11.05.1965
Neðri deild: 88. fundur, 85. löggjafarþing.
Sjá dálk 1673 í B-deild Alþingistíðinda. (1542)

199. mál, lántaka til vegaframkvæmda

Landbrh. (Ingólfur Jónsson):

Herra forseti. Það eru aðeins örfá orð. Mér þykir ákaflega leiðinlegt, hvað hv. 3. þm. Vesturl. þykist vita lítið í dag. Það stendur við það, sem ég sagði, að vegáætluninni verður ekki breytt nema með lögum. Það er alveg rétt. Það er engin heimild í vegáætluninni til þess að lækka framkvæmdir. En það er heimild í 22. gr. fjárl. fyrir árið 1965 fyrir ríkisstj. til þess að fresta framkvæmdum á árinu og ég er alveg sannfærður um það, að hv. 3. þm. Vesturl., sem er fjvn.-maður, veit um þessa heimild, þó að hann hér í dag þykist ekkert vita og mér finnst þetta ekki sæmilegt og alveg ástæðulaust, ekkert á því að græða fyrir hv. þm., ekki nokkurn hlut, tilgangslaust.

Hv. 1. þm. Norðurl, v. er við sama heygarðshornið og vitnar nú hér í till. til vegáætlunar, þar sem sagt er, að um samin og föst lán til Reykjanesbrautar séu 130.9 millj. kr. Það er rétt, það stendur þarna. Eigi að síður er hluti af þessu bráðabirgðalán til örstutts tíma frá Aðalverktökum og það er það, sem á að breyta. Það á að breyta þessum lánum í lengri lán, og það á að afla heimildar fyrir því, sem vantar á vegaframkvæmdirnar, þegar það liggur fyrir í haust, eftir að búið er að steypa veginn, hve mikið vantar. Það verður gert og það getur hv. þm. verið alveg viss um, að það er ekki gert ráð fyrir að brjóta þar lög.

Hv. þm. talar um, að mér sýnist ekki ástæða til að leiðrétta skekkjur. Ég sé ekki, að þó að það sé fengin þarna heimild til Ennisvegar, sem er óþörf, geti nokkurn hlut sakað eða neinu breytt, þótt það standi í frv. Það er engin ástæða til þess. Sú skekkja er algerlega saklaus og engum að meini, og ég hafði haldið, að hún væri ekkert að meini hv. 1. þm. Norðurl. v. heldur.

Svo vil ég taka undir með hv. þm. um það, að það er erfið vegagerð á Vestfjörðum og Ströndum og kannske eðlilegt, að það sé ekki öllu lokið. En ég vil þó vekja athygli á því, að það er ekki langt síðan farið var fram á lánsheimild til vegaframkvæmda á þessum stað. Það var ekki fyrr, en framsóknarmenn hv. voru farnir úr ríkisstj. og farið var að gera kröfur á hendur núv. stjórn, og ég hef mikla samúð með þeim á Ströndum og annars staðar, þar sem erfitt er um vegaframkvæmdir, að það verði nú hægt að hjálpa þeim.