29.04.1965
Neðri deild: 75. fundur, 85. löggjafarþing.
Sjá dálk 1627 í B-deild Alþingistíðinda. (1445)
30. mál, rannsóknir í þágu atvinnuveganna
Einar Olgeirsson:
Herra forseti. Ég vil taka undir með hv. formanni og frsm. n. um að leggja áherzlu á, að þetta frv. nái nú fram að ganga. É þeirri n., sem undirbjó þetta frv., atvinnumálanefnd ríkisins, var unnið að þessu í mörg ár. Síðan kom þetta frv. hér fyrir Alþ. og er nú búið að vera hér hjá okkur í 3 ár. Og svona má ekki til ganga. Þó er þetta aðeins ramminn utan um þær vísindarannsóknir, sem stofna skal til og öllum mönnum kemur saman um það, sem vit hafa á þessum málum nú, að vísindin séu sjálf að verða eitthvert allra þýðingarmesta framleiðsluaflið í þjóðfélaginu, þannig að það er alveg óhjákvæmilegt, að við reynum að stíga verulegt spor áfram til þess að efla þessa vísinda- og rannsóknarstarfsemi og til þess að skipuleggja hana betur en verið hefur. Með þessu frv., eins og frá því er gengið, er gerð verulega stórfelld tilraun í þessa átt og um leið reynt að tengja saman í sambandi við rannsóknaráð, sem er yfirstjórnin á þessu, ríkisstj., Alþ., háskólann og ýmsar áhugastofnanir í landinu, til þess að skapa sem allra víðtækastan áhuga og skilning á mikilvægi þessara mála. Ég vil þess vegna eindregið skora á og um það erum við allir sammála í menntmn., — skora á hv. þm. að greiða þessu frv, götu gegnum þingið, þótt nú sé orðið svona áliðið. Það er ekki vegna þess, að menntmn. hafi legið á þessu máli, heldur þvert á móti. Hún hefur unnið ákaflega mikið í þessu máli. Við höfum allir meira eða minna, meðlimir n., útbúið brtt. um þetta mál, rætt þessar brtt. okkar á milli og síðan gert að meira eða minna leyti samkomulag um að falla frá þessum brtt., jafnvel þótt okkar skoðanir væru óbreyttar.
Ég lýsti því hér við 1. umr. málsins, að mín skoðun var sú, að í staðinn fyrir að hafa stjórn fyrir hverri einstakri rannsóknastofnun og þar að auki ráðgjafarnefnd, bæri að fella þessar stjórnir burt og hafa eingöngu ráðgjafarnefndirnar. Ég er á þessari skoðun enn þá. Hins vegar, ef ég ætti að fara að flytja brtt, um þetta, þýðir það svo margfaldar brtt. í sambandi við allar 5 stofnanirnar og brtt. í sambandi við ráðgjafarnefndirnar til þess að gefa þeim öðruvísi aðstöðu, brtt. í sambandi við, hvernig ætti að skipa forstjóra og annað slíkt, að það mundi vera allt of mikill ruglingur og þess vegna féll ég alveg frá því, án þess að falla frá minni skoðun, að flytja nokkrar brtt. í þessu efni. Hins vegar var í menntmn. tekið ýmislegt tillit bæði til þeirra till., sem ég kom þar með og eins aðrir þm. stjórnarandstöðunnar, þannig að samvinna hefur verið ágæt í n. um að reyna að taka tillit hver til annars á víxl og gera nokkurt samkomulag, sem verða mætti til þess að tryggja það, að allir flokkar þingsins gætu að þessu staðið. Þess vegna hef ég sem sé fallið frá öllum slíkum brtt.
Ég flyt aðeins eina litla brtt. á þskj. 539, sem ég lét líka meðnm. mína vita um, að ég mundi flytja. Hún gengur út á það, að eftir 18. gr. komi ný gr. Í frv. er gert ráð fyrir tveimur rannsóknastofnunum, sem sjávarútvegurinn hefur með að gera. Önnur er Hafrannsóknastofnunin og hin er Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins. Ég legg til, að þarna sé sett upp þriðja stofnunin, með því að það sé tekið ákveðið verkefni út úr því, sem Hafrannsóknastofnunin nú hefur og falli til stofnunar, sem við köllum Tæknistofnun sjávarútvegsins. Það er nú þegar gert ráð fyrir því með samkomulagi, sem gert var í n., að það sé möguleiki á því að gera hin einstöku verkefni eða verksvið, sem um ræðir, að sérstakri deild, þannig að ráðh., Í þessu tilfeili sjútvmrh., hefur nú heimild til þess að skapa sérstaka deild, sem hafi með þessi tæknistofnunarmál að gera. Fyrri hluti minnar brtt. er þess vegna aðeins raunverulega ákvæði um, að það skuli setja upp þessa deild. Í öðru lagi er hins vegar seinni hluti till. um það, að á árinu 1967 sé ráðh. heimilt að gera þessa deild að sérstakri stofnun, þannig að ef ráðh. notar þessa heimild, yrðu það þrjár stofnanir, sem heyra undir sjávarútveginn þarna. Það er Hafrannsóknastofnunin, það er Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins og það er Tæknistofnun sjávarútvegsins, sem hefði þá með að gera allar vísindalegar rannsóknir og tilraunir í sambandi við veiðarfæri, veiðitækni, veiðiskip og annað þess háttar. Eins og menn sjá, er þetta það mikið aðgreint efni frá hafrannsóknunum annars vegar og fiskiðnaðinum hins vegar, að ég tel það mjög eðlilegt, en geng þó ekki lengra í þessu en að leggja til, að það skuli aðeins stofnuð sérstök deild fyrst innan Hafrannsóknastofnunarinnar fyrir þetta og það hefur ráðh. raunar samkv. þeim breytingum, sem gerðar voru á síðasta kafla frv., líka heimild til þess að gera, án þess að samþykkt sé gerð um þetta, en hins vegar fái hann heimild til þess að gera þessa deild að sérstakri stofnun. Það varð ekki samkomulag um þetta, en ég vildi engu að síður sýna þessa till.,og náttúrlega fylgi ég frv. alveg jafnt, hvernig sem henni reiðir af. En vafalaust tel ég, að það muni verða með tímanum, að þróunin verði í þessa átt og það hefur nú e.t.v. gert meira hjá mínum meðnm., að þeir vilji sem minnsta röskun gera á þessu frv., til þess að stofna því ekki í neina hættu og það skil ég líka vel og hef að mínu leyti viljað stuðla að því, að svo mætti verða.
Ég er sem sé fylgjandi öllum þeim brtt., sem við flytjum hér sameiginlega í menntmn., og fylgjandi þessu frv. í heild og vil eindregið taka undir áskoranir um það, að við gerum mögulegt að koma þessu frv. nú gegnum þingið, þó að svona áliðið sé orðið. Menntmn. hefur lagt ákaflega mikið starf í þetta mál og ég vona, að það starf megi bera þann árangur, að mönnum þyki þetta frv. nú betra, en það upphaflega var, og samkomulag ætti að vera tryggt um það.