10.05.1965
Efri deild: 88. fundur, 85. löggjafarþing.
Sjá dálk 1648 í B-deild Alþingistíðinda. (1493)
167. mál, bann við okri
Menntmrh. (Gylfi Þ. Gíslason):
Herra forseti. Flutningur þessa frv. stendur í nánu sambandi við tvö önnur frv., sem ég fyrir helgina mælti fyrir í þessari hv. d. og eru komin hingað frá hv. Nd., þar sem þetta frv., eins og hin tvö, hafði verið samþ. með shlj. atkv. að fengnum einróma meðmælum hv. fjhn. Nd. En þetta frv., eins og hin tvö, sem fjölluðu um breyt. á l. um víxla og tékka, stendur í sambandi við þá ákvörðun Seðlabankans um s.l. áramót að ákveða hækkun á dráttarvöxtum í því skyni að stuðla að aukinni skilvísi við skuldagreiðslur.
Í l. um bann við okri, dráttarvexti o.fl. frá 1960 er vísað varðandi hæð dráttarvaxta í lagaákvæði um Seðlabankann frá 1957, nú frá 1961, nema í þeirri gr., sem fjallar um dráttarvextina og kynni því að leika einhver vafi á því, hvort vaxtaákvörðun Seðlabankans varðandi dráttarvexti tæki einnig til þeirra tilvika, sem um er fjallað í okurlögunum, að því er dráttarvexti snertir. Til þess að taka af öll tvímæli um þetta, hefur Seðlabankanum og bönkunum öllum þótt öruggara, að þetta frv. væri flutt, til þess sem sagt að enginn vafi léki á því, að dráttarvaxtaákvörðun Seðlabankans samkv. núgildandi l. taki einnig til þeirra tilvika, sem við er átt í dráttarvaxtagrein okurl. — Að svo mæltu vil ég leyfa mér að óska þess, herra forseti, að málinu verði vísað til 2. umr. og hv. fjhn.