08.05.1965
Efri deild: 85. fundur, 85. löggjafarþing.
Sjá dálk 1641 í B-deild Alþingistíðinda. (1458)

30. mál, rannsóknir í þágu atvinnuveganna

Menntmrh. (Gylfi Þ. Gíslason):

Herra forseti. Ég skal með ánægju verða við tilmælum um að svara í örfáum orðum þeirri fsp., sem hv. frsm. menntmn. beindi til mín varðandi skilning á 8. gr. og 43. gr. frv.

Það hefur aldrei verið tilætlun ríkisstj. eða þeirra, sem að samningu þessa frv. hafa staðið, að verkefni rannsóknaráðs rækjust á nokkurn hátt á rannsóknarverkefni hinna einstöku rannsóknastofnana og einmitt með hliðsjón af því er annað orðalag á þessum lið 8. gr. um verkefni rannsóknaráðs, en notað er um verkefni hinna einstöku rannsóknastofnana, Það verður að sjálfsögðu hlutverk einstakra rannsóknastofnana að annast þær tæknirannsóknir, sem eru á verksviði hlutaðeigandi stofnunar. Hins vegar er eðlilegt að telja það verkefni rannsóknaráðsins að láta fara fram almennar athuganir t.d. á nýtingu náttúruauðæfa landsins til nýrra atvinnuvega, enda er gert ráð fyrir því, að till. um nýjungar á sviði atvinnuvega og atvinnugreina, sem berast ríkisvaldinu, séu sendar rannsóknaráðinu og segir í 8. gr. í framhaldi af þessu, með leyfi hæstv. forseta: „Og skal það (rannsóknaráðið) beita sér fyrir því að framkvæma tæknilega og þjóðhagslega athugun þeirra, ef það telur þess þörf.“ Það mundi þá að sjálfsögðu verða tæknilegt viðfangsefni hinna einstöku rannsóknastofnana að framkvæma þær tæknilegu eða þjóðhagslegu athuganir, sem um er að ræða, en hins vegar verkefni rannsóknaráðsins að fjalla um till., sem fram koma, að gera sjálft till., fá nýjar hugmyndir eða gera till., sem það síðan beinir til hinna einstöku rannsóknastofnana og þá fylgjast með, hvernig þær inna þessi verkefni af höndum. Þetta er og í fullkomnu samræmi við meginhlutverk rannsóknaráðsins að hafa heildaryfirlit yfir alla rannsóknarstarfsemi í landinu og gefa Alþ. og ríkisstj. á hverjum tíma sem gleggst yfirlit yfir það, í hverju rannsóknarstarfsemin er fólgin, og gera till. um aukningu og eflingu rannsóknarstarfseminnar í heild.

Þetta vona ég, að sé nægilegt til skýringar á því, hvað fyrir höfundum og flytjendum frv. hefur vakað, hvað þetta atriði snertir.