10.05.1965
Efri deild: 88. fundur, 85. löggjafarþing.
Sjá dálk 1651 í B-deild Alþingistíðinda. (1509)
197. mál, bankavaxtabréf
Menntmrh. (Gylfi Þ. Gíslason):
Herra forseti. Þetta frv. er komið frá hv. Nd., þar sem það var afgreitt samhljóða að fengnum meðmælum hv. fjhn. deildarinnar.
Eins og kunnugt er, var útgáfa bankavaxtabréfa af hálfu veðdeildar Landsbanka Íslands um áratugi helzta aðstoð við húsbyggjendur, til þess að þeir fengju fé til byggingarframkvæmda. Á undanförnum árum eða áratugum hefur útvegun fjár til fasteignakaupa og bygginga beinzt inn á aðrar brautir, þannig að hlutverk veðdeildar Landsbanka Íslands er nú miklu minna, en það var áður um áratugaskeið. Engu að síður er ávallt einhver eftirspurn eftir bankavaxtabréfum af hálfu húsbyggjenda, ekki hvað sízt til þess að standa straum af kostnaði við viðhald og endurbætur á húsum og hefur bankastjórn Landsbanka Íslands óskað eftir því að hafa áfram skilyrði til þess að gefa út bankavaxtabréf og veita þeim, sem eftir kaupum þeirra kynnu að óska, aðstoð á þennan hátt. En l. um veðdeild Landsbanka Íslands, þar sem er fólgin heimild um útgáfu bankavaxtabréfa, eru frá árinu 1945 og nú alveg nýlega er svo komið, að bankinn hefur að fullu notað allar heimildir, sem í þessum 20 ára gömlu l. eru til þess að gefa út bankavaxtabréf og hefur þess vegna óskað eftir því, að þessi heimild yrði endurnýjuð. Ef þetta frv. næði ekki fram að ganga, gæti bankinn t.d. í sumar ekki gefið út nein ný bankavaxtabréf til þeirra, sem eftir kaupum slikra bréfa kynnu að óska. Það er að vísu ekki mikið um það, en nokkuð er þó um það og mjög eðlilegt, að bankinn hafi slíkar heimildir áfram. Þess vegna hefur þetta frv. verið flutt að mjög eindreginni ósk stjórnar Landsbanka Íslands, en í því felst heimild til veðdeildar bankans um að gefa út bankavaxtabréf allt að 100 millj. kr. Þær reglur, sem um útgáfu þessara bréfa er ætlað að gilda, eru nákvæmlega þær sömu og undanfarna áratugi hafa gilt um þessa útgáfustarfsemi veðdeildar Landsbanka Íslands á bankavaxtabréfum.
Að svo mæltu leyfi ég mér, herra forseti, að leggja til, að málinu verði vísað til 2. umr. að lokinni þessari umr. og til hv. fjhn.