11.05.1965
Efri deild: 89. fundur, 85. löggjafarþing.
Sjá dálk 1652 í B-deild Alþingistíðinda. (1511)

197. mál, bankavaxtabréf

Frsm. (Ólafur Björnsson):

Herra forseti. Eins og fram kemur í grg. fyrir þessu frv., hefur veðdeild Landsbanka Íslands nú að fullu notað þær heimildir, sem hún hefur til útgáfu bankavaxtabréfa, en bankavaxtabréfin hafa til skamms tíma verið undirstaða þeirra lána, sem veitt hafa verið, á vegum deildarinnar. Eins og einnig kemur fram í grg., eru það ýmsir aðilar, sem þörf hafa fyrir fasteignaveðslán, sem lítt hafa aðgang að öðrum lánum en þeim, sem veitt eru á vegum veðdeildarinnar.

Fjhn. hefur haft þetta frv. til athugunar og fallizt á þau rök, sem hníga að því, að réttmætt sé að setja slíka löggjöf, og eins og nál. á þskj. 730 ber með sér, mælir hún einróma með því, að frv. verði samþ. óbreytt.