkv. þessu frv. fyrst og fremst í því fólgið að vera ráðgjafi ríkisstj. og Alþingis í rannsóknarmálum og aðstoða hið opinbera við mótun stefnu í rannsóknarmálum. Ráðið á hins vegar ekki að hafa með höndum yfirstjórn rannsóknastofnana, eins og nú á sér stað og er það meginbreytingin frá ríkjandi skipulagi.
Gert er ráð fyrir því, að í rannsóknaráði eigi sæti 17 menn og eru þeir fulltrúar atvinnuvega, Efnahagsstofnunarinnar, háskólans og Alþingis. Ráðið skal vera ólaunað, en kjósa úr sínum hópi framkvæmdanefnd. Þá er gert ráð fyrir því, að rannsóknaráð heyri undir menntmrh., sem skipar formann þess og framkvæmdastjóra.
Frv. gerir ráð fyrir því, að á vegum ríkisins skuli starfræktar þessar rannsóknastofnanir: Hafrannsóknastofnun, Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins, Rannsóknastofnun landbúnaðarins, Rannsóknastofnun iðnaðarins og Rannsóknastofnun byggingaiðnaðarins. Meginbreytingin frá ríkjandi skipulagi er sú, að Atvinnudeild háskólans verður lögð niður. Hafrannsóknastofnunin kemur í stað fiskideildar og Rannsóknastofnun landbúnaðarins í stað búnaðardeildar, en í stað iðnaðardeildar koma 2 stofnanir: Rannsóknastofnun iðnaðarins og Rannsóknastofnun byggingaiðnaðarins. Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins kemur í stað rannsóknarstofu Fiskifélags Íslands.
Nú lýtur hver deild Atvinnudeildar háskólans stjórn deildarstjóra undir yfirstjórn rannsóknaráðs og atvmrn. Í þessu frv. er gert ráð fyrir því, að hver rannsóknastofnun verði sjálfstæð ríkistofnun, sem heyri undir hlutaðeigandi ráðuneyti. Rannsóknaráð á engin afskipti að hafa af stjórn rannsóknastofnananna. Hins vegar er hverri þeirra fengin sérstök stjórn, og auk þess er gert ráð fyrir skipun ráðgjafarnefndar við stofnanirnar. Í stjórn Hafrannsóknastofnunarinnar skulu vera 3 menn, forstjóri stofnunarinnar, fiskimálastjóri og maður tilnefndur af ráðgjafarnefndinni. Stjórn Rannsóknastofnunar fiskiðnaðarins skal skipuð með sama hætti, þannig að þar eigi sæti forstjóri stofnunarinnar, fiskimálastjóri og maður tilnefndur af ráðgjafarnefndinni. Í stjórn Rannsóknastofnunar landbúnaðarins skulu eiga sæti forstjóri stofnunarinnar, búnaðarmálastjóri og maður tilnefndur af tilraunaráði rannsóknastofnunarinnar. Í stjórn Rannsóknastofnunar iðnaðarins skulu eiga sæti 3 menn: forstjóri rannsóknastofnunarinnar, einn tilnefndur af Félagi íslenzkra iðnrekenda og einn tilnefndur af ráðgjafarnefnd. Í stjórn Rannsóknastofnunar byggingaiðnaðarins eiga hins vegar að vera 3 menn: forstjórinn, einn tilnefndur af Landssambandi iðnaðarmanna og einn tilnefndur af ráðgjafarnefnd. Við allar stofnanirnar er gert ráð fyrir því, að skipa megi ráðgjafarnefndir, ef ósk kemur fram um það frá einum eða fleiri af þeim aðilum, sem gert er ráð fyrir að gefinn sé kostur á að tilnefna fulltrúa í ráðgjafarnefnd. En tilgangur með heimildinni til að skipa ráðgjafarnefndir er sá að skapa tengsl milli rannsóknastofnananna og hlutaðeigandi atvinnuvega, sem þeim er ætlað að vinna fyrir. Við Rannsóknastofnun landbúnaðarins er ráðgjafarnefndin nefnd tilraunaráð. Ef ráðgjafarnefndin er ekki skipuð, er gert ráð fyrir því, að ráðh. skipi einn stjórnarnefndarmanninn í stað ráðgjafarnefndarinnar.
Gert er ráð fyrir því í frv., að forstjóri stofnunarinnar eigi ávallt sæti í stjórninni og sé formaður hennar, og er það gert til þess að tryggja, að nauðsynleg sérþekking sé jafnan fyrir hendi í stjórn stofnananna, stuðla að festu í framkvæmdastjórn og í því skyni að efla samstarf stjórnar og þeirra, sem í stofnuninni vinna.
Í frv. er lagt til, að í stjórnum allra rannsóknastofnananna séu 3 menn. Er alls staðar gert ráð fyrir því, að forstjóri stofnunarinnar eigi sæti í stjórninni og sé formaður hennar, eins og ég gat um áðan, og alls staðar sé í stjórn einn maður tilnefndur af ráðgjafarnefnd, ef hún er skipuð, en annars ráðherra. Þriðji stjórnarmaðurinn er skipaður sem hér segir: í stjórn Hafrannsóknastofnunarinnar og Rannsóknastofnunar fiskiðnaðarins skal fiskimálastjóri eiga sæti, í stjórn Rannsóknastofnunar landbúnaðarins búnaðarmálastjóri, í stjórn Rannsóknastofnunar iðnaðarins skal eiga sæti fulltrúi tilnefndur af Félagi íslenzkra iðnrekenda, og í stjórn Rannsóknastofnunar byggingaiðnaðarins skal eiga sæti maður tilnefndur af Landssambandi iðnaðarmanna.
Í frv. er gert ráð fyrir því, að hlutaðeigandi ráðherra skipi helztu starfsmenn rannsóknarmálanna, þ.e. framkvæmdastjóra rannsóknaráðs, forstjóra einstakra rannsóknastofnana og alla sérfræðinga, en annað starfsfólk ráði hlutaðeigandi stjórnarnefnd. Er þetta í samræmi við þá venju, sem hér tíðkast.
Þá eru í frv. mikilvæg nýmæli um sérstaka fjáröflun tveggja rannsóknastofnananna, þ.e. rannsóknastofnana iðnaðarins og byggingaiðnaðarins. Gert er ráð fyrir því, að iðnfyrirtæki, verksmiðjur og verkstæði greiði gjald, er nemi 2 af þús. af kaupi verkafólks og fagmanna, til þess að standa straum af hluta af kostnaði þessarar rannsóknastofnunar. Undanþegin eru fyrirtæki, sem vinna úr sjófangi og landbúnaðarafurðum, svo og áburðarframleiðsla. Gera má ráð fyrir, að gjald þetta nemi hátt á aðra millj. kr. á ári. Ber brýna nauðsyn til þess að stórefla hér rannsóknir í þágu iðnaðar landsmanna og má telja, að hér sé um hóflegt gjald að ræða miðað við þann mikla ávinning, sem öflug rannsóknastofnun gæti veitt iðnaðinum. Þá er og gert ráð fyrir því, að af öllu innfluttu timbri, sementi og steypustyrktarjárni skuli greiða 1/2% aðflutningsgjald og 1/2% framleiðslugjald af sementi, sem framleitt er hér á landi og skulu gjöld þessi renna til Rannsóknastofnunar byggingaiðnaðarins. Má gera ráð fyrir, að gjald þetta nemi einnig hátt á aðra millj. árlega.
Í þessu sambandi vil ég láta þess getið, að forustumenn Félags íslenzkra iðnrekenda og Landssambands iðnaðarmanna hafa nýlega rætt við mig og skýrt mér frá því, að þeir kynnu að æskja eftir breytingum á þeim greinum frv., sem um þessi gjöld fjalla. Er það einvörðungu um formshlið málsins, sem þeir munu ef til vill gera brtt., þar eð ýmis ný gjöld af þessu tagi hafa verið lögleidd, síðan þetta frv, var samið, svo sem iðnlánasjóðsgjald og launaskatturinn, sem hér er nú til meðferðar á hinu háa Alþingi.
Þessi ákvæði voru upphaflega sett í fullu samráði við forustumenn iðnrekenda og iðnaðarmanna, enda er mikill skilningur á því ríkjandi í röðum þeirra, að bráðnauðsynlegt sé að efla rannsóknir í þágu verksmiðjuiðnaðar og byggingaiðnaðar. Forvígismenn þessara beggja samtaka, iðnrekenda og iðnaðarmanna, tóku skýrt fram, að hugsanlegar brtt. þeirra mundu ekki snerta lækkun gjaldsins, í þeim mundu ekki felast till. um lækkun gjaldsins, heldur einvörðungu um innheimtuaðferð þess.
Þessar eru helztu breytingarnar á skipulagi íslenzkra rannsóknarmála, sem þetta frv. gerir ráð fyrir. Ég álít mjög nauðsynlegt, að það hljóti nú afgreiðslu hins háa Alþingis. Ef Alþingi sýnist rétt að gera einhverjar breytingar á frv., þá er ríkisstj. til viðræðu um slíkt, en þá tel ég nauðsynlegt, að jafnframt sé haft samráð um breyt. við forstöðumenn þeirra rannsóknastofnana, sem nú starfa og þá vísindamenn, sem nú starfa í stofnununum. Við undirbúning þessa frv. var einmitt lögð á það sérstök áherzla að hafa sem nánast samstarf við vísindamennina sjálfa, m.a. með því að efna til sérstakrar ráðstefnu vísindamanna í Háskóla Íslands til þess að ræða um rannsóknarmálin.
Allir virðast nú sammála um, að sérhverri þjóð, sem vill bæta hag sinn og auka framfarir og velmegun í landi sínu, sé fátt nauðsynlegra en að efla vísindarannsóknir og tækni. Það, sem fyrst og fremst er nauðsynlegt í því skyni, er að bæta hvers konar tæknimenntun, gera stórt átak til aukinnar vinnuhagræðingar á öllum sviðum atvinnulífsins og veita stóraukið fé til hvers konar vísindarannsókna. Mér er auðvitað ljóst, að þetta frv. fjallar ekki nema um takmarkaðan þátt þess mikla átaks, sem okkur Íslendingum í enn ríkari mæli en flestum nágrannaþjóðanna er nú nauðsyn á í þessum efnum. En sá þáttur, sem þetta frv. fjallar um, er engu að siður mikilvægur. Hér er fyrst og fremst um að ræða skipulagsmál rannsóknanna, en allir, sem þeim málum eru kunnugir, munu vera sammála um, að einmitt það, hvernig rannsóknarmálin eru skipulögð, getur annars vegar haft verulega þýðingu fyrir skilyrði þess að afla fjár til þeirra og hins vegar í því sambandi, hvern árangur aukið fé ber í hagnýtum niðurstöðum. Í þessu frv. er raunar ekki einungis fjallað um bætt skipulag rannsóknastofnananna og rannsóknarmálanna, heldur eru þar einnig athyglisverðar till. um auknar fjárveitingar til þessara mála. En þótt hér sé þó fyrst og fremst um skipulagsmál vísindarannsókna að ræða og ég vona, að hið háa Alþingi sjái sér fært að samþykkja þetta frv. nú á þessu þingi í aðalatriðum, eins og það nú liggur fyrir, þá vil ég samt undirstrika og leggja á það sérstaka áherzlu, að það eitt er ekki nóg. Í kjölfar nýskipunar á skipulagsformi rannsóknanna þarf síðan þegar í stað að koma stóraukið fé til rannsóknarstarfseminnar. Það er nú öruggasta leiðin til aukinna framfara og bættrar farsældar.
Bandarískar rannsóknir hafa leitt í ljós, að um það bil 80–90% af þeirri aukningu, sem orðið hefur á þjóðarframleiðslunni á mann þar í landi á undanförnum áratugum, virðast eiga rót sína að rekja til bættrar tækni, sem nýjar uppgötvanir á sviði vísinda hafa gert mögulega og bættrar skipulagningar. Athuganir, sem gerðar hafa verið í Svíþjóð, hafa leitt í ljós, að af árlegri aukningu þjóðarframleiðslunnar, sem á síðasta áratug var talin hafa numið 3.7%, má telja 2.2% eða um 3/5 hluta eiga rót sína að rekja til bættrar tækni og skipulagningar. Það er yfirleitt ríkjandi skoðun meðal fræðimanna og stjórnenda fyrirtækja, að bætt tækni og skipulagning hafi á undanförnum áratugum hvarvetna átt miklu meiri þátt í þeirri framleiðsluaukningu, sem orðið hefur, en aukin fjárfesting eða aukinn mannafli við framleiðsluna. En undirstaða tækniframfara er ný þekking, ný tækni, ný efni og nýjar aðferðir, sem eru árangur víðtæks rannsóknarstarfs. Vísindin hafa og gerbreytt daglegu lífi mannkyns og ekki aðeins gert því kleift að stórauka neyzlu sína, heldur hafa þau jafnframt valdið því, að hún hefur gerbreytzt. Það er nú talið, að um helmingur bandarísku þjóðarinnar starfi að framleiðslu vörutegunda, sem voru alls ekki til og ekki hefði verið hægt að framleiða fyrir hálfri öld. Með þessu er auðvitað ekki sagt, að efling vísinda og aukning rannsóknarstarfa sé bókstaflega hið eina, sem máli skiptir fyrir framfarir og hagsæld mannkyns. Aukin menntun er t.d. forsenda þess, að unnt sé að efla vísindi og rannsóknir til frambúðar. Og efling menntunar og vísinda kemur ekki að notum, ef árangurinn er ekki hagnýttur skynsamlega og áherzla lögð á bætta stjórn og skipulagningu í framleiðslu og dreifingu. Þess vegna verður maðurinn að sækja fram á mörgum sviðum samhliða. En eitt hið mikilvægasta er áreiðanlega rannsóknarstarfsemi. Allar menningarþjóðir leggja þess vegna á það mikla áherzlu að efla hvers konar rannsóknarstörf, jafnhliða því sem þær keppa að því að bæta menntun sína.
Á því er enginn vafi, að Íslendingum ber nú að stórauka fjárveitingar til rannsóknarstarfa samhliða eða í kjölfar þess, að skipulag rannsóknarmálanna sé endurbætt. Sérhver króna, sem varið er til nýrra rannsókna, mun bera margfaldan ávöxt, þegar fram í sækir. Það fé, sem varið er til þess að mennta vísindamenn og hvers konar tæknifræðinga og til þess að skapa þeim rannsóknaraðstöðu á hvers konar vísinda- og rannsóknarstöðvum og jafnframt til þess að miðla þekkingu sinni og starfsaðferðum til atvinnulífsins, — það fé, sem til þessa er varið, er áreiðanlega einhver bezta fjárfestingin, sem nú er hægt að efna til í þágu íslenzkra atvinnuvega.
Að svo mæltu leyfi ég mér að leggja til, herra forseti, að þessu frv. verði vísað til 2. umr. og hv. menntmn.