28.04.1965
Neðri deild: 74. fundur, 85. löggjafarþing.
Sjá dálk 1644 í B-deild Alþingistíðinda. (1469)

193. mál, ljósmæðralög

Dómsmrh. (Jóhann Hafstein):

Herra forseti. Þegar var til athugunar og undirbúnings í rn. frv. til l. um hreppstjóra, sem þetta þing hefur haft til meðferðar, kom einnig til álíta, að breyta þyrfti ljósmæðral., sérstaklega varðandi þau ákvæði, sem lúta að launum ljósmæðra. Það hefur því miður dregizt lengur, en ég hafði talið æskilegt að koma þessu frv. á framfæri, en efni þess er í aðalatriðum það að færa ljósmæðral. til samræmis við þau ákvæði, sem fólust í frv. til hreppstjóralaga á sínum tíma, og verður að telja, að það hafi verið eðlileg ráðstöfun og að sumu leyti ekki ósambærileg og hafi áður verið nokkurt samræmi á milli þessara launaflokka, ef svo mætti segja. Það hefur að vísu komið til álíta að gera meiri breytingar á löggjöfinni, en þótti samt sem áður ekki tímabært, enda liggja ekki fyrir þær till. frá sýslunefndum og sýslumönnum, sem æskilegt væri, áður en til skipulagsbreytingar á umdæmum ljósmæðranna kæmi, sem þó hefur verið nokkuð til athugunar.

Ég vil mega leggja til, að frv. verði að lokinni þessari umr, vísað til 2. umr. og hv. heilbr.– og félmn.