06.05.1965
Efri deild: 82. fundur, 85. löggjafarþing.
Sjá dálk 1638 í B-deild Alþingistíðinda. (1454)

30. mál, rannsóknir í þágu atvinnuveganna

Páll Þorsteinsson:

Herra forseti. Þetta mál er mjög margþætt og eins og frsm. hefur tekið fram, gafst menntmn. þessarar d. lítill tími til þess að athuga þetta mál. Eigi að síður eru allir nm, ásáttir um að greiða fyrir því, að málið í heild nái fram að ganga. En í nál. er tekið fram, að einstakir nm. hafi fyrirvara um einstakar greinar og áskilji sér rétt til þess að flytja eða fylgja brtt.

Ég vil leyfa mér að lýsa því, að ég ásamt hv. 1. þm. Norðurl. e., Karli Kristjánssyni, hef þann fyrirvara, að við viljum fella úr frv. 45. gr. og 53. gr. þess. Í 45. gr. er mælt svo fyrir, að til greiðslu kostnaðar við Rannsóknastofnun iðnaðarins skuli leggja á og innheimta hjá iðnfyrirtækjum, verksmiðjum og verkstæðum sérstakt gjald, 2o/oo af útborguðu kaupi hvers slíks fyrirtækis til verkafólks og fagmanna. Og í 53. gr. er svo fyrir mælt, að af öllu innfluttu timbri, sementi og steypustyrktarjárni skuli greiða 1/2% aðflutningsgjald og 1/2% framleiðslugjald af sementi, sem framleitt er hér á landi og þessi gjöld renni til greiðslu kostnaðar við starfsemi Rannsóknastofnunar byggingaiðnaðarins. Í þessum gr. eru því ákvæði um nýja og sérstaka skattálagningu í þessu skyni. Þó að þessi ákvæði verði felld niður úr frv., fær löggjöfin staðizt og getur orðið framkvæmd eigi að síður. Breytingin yrði aðeins sú, að bein framlög úr ríkissjóði til þessara mála yrðu hærri sem þessu sérstaka skattgjaldi nemur, ef þau yrði fellt niður.

Þar sem þetta er 2. umr. málsins og atkvgr. við 2. umr. er miðuð við, að einstakar gr. séu bornar upp hver í sínu lagi, ef verkast vill, teljum við ekki þörf á að flytja um þetta brtt., heldur mælumst við til þess við hæstv, forseta, að hann hagi atkvgr. þannig, að þessar tvær gr., 45. gr. og 53. gr., verði bornar upp hvor út af fyrir sig, þannig að atkvgr. fáist um þau efnisatriði alveg sjálfstætt.