08.05.1965
Efri deild: 85. fundur, 85. löggjafarþing.
Sjá dálk 1714 í B-deild Alþingistíðinda. (1577)

201. mál, Landsvirkjun

Frsm. 1. minni hl. (Björn Jónsson):

Herra forseti. Þetta mál verður varla rætt svo hér á hv. Alþ., að ekki sé mótmælt harðlega þeirri málsmeðferð, sem hæstv. ríkisstj. hefur í frammi varðandi slíkt stórmál sem hér er á ferðinni. Hitt er að sönnu ekkert einsdæmi um þetta mál, heldur velflest mál, sem verið er nú að afgreiða hér síðustu þingdagana, að þm, er ekki gefinn neinn kostur á að kynna sér málin, fá um þau réttar upplýsingar, ræða þau, fjalla sómasamlega um þau í þingnefndum né bera sig saman um afgreiðslu þeirra á þingflokkafundum. Hverjum þskj.- bunkanum af öðrum hefur verið dengt á borðin hér í hv. þd., sumum að lesmáli á við þykkar bækur, en þm., sem flestir sitja á nefnda- og þingfundum frá morgni til kvölds, er ekki einu sinni gert fært að lesa þau, áður en þess er krafizt af þeim, að þeir afgr. þau með atkvgr. Grunur minn er sá, að það sé ekki orðið fátítt nú orðið, að hv. þm. hafi alls ekki lesið þau lagafrv., sem þeim er gert að samþ. eða jafnvel viti alls ekki um aðalefni þeirra. Þetta er ljótt til frásagnar, en því miður sönn lýsing á því, hvernig hæstv. ríkisstj. misbýður virðingu Alþ. og lítillækkar stuðningslið sitt sérstaklega, því að þar ofbjóða mönnum auðvitað engu síður vinnubrögðin, en stjórnarandstöðunni, þó að þar verði menn að bera harm sinn í hljóði yfir þessum vinnubrögðum eða þá bak við vandræðaleg bros, þegar úr öllu hófi keyrir. Þessi vinnubrögð koma svo auðvitað harðast niður á þeim málum, sem eru stærst í sniðum og mikilvægust og jafnframt flóknust og krefjast mestrar athugunar, upplýsinga og þekkingar, málum eins og því, sem hér er til umr. Þm. hefur að vísu gefizt tóm til að lesa þetta frv. og e.t.v. grg., a.m.k. þeim, sem hafa getað fórnað til þess matmálstímum eða einhverju af svefntíma sínum. En um nokkra viðhlítandi athugun hefur þó ekki getað verið að ræða. Hér er um svo margvíslega málþætti að ræða og flókna., að færum sérfræðingum hefði ekki veitt af a.m.k. vikutíma til þess að komast sæmilega niður í þeim og geta myndað sér einhverja sómasamlega, rökstudda skoðun á öllum málsatriðum, en til þessa verks hafa okkur þm. verið ætlaðar klukkustundir, en ekki dagar.

Ég tel mér skylt við þetta tækifæri að mótmæla þessum vinnubrögðum. Þetta, sem ég hef nú sagt, hefði þó verið sök sér, ef sá örstutti tími, sem hefur verið til þess að athuga þetta frv., hefði verið notaður af ráðh. og sérfræðingum hæstv. ríkisstj. til þess að ganga sem maður undir manns hönd til þess að upplýsa okkur, sem erum algerir leikmenn í þessum málum, um málið. En því hefur sízt verið að heilsa. Menn heyrðu hér við 1. umr. ræðu hæstv. raforkumálaráðh. Ég spyr hv. þdm.: Hver fræddist af henni? Ég held, að það hafi áreiðanlega enginn verið. Þar var ekki um annað að ræða en tætingslegan upplestur á frvgr. og smáglefsum úr grg. Það var það eina, sem hann hafði fram að færa. Þar mátti með sanni segja, að blindur leiddi blindan, þar sem þessi hæstv. ráðh. fór fyrir liði sínu í þessu máli. Sjálfsagt veit hæstv. ráðh. þó mikið um þetta mál, en honum tókst þó að leyna þeirri þekkingu sinni mjög vandlega við þessa umr. málsins. Við þessa frammistöðu sína hefur hæstv. ráðh. svo bætt að láta sérfræðinga sína neita að gefa þingn. upplýsingar, sem allir vita þó að liggja fyrir og síðast á fundi hv. fjhn. í gærkvöld var enn farið fram á það að fá þessar upplýsingar, þ.e.a.s. um rekstraráætlun þess fyrirtækis, sem hér á að stofna til og hæstv. fjmrh. innti samráðh. sinn, sem nú er orðinn, um þetta þegar miðnætti var að nálgast í gærkvöld og allur tími var að verða þrotinn, en það var algert nei. Hér var þó um plagg að ræða, sem ég hef upplýsingar um, að hafi verið lagt fyrir borgarráð Reykjavíkur, en þingn., sem á að fjalla um þetta mál, og hv. þd. virðast vera settar skör lægra, en meðlimir borgarstjórnar Reykjavíkur í þessu máli og þykir mér það miklum tíðindum sæta.

En sérfræðingarnir, sem voru kvaddir á fund fjhn., eins og hv. frsm. gat um, var þá ekki gott til þeirra að leita um upplýsingar varðandi frv.? Ég ætla mér a.m.k. ekki að hæla því. Ég fékk þar a.m.k. ekki nein viðhlítandi svör við þeim spurningum, sem ég lagði fyrir þá og fór ekki fróðari af þeirra fundi, nema þá um það, hversu þetta mál er allt illa undirbúið og hversu reynt er, að því er virðist af ráðnum hug, að leyna bæði þing og þjóð réttum upplýsingum, sem varða miklu um ákvarðanir í þessu máli, sem hér er á ferðinni. En ég kem nánar að þessu síðar í sambandi við ýmis málsatriði, en sný mér þá að því að gera grein fyrir því, hvernig þetta mál horfir við frá mínu sjónarmiði og miðað við þá athugun, sem ég hef á stuttum tíma verið að reyna að gera og þá jafnframt miðað við þær upplýsingar, sem fyrir hendi eru, og jafnvel ekki síður þær upplýsingar, sem bæði mig og líklega alla nema einhverja útvalda skortir til þess að geta kveðið upp úr um öll atriði varðandi þetta mál.

Mér sýnist, að stærstu atriðin í sambandi við þetta frv. séu fjögur. Það er í fyrsta lagi það, að ákveðið er óafturkallanlega, að Búrfell við Þjórsá verði valið sem virkjunarstaður til þess að leysa, a.m.k. á næstu áratugum, raforkuþörf Suður- og Suðvesturlands. Í öðru lagi, að heimiluð verði þegar í stað svo stór virkjun, að mögulegt verði að gera orkusölusamning við erlendan auðhring vegna alúminíumbræðslu. Í þriðja lagi að taka upp algerlega nýja skipan í raforkumálum þjóðarinnar í framtíðinni, þ. á m. um yfirstjórn þeirra mála, sem nú er að verulegu leyti með þessu frv. tekin úr höndum Alþingis, ríkisstj. og raforkumálastjórnar og fengin í hendur borgarstjórnar Reykjavíkur. Í fjórða lagi, að ný stefna er tekin upp varðandi verðlagningu á raforku og stefnt að því að selja Íslendingum raforku jafnvel á þreföldu kostnaðarverði, um leið og verið er að vinna að því að gera samninga um að selja erlendum aðilum meginhluta orkunnar frá hinni nýju virkjun undir kostnaðarverði. Er þá rétt að snúa sér að því að athuga hvert þessara stóru atriða í sambandi við þetta mál, eftir því sem tök eru á og það er þá fyrst staðarvalið.

Það er vissulega rétt. sem fram hefur komið, að það átak, sem nú á að gera í orkumálum þjóðarinnar, er stórt, eftir kyrrstöðutímabil, sem að margra dómi er orðið of langt í okkar raforkumálum og eftir að orkumarkaðurinn er orðinn það stór, að raunverulega er komið þar í algjör þrot og málunum aðeins bjargað með varastöðvum, sem eru dýrar í rekstri og óhentugar, þegar til lengdar lætur. En það hefur verið sýnt fram á það í þessum umr. og því voru gerð sérstaklega góð skil hjá hv. 6. þm. Sunnl. (HB) við 1. umr. málsins, að þetta átak sé alls ekki stærra, en ýmis önnur, sem við höfum gert í orkumálum okkar á undanförnum árum og áratugum, þegar tillit er tekið til allra aðstæðna. Það hefur yfirleitt verið um að ræða að tvöfalda þá orku, virkja og tvöfalda þá orku, sem áður var fyrir hendi og stundum meira. Þannig hefur það verið á virkjunarsvæði Sogsvirkjunarinnar, þannig hefur það verið á virkjunarsvæði Laxárvirkjunarinnar og yfirleitt hefur þróunin verið sú í þessum málum, að orkan hefur verið tvöfölduð á um það bil 10 árum. Hér er þó ekki a.m.k. víst, að um það sé að ræða að tvöfalda orkuna við það, sem hún er og strax frá því sjónarmiði séð er hér ekki um stærra átak, en áður hefur verið að ræða. Og þegar tekið er tillit til annarra aðstæðna, svo sem orkumarkaðarins, sem fyrir hendi er og bætts efnahags þjóðarinnar, sést enn betur, sem ég ætla ekki að fara nánar út f, að hér er ekki um neitt risavaxnara skref að ræða, en ýmis þeirra, sem áður hafa verið stigin.

Það er í raun og veru sérstök ástæða til þess að gefa þessum samanburði gaum, m.a. þeim, sem hv. 6. þm. Sunnl. gerði hér við 1. umr. um þetta og þá er rétt að hafa það í huga í sambandi við alúminíum-vitleysuna, sem hæstv. ríkisstj. hefur fengið á heilann í staðinn fyrir raforkumálin, að við höfum ekki, þrátt fyrir alveg sambærileg átök í raforkumálunum á undanförnum áratugum, þurft að gera nokkrar samhliða efnahagslegar aðgerðir, sem á nokkurn hátt hafa veríð annarlegar, í sambandi við þau átök né höfum við heldur þurft að sæta neinum afarkostum varðandi lánskjör eða annað því um líkt og því verður naumast trúað öðru ,en slíkt sé enn mögulegt, þar sem um sambærilegt átak og sambærilegar framkvæmdir er að ræða við hinar fyrri. Og sízt ætti það að vera hald þeirra manna, sem mest guma af því nú síðustu árin, að traust þjóðarinnar hafi farið stórbatnandi út á við, að svo sé komið, að við þurfum nú að sæta einhverjum annarlegum kostum í sambandi við lánskjör og annað því um líkt, ef við ætlum að virkja til okkar eigin þarfa.

En engu að síður, þó að allur þessi samanburður sé réttur, er það samt sem áður ljóst, að hér er um geysistórt fyrirtæki að ræða á okkar mælikvarða og sjálfsagt það stærsta, sem við höfum reist fram að þessu og byrjunarframkvæmdir mundu varla verða mikið undir 1 milljarði kr., þó að framkvæmdirnar væru miðaðar við þarfir Íslendinga einna, og þess vegna er það, að það er auðvitað ákaflega mikilvægt, að valin sé hagstæðasta virkjunarleiðin, sem fyrir hendi er, jafnvel þó að við síðar þurfum að fara aðrar virkjunarleiðir, sem væru að einhverju leyti dýrari og mætti út frá því sjónarmiði segja, að það skipti kannske ekki höfuðmáli, hvort endilega sú langódýrasta virkjun væri fyrst valin. Gefur það auðvitað auga leið, að sú virkjun, sem við ráðumst í fyrst, hefur lengstan starfstíma og þannig myndast auðvitað hagnaður af því að velja hagstæðustu leiðina og þá kemur spurningin í sambandi við þetta frv.: Er Búrfellsvirkjun hagstæðasta virkjunin nú miðað við þarfir okkar Íslendinga og er þessi virkjun svo traustlega undirbúin, að fullsannað sé, að hún komi ein til greina? Það er sjálfsagt strax hægt að fullyrða, að það er samdóma skoðun, sem mikið tillit ber að taka til, allra sérfræðinga, að virkjun við Búrfell sé ein hagkvæmasta virkjunin, ef ráðizt er í virkjanir í stórám landsins. En það er líka jafnljóst, að ýmsar aðrar virkjanir, sem til greina geta komið til þess að leysa raforkuþarfir þjóðarinnar allra næstu framtíð, eru einnig mjög hagstæðar og þannig er t.d. um svonefndar smávirkjanir, sem þó eru stórvirkjanir að eldra mati, sem nú eru algerlega fullrannsakaðar og fyrir liggja alveg óyggjandi upplýsingar um, að engin vandkvæði eru á að virkja. Þannig er t.d. um þær virkjanir, sem teknar eru inn í ýmsar samanburðartöflur í grg. þessa frv. og fleiri plöggum, sem þm. hafa fengið í hendur um þetta, um virkjanir eins og Kláffoss í Borgarfirði, um virkjun við jarðgufustöð í Hveragerði og um virkjun í Brúará við Efstadal, en þessar 3 virkjanir samanlagðar mundu verða um 65 megawött, eða því sem næst jafnstórar samanlagt og fyrsti áfangi Búrfellsvirkjunar yrði til innlendra nota, en hann er talinn vera 70 megawött. Og þegar athuguð er hagkvæmni virkjunarstaðarins, hefur það verið svo að undanförnu, að það hefur fyrst og fremst verið miðað við þessar virkjanir annars vegar og hins vegar við Búrfellsvirkjun eða þessar virkjanir að einhverju leyti og síðan Búrfellsvirkjun og það er þess vegna rétt að athuga þennan samanburð, svo mikið sem úr honum hefur verið gert, nánar og reyna að gera sér grein fyrir því, hversu traustur sá samanburður er, sem hefur verið gerður af sérfræðingum ríkisstj. í þessu máli.

Í grg. svokallaðrar tækninefndar, sem er dags. í okt. 1964, eru lokaorð þeirrar grg. á þá leið, að þegar litið sé til 15 ára, segir orðrétt þar, að ég held, að niðurstaðan sé sú, miðað við forsendur, að virkjun við Búrfell jafnhlíða alúminíumbræðslu spari 800 millj. kr. samanborið við smávirkjanaleiðina og um 400 millj, kr. samanborið við Búrfellsvirkjun án alúminíumbræðslu. Þetta er á bls. 5 í þessari grg., en smávirkjanaleiðin, sem þarna er talað um, var á þá leið, að fyrst yrði virkjað í Hveragerði, þá Ljósafoss, þá Kláffoss og þá Efstadalsvirkjun í Brúará og loks Búrfellsvirkjun, þ.e.a.s. þá Búrfellsvirkjun án alúminíumbræðslu.

Eftir að þessi skýrsla birtist mönnum og er farið var að athuga hana, þá varð fljótlega ljóst, að þessi samanburður var alrangur og þoldi raunar ekki, að við honum væri ýtt með litlafingri, því að með því að breyta röðinni á smávirkjunum og gera augljósar leiðréttingar á skekkjum lækkaði mismunurinn strax úr 800 millj. kr. í 400 millj. kr.

Ef til vill var útreikningurinn sjálfur réttur reikningslega, en forsendurnar rangar og eins og kunnugt er, þá er hægt að reikna út hvaða hluti sem maður vill reikna út og vill fá út, ef nægilega vitlausar forsendur eru settar inn í dæmið. Það var sem sé auðsætt af þessum samanburði, að óskhyggja ráðamannanna réð um útkomuna. Það var talið bráðnauðsynlegt að sanna það, að Búrfellsvirkjun hentaði til alúminíumvinnslu og að hún væri jafnframt sú eina, sem kæmi til greina fyrir Íslendinga. Þetta varð að fara saman til að fullnægja óskhyggju hæstv. ríkisstjórnar.

En þessar blekkingar, sem þarna voru hafðar í frammi í sambandi við 800 millj. kr. sparnaðinn, voru svo auðsæjar, að fljótlega var horfið frá þeim. Og það má sjá núna í grg. frv., ef við flettum upp á bls. 18, að tækninefndin, eða a.m.k. sérfræðingar ríkisstj., — ég geri ráð fyrir, að þeir hafi verið þeir sömu, það er ekki ástæða til, að ríkisstj. skipti um svo ágæta sérfræðinga, — þá segir í grg. á bls. 18, að á árunum 1969–1975, „til ársloka 1975, spara notendur þannig um 100 millj. kr., ef ráðizt er í Búrfellsvirkjun með 60 þús. tonna alúminíumbræðslu í stað smávirkjana eða að meðaltali rúmar 14 millj. kr. á ári, en það er um 19% af áætluðum gjöldum til Sogsvirkjunar,“ o.s.frv. Síðan segir: „Á árunum 1976 –1983 eru árleg útgjöld 22.5 millj. kr. hærri en í kosti B. 1. Við þann mun ber að bæta verðmæti þeirra 170 + 60 = 230 Gwh. sem Búrfell hefur umfram smávirkjanir í árslok 1975 (sjá töflu 4 og 5). Sé þessi orka metin á 5 aura kwst., sem er mjög lágt, þá hækkar framangreindur 22.5 millj, kr. mismunur á ári í 34 millj. kr. Þetta jafngildir, að á árunum 1976–1983 verði notendur fyrir um 335 millj. kr. meiri útgjöldum vegna viðbótarorku áranna 1965–1975, ef smávirkjanaleiðin er farin og kemur sú upphæð til viðbótar við áðurnefndar 100 millj. kr. frá árunum 1969–1975.“

Þarna er sem sagt reiknað með því, að sparnaðurinn, sem í okt. s.l. var talinn 800 millj., verði ekki nema 435. Og nú er það strax alveg auðséð af öðrum vinnubrögðum tæknifræðinga um þessi mál,og ég hef reyndar leitað upplýsinga um það hjá svo fróðum mönnum, að þeirra umsögn verður varla vefengd um það, að í slíkum samanburði er aldrei tekin með umframorka, eins og þarna er gert, en þarna er farið að meta umframorku, sem engin vissa er fyrir, hvort er seljanleg eða ekki, þannig að mismunurinn lækkar þá strax við það um 34 millj. og er þá kominn í 401 millj. eða réttan helming af því, sem þetta var í október. Geta allir af þessu séð, hvað þessir útreikningar hafa verið traustir þá. Og varla hefur þessi breyting stafað af því, að vatnsföllin hafi hreytt sér eða nokkrar aðstæður þar. Og ótrúlegt er, að það sé svo miklu óhagstæðara, eins og af því er látið, hvað það sé hagstætt fyrir okkur að setja upp alúminíumvinnslu, að samanburðurinn breytist svona til óhagræðis fyrir stórvirkjunarleiðina, þegar farið er að reikna með 60 þús. tonna alúminíumbræðslu eða jafnvel 66 þús. tonna í staðinn fyrir 30 áður. Varla getur það verið ástæðan, — eða hvað?

Þá kemur spurningin um það, hvort samanburðurinn nú sé orðinn það góður og traustur, að við getum svo að segja blindandi trúað því, að hann eigi ekki enn eftir að breytast, t.d. á næstu 4–5 mánuðum, eins og hann hefur verið að breytast núna að undanförnu.

Um greinargerðirnar, sem frv. fylgja, vil ég segja það, að fyrir mig með þeim tíma, sem ég hef haft til þess, er ekki nokkur leið til þess að átta sig á þeim öllum, eða lesa þær niður í kjölinn. En af svona smákönnunum, sem reynt hefur verið að gera á því, hve mikið samræmi er í útreikningunum og hvað þeir eru traustvekjandi, þá fullyrði ég, að það sé engin ástæða, nema síður sé, til þess að fulltreysta nú frekar, en áður þeim útreikningum, sem hér eru sýndir.

Ég ætla aðeins að leyfa mér að nefna um þetta örfá dæmi og tel ég þó víst, að þau séu miklu fleiri, vegna þess að það hafa alls ekki, eins og ég sagði, verið nein tök á því að gera sér fulla grein fyrir öllum þeim tölum, sem við erum þarna mataðir á og eigum að gleypa viðstöðulaust.

Eins og ég sagði áðan, var á s.l. hausti, fyrst og fremst í samanburðarútreikningum, reiknað með 30 þús. tonna alúminíumveri, sem urðu 60 þús. tonn síðar og er víðast hvar reiknað með því.

Á bls. 17 í töflu 3 er gert ráð fyrir því, að afköst bræðslunnar geti farið í 66 þús. tonn á ári, sem þýðir skv. nýjustu upplýsingum, eins og þar segir, að hver keraröð eða potline þarf 63 megavött í stað 55 og 505 millj. kw st. í stað 470, sem tækninefnd reiknaði með. Þ.e.a.s. orkuþörfin hjá fyrirtækinu hefur þannig aukizt úr 470 millj. kwst, í 505 millj. kwst.

Þetta er aðeins lítið dæmi um vinnubrögð tækninefndarinnar og nákvæmnina, sem er í öllum útreikningunum. Og eins og ég sagði, þá lýsir þessi nákvæmni sér allt í gegnum þau plögg, sem hér liggja fyrir.

Ég vil nefna annað lítið dæmi. Það er reiknað með því núna, ef alúminíumverið verður reist, að af 210 megavöttum fái Íslendingar 84 megavött, 126 eiga að fara til alúminíumvinnslunnar.

Í töflu 1 í grg. er orkuvinnslan, miðað við fyrsta stig, 105 megavött, reiknuð 850 millj. kwst., en á bls. 19 er reiknað með, að þessi orkuvinnslugeta sé 910 millj. kwst. Miðað við 210 megavött, þá er reiknað með, að þessi orkuvinnslugeta sé, — það eru nú þrjár útgáfur af því, hvað orkuvinnslugetan sé, miðað við 210 megavött, því að á bls. 15 er hún reiknuð 1.635 millj. kwst., á bls. 6 er hún reiknuð 1.700 og á bls. 20 1.730. Það er engu líkara en þeim, sem sömdu grg., hafi vaxið ásmegin, eftir því sem leið á hana, um getu fyrirtækisins. Þetta er enn eitt dæmið um nákvæmnina, sem lýsir sér í þeim plöggum, sem við höfum hér fyrir okkur.

Það er svo enn eitt dæmið um það, hvernig tækninefnd hefur unnið, sem ég ætla annars ekki að fara langt út í, að eftir að tækninefnd hafði skilað álíti sínu í okt. s.l. og m.a. fullyrt, að það væri hagkvæmasta lausnin í raforkumálum Norðlendinga, að lína yrði lögð frá Búrfelli og Laxá yrði ekki virkjuð fyrr en eftir að mig minnir 20 ár, gerði einn af þeim mönnum, sem störfuðu í tækninefndinni, skömmu siðar útreikninga fyrir Laxárvirkjunastjórn nánar á þessu atriði og sannaðist fyrir tilstilli hans, að miklu hagkvæmara var fyrir Norðlendinga að leysa sin raforkumál með því að virkja. tiltölulega smáa virkjun í Laxá, en að þiggja rafmagn gegnum linu yfir hálendi Íslands frá Búrfellsvirkjun.

Ég verð strax að segja það, að þessar nýju skýrslur eru sízt til þess fallnar að vekja mikið traust og raunar ekki frekar, en hinar fyrri, sem nú hefur verið gerbreytt í mörgum atriðum.

En lítum þá ofurlítið nánar aftur á þá virkjunarkosti, sem fyrir hendi eru. Eins og ég sagði áðan, er skv. þessum útreikningum, sem nú eru gerðir, mismunurinn á hagkvæmni Búrfellsvirkjunarinnar miðað við alúminíumbræðslu og smávirkjanaaðferðina talinn 400 millj. kr. En aftur er þessi mismunur annars vegar á smávirkjanaleiðinni og Búrfelli án alúminíumbræðslu reiknaður 360 millj. kr. á 16 árum. — Það er á bls. 19 í grg. En þar segir þó, að það megi bæta smávirkjanaleiðina með millileið, þ.e.a.s. með því að taka aðeins tvær þeirra fyrst, en síðan Búrfellsvirkjun, en ekki þrjár, eins og gert er ráð fyrir í samanburðinum. Og það er líka auðsætt strax og þarf ekki fagmann til, að þessa leið má einnig bæta, kannske ekki stórkostlega, en eitthvað, með því að breyta röðinni á virkjununum, því að hagkvæmasti virkjunarkosturinn er alls ekki tekinn fyrst, heldur sá, sem er nokkru óhagstæðari.

En inn í þennan samanburð vantar sitt af hverju. Það vantar sitt af hverju inn í dæmið, til þess að það sé fullreiknað og það eru alls ekki teknar allar þær forsendur, sem ber að taka tillit til.

Það er þá fyrst að nefna, sem ekki er kannske ýkja stórvægilegt, en kynni þó að vega nokkuð, — ég þori ekki að nefna neinar tölur í því sambandi, — að það er auðvitað greinilegur kostur við smávirkjanaleiðina, að þær koma hver um sig miklu fyrr að gagni heldur en, stórvirkjun við Búrfell og spara þannig dýra orkuframleiðslu með varaaflstöðvum, sem annars verður að nota í sívaxandi mæli, a.m.k. um næsta þriggja ára skeið. En það vantar þá líka kannske það, sem er þýðingarmest í þessu sambandi, að allar virkjanir, sem verða virkjaðar eftir Búrfellsvirkjun og eftir smávirkjanaleiðina, verða dýrari. Það er samróma álít manna, að þessar virkjanir, sem teknar eru hér í samanburði, annars vegar Búrfell og hins vegar smávirkjanirnar, séu hagkvæmustu og ódýrustu virkjanirnar, sem við eigum nú kost á. En hitt liggur líka fyrir, að á næstu 20 árum þurfum við að virkja til okkar eigin þarfa einhvers staðar á milli 300 og 400 megavatta virkjanir auk Búrfellsvirkjunar, og er þá auðsætt, að ef við höfum eytt dýrmætasta vatnsaflinu til þess að selja það útlendingum undir kostnaðarverði, verður óhagræði að því, þegar til lengri tíma er litið. En allur samanburður, sem gerður er hér, er aðeins gerður til 15 ára og áreiðanlega er sá tími valinn einmitt með tilliti til þess, að hann sýnir sem laklegasta útkomu fyrir aðrar leiðir en þær, sem hæstv. ríkisstj. þykir passa fyrir sína pólitísku stefnu í orkumálum.

Þá er þess einnig að geta, að í þessum samanburði öllum er ekki talinn, a.m.k. nema þá að mjög litlu leyti og jafnvel alls ekki, ýmislegur kostnaður, sem samfara er Búrfellsleiðinni, t.d. ekki sá, sem leiðir af olíunotkun í varastöðvar, ef um teljandi truflanir verður að ræða í rekstri Búrfells, en við því búast margir. En við skulum gera ráð fyrir því í bili a.m.k., að útreikningarnir séu í öllum aðalatriðum réttir, þ.e.a.s. þessir útreikningar, sem sýna það, að við spörum á því að velja Búrfell frá 360 millj. kr. til 400 millj., þ.e.a.s. að útreikningarnir séu réttir miðað við það, að forsendurnar séu réttar og skulum við ganga út frá því. En þá er nauðsynlegt líka að athuga vel, hvort þær forsendur, sem sérfræðingarnir gefa sér, eru að öllu leyti óyggjandi. Og svar mitt við því a.m.k. er neitandi. Forsendurnar, sem útreikningarnir eru byggðir á, eru ekki traustvekjandi. Og er það þá fyrst til að nefna, að enginn veit nú með nokkurri vissu, hvað Búrfellsvirkjunin, búin þeim mannvirkjum, sem þar þarf að reisa, til þess að rekstur hennar sé tryggur, hvað þessi mannvirki kosta og ástæðurnar fyrir því, að þetta liggur ekki fyrir nú í dag, eru m.a. þær, að einn liðurinn, sem getur orðið mjög stór í virkjunarkostnaðinum, er enn á rannsóknarstigi og meira að segja þannig á rannsóknarstigi, að rannsóknir eru komnar mjög skammt á veg, en þarna á ég við ísvandamál. Það er kunnugt, að lengi vel létu ríkisstj. og það fyrirtæki, sem hún hefur aðallega stuðzt við í öllum áætlunum varðandi þessar framkvæmdir, Harza, yfirleitt svo sem ísvandamál væri ekki til í Þjórsá. En ég sé það nú, þótt ég hafi ekki haft tíma til annars en fletta örlítið þeirri stóru bók upp á mörg hundruð blaðsíður, sem er skýrsla fyrirtækisins um virkjunina, að þeir eru komnir nú á aðra skoðun og ég get ekki betur séð, en það álít, sem þeir hafa þar á ísvandamálinu, sé mjög svipað því, sem Sigurður Thoroddsen hefur látið í ljós. En Harza nefnir einmitt í þessari skýrslu sinni, að e.t.v. sé ísvandamálið meira í Þjórsá, en í nokkurri annarri á veraldar og það er kunnugt, að Sigurður Thoroddsen hefur einnig haldið þessu fram í ræðu og riti. Sigurjón Rist vatnamælingamaður raforkumálastjórnarinnar, sem er allra manna kunnugastur því, hvernig vatnsföllin, sérstaklega í óbyggðunum, haga sér, hefur sagt, að rekstrartruflanir í Búrfellsvirkjun mundu geta átt sér stað 6–7 mánuði á ári, og í skýrslu Harza segir, að ísvandamálið sé vandamál, sem geti staðið meira en hálft árið. Það er ekki ýkjalangt síðan það kom fram t.d. í Morgunblaðinu, að það væri hrein kommúnistísk skemmdarstarfsemi að ræða um ísvandamálið í Þjórsá og Morgunblaðið, aðalmálgagn ríkisstj., jós auri á Sigurð Thoroddsen fyrir að hafa rætt þetta vandamál og bent á það og taldi, að það væri allt af annarlegum hvötum sprottið. En eftir að þetta trúnaðarfyrirtæki hæstv. ríkisstj. hefur tekið orð Sigurðar Thoroddsens upp nú í sinni síðustu skýrslu varðandi þetta mál, virðist auðsætt, að þessar aðvaranir Sigurðar Thoroddsens um þetta hafi ekki verið með öllu ástæðulausar, enda er greinilegt á frv. sjálfu, að jafnvel ríkisstj. gerir sér nú ljóst, að þetta vandamál er fyrir hendi, því að í 6. gr. er ákveðin heimild jafnhliða virkjuninni til þess að reisa önnur mannvirki ofan við virkjunina sjálfa til þess að tryggja vatnsrennsli og rekstur virkjunarinnar, þótt ekki sé tiltekin til þess nein ákveðin upphæð. Tilvist vandamálsins er sem sagt viðurkennd, en hins vegar til kostnaðarins við að ráða bót á vandamálinu er ekki tekið tillit, annaðhvort lítið eða helzt alls ekki neitt.

Eins og ég sagði, er vandamálið viðurkennt í 6. gr. frv., en þar segir: „Landsvirkjun er heimilt“ að reisa Búrfeilsvirkjun „og gera nauðsynlegar ráðstafanir á vatnasvæði Þjórsár ofan virkjunarinnar til þess að tryggja rekstur hennar.“ Hér er sem sagt vissulega viðurkenning á þeirri gagnrýni, sem komið hefur fram á virkjunartilhögunum þeim, sem fyrirhugaðar eru og enn hefur ekki verið breytt varðandi Búrfellsvirkjun. En rökrétt afleiðing af þessari viðurkenningu hefði auðvitað átt að vera sú að leggja niður fyrir sér, hverjar ráðstafanir þyrfti að gera og gera grein fyrir kostnaði við þær og taka tillit til hans við skýrslugerðina og útreikningana. En þetta hefur ekki verið gert. Hér hafa verið starfandi norskir sérfræðingar frá Sameinuðu þjóðunum í ísvandamálum og þeir fóru ekki dult með það, a.m.k. í einkaviðræðum, að þeir teldu virkjunartilhöguninni, sem var fyrirhuguð og er enn fyrirhuguð, ábótavant og meira að segja svo ábótavant, að það kæmi ekki til mála að ætla sér að framkvæma hana án þess að gera ráðstafanir ofan við ána til þess að tryggja reksturinn jafnframt. Og auðvitað fer það svo, að ef þetta vandamál er slíkt sem full ástæða er til að trúa, verður þetta vandamál leyst. Spurningin er bara, hvað það kostar, en það verður gert. En af hverju er þá ekki gerð gangskör að því að komast að því, hver kostnaðurinn við þessar ráðstafanir er, eða eru e.t.v. gerðar einhverjar áætlanir um það? Það bendir sumt til þess, að þessar áætlanir séu fyrir hendi, þó að þeim sé leynt enn, því að það segir m.a. í bréfi Harza, sem fylgir í grg., að notkun varastöðva, nógu stórra til að tryggja stöðuga orku frá kerfinu, sé miklu hagkvæmari, en að koma upp vatnsmiðlun ofar í ánni í þessu skyni. Ef þetta heimsþekkta og viðurkennda fyrirtæki, sem hæstv. raforkumálaráðh. sagði, að þetta fyrirtæki væri, getur fullyrt, að notkun varastöðva til þess að tryggja stöðuga orku frá kerfinu sé miklu ódýrari, en að koma upp vatnsmiðlun ofar í ánni, hlýtur fyrirtækið að hafa gert sér grein fyrir því, hvað þessi miðlunarmannvirki kosta. Viðmiðun hlýtur að hafa verið fyrir hendi, þannig að böndin berast að því, að einhverjar áætlanir hafi verið um þetta gerðar.

Í bréfi firmans Harza segir enn fremur: „Módeltilraunir, sem stefna að því að finna endanlegt fyrirkomulag á inntaks- og stíflumannvirkjum í Þjórsá, eru nú framkvæmdar í Noregi. Niðurstöður af þessum tilraunum munu liggja fyrir eftir nokkra mánuði og verður þá hægt að halda áfram verkfræðilegri lokakönnun þessara mannvirkja.“

Þarna er aftur á móti því slegið föstu, að tilraunir, sem sé verið að gera til þess að reyna að finna einhverja endanlega lausn, séu enn þá í gangi og það sé ekki hægt að halda áfram verkfræðilegri lokakönnun, eins og segir þar, nema árangur þessara módeltilrauna liggi fyrir. Það mætti nú kannske spyrja, hvort það sé ekki full ástæða til þess að gagnrýna það, að eftir að undirbúningur hefur staðið í 3–4 ár, sé ekki enn búið að kanna, svo að vitað sé, hvernig mannvirkin eigi að vera og vita þar með, hvað þau kosta í raun og veru, að vita, hvort þau muni verða rekstrarhæf, ef kular í veðri og að vita um rekstraröryggi virkjananna. Mér er kunnugt um það, að borgarráð Reykjavikur kallaði norsku sérfræðingana á sinn fund og fékk umsögn þeirra um þetta mál, en svo brá aftur á móti við, að þegar ég spurði sérfræðinga ríkisstj. að því á fundi fjhn., hvort álits norsku sérfræðinganna hefði verið leitað og hverjar till. þeirra hefðu verið varðandi ísvandamálið, fengust engin svör við því. Einu svörin, sem ég fékk, voru þau, að þeir hefðu verið að tala um, að það þyrfti að þrengja farveg Þjórsár, þeir hefðu verið að tala um það, það voru ekki þeirra till. og þótt ég spyrði a.m.k. fimm sinnum um þetta sama atriði, fékk ég annaðhvort þetta eða engin önnur svör.

Í samanburðarskýrslum, sem fylgja frv., er nú tekinn með stofnkostnaður gastúrbínanna á Hvaleyrarholti. En olíukostnaður vegna ístruflananna er, eins og ég sagði áðan, ekki tekinn með, nema þá að óverulegu leyti, en það mun vera gert á sama hátt og í skýrslu tækninefndarinnar og er þar sennilega stuðzt við skýrslu, sem fylgir frv. og heitir „Áhrif ískrapa á rekstur Búrfellsvirkjunar.“ En þessi skýrsla er byggð á hreinum ágizkunum um veðurfar við virkjunina, enda þótt það hafi farið fram mælingar núna í allan vetur eða eftir að þessi skýrsla var gerð, sem hefði mátt styðjast við og er vitað um það, að krap- og ísmyndanir eru miklu meiri en gert er ráð fyrir í skýrslunni. Ég veit ekki, hvort þetta er gert af hroðvirkni eða hvort það er gert viljandi til þess að sýna fram á með villandi upplýsingum, að ístruflanirnar séu minni en þær eru í raun og veru.

Í grg. segir svo enn fremur um þetta atriði: Eftir að miðlun er fengin úr Þórisvatni, þá ætti reikningslega séð allur orkuskortur að vera úr sögunni. — Engu að síður er gert ráð fyrir nokkrum orkuskorti, eftir að miðlun er fengin. Mér er nú spurn: Hvað er reikningslegur orkuskortur? Og hvað stoðar það okkur í raun og veru, eftir að þessi virkjun væri fullgerð, þó að orkuskorturinn hefði áður verið reiknaður út, ef veðurfarið uppi í óbyggðunum gerist öðruvísi, en sérfræðingar, sem ekki hafa einu sinni litið á skýrslu um veðráttu og áhrif þess á vatnasvið Þjórsar, hafa gert ráð fyrir? Hverju erum við bættari með það, þó að enginn reikningslegur orkuskortur verði fyrir hendi, ef girðing, trégirðing, sem á að gera meðfram Þjórsá og einhverjar smátilfæringar til þess að færa rennsli saman í færri kvíslar, ef það dugir ekki gegn íslenzkri veðráttu? Hverju erum við þá bættari, þó að reiknað hafi verið út af mönnum, sem ekki hafa einu sinni viljað nota forsendur, sem fyrir hendi eru, að enginn reikningslegur orkuskortur sé fyrir hendi? En það verður þó að segjast, að miðað við annað er það virðingarvert, að hér er aðeins talað um reikningslegan orkuskort. Raunverulegur orkuskortur kann að vera fyrir hendi fyrir því. Og það má svo sjá af því, hve tæpt stendur í sambandi við ístruflanir, ef þeirri mannvirkjagerð er haldið fram, sem nú er fyrirhuguð, að uppistaðan er engin eða svo til engin og lónið, það litla lón, sem þarna er ofan við, mun tæmast á einni til tveimur klukkustundum, ef þurrð verður á vatni í ánni.

Það er full ástæða til þess að ætla, að inn í þá útreikninga, sem hér liggja fyrir okkur, séu ekki tekin atriði, sem mjög verulegu máli skipta í sambandi við bæði samanburð á öðrum virkjunum og þá sérstaklega um kostnað af þeirri virkjun, sem hér er um að ræða. Auðvitað er það svo, að þau mannvirki, sem gera þarf í sambandi við ísvandamálið, eru hluti af Búrfeilsvirkjuninni og það ber að reikna með þeim í stofnkostnaði í verðútreikningum og öllum öðrum samanburðum, sem gera þarf í þessu sambandi. Meðan þetta liggur ekki fyrir, að þessi kostnaður hafi verið tekinn inn, þá er sá samanburður, sem frv. byggir á, rangur og ekkert á honum byggjandi.

Í sambandi við störf norsku sérfræðinganna, sem ekki mátti segja okkur neitt um í fjhn., sem að gagni mátti koma, þá vil ég aðeins bæta því við, að fréttir hafa borizt af því, að módeltilraunirnar í Noregi séu alls ekki í samræmi við það, sem útreikningarnir ætlast til, og kemur þar með í ljós, að útreikningar, sem ekki eru byggðir á staðreyndum, koma að litlu haldi. Ísinn í módelinu, virkjunarmódelinu og aðstæðumódelinu, hefur ekki viljað hlíta þeim útreikningum, sem áður hafa verið gerðir. Og það hafa komið í ljós í sambandi við módeltilraunirnar nú þegar vandamál, sem enginn gerði sér grein fyrir áður, m.a. vandamál, sem hafa leitt af sér algera stöðvun á vatnsrennslinu í módelinu, sem er nákvæm eftirlíking af öllum staðháttum, og mundi því undir ákveðnum forsendum alveg eins eiga sér stað þar. En þessum upplýsingum erum við leyndir. Þegar þess er nú gætt, svo að við hverfum enn að samanburðinum við smávirkjunarleiðina, að aðgerðirnar til þess að leysa ísvandamálið mega ekki kosta meira en 165 millj. kr., til þess að það fari að hallast á hinn veginn, að allir útreikningar, eins og þeir eru upp gefnir hér, sýni það, að smávirkjunarleiðin fyrst, Búrfell síðan, sé betri leið, þá fer nú að sjást að mínu viti, hvað allur samanburður er hæpinn, ekki sízt þegar þess er gætt, — það mun vera lausleg ágizkun, — að uppistaða við Sultartanga, sem margir telja, að sé eina lausnin á ísvandamálinu við Búrfeil, kostar 700 millj.

Á þessari stundu get ég ekki annað en spurt, hvers vegna slíkt ofurkapp er lagt á það að leyna erfiðleikunum og gera alla útreikningana hagstæðari Búrfellsvirkjun og þá sérstaklega með alúminíumbræðslu heldur en nokkur rök eru fyrir og yfirleitt að bera ekki annað á borð fyrir okkur, en útreikninga, sem ekki fá staðizt eða a.m.k. sem enginn veit, hvort fá staðizt. Og ég verð að viðurkenna, að ég á ekki nema eitt svar við þessari spurningu og það er það, að alúminíumbræðsluna á að reisa, við hinn erlenda auðhring á að semja, hvort sem það er hagstætt fyrir okkar virkjunarmál eða ekki, hvort sem því fylgir hagstæðasta lausnin á virkjunarmálum okkar eða ekki. Áður hefur því þó verið haldið fram, að ein höfuðástæðan til þess, að við þyrftum að ráðast í það að semja við erlenda auðhringi um alúminíumbræðslu, væri sú, að það væri nálega eina leiðin til þess að virkja hagstætt fyrir okkur sjálfa.

Mér sýnist, að allt það, sem ég hef nú sagt og ég veit sannast um þetta mál, sýni, að það er a.m.k. mjög hæpið, að ekki sé meira sagt, það er ekki djúpt tekið í árinni, að þarna sé um nokkurn slíkan hagnað að ræða.

Þetta, að alúminíumverksmiðjuna á að reisa, við alúminíumhringinn á að semja, með hvaða kostum sem verða fyrir hendi, það verður í raun og veru enn ljósara, þegar 6. gr. þessa frv. er skoðuð. Þar er gert ráð fyrir að heimila nú þegar virkjun allt að því, sem kallað er fullvirkjun Búrfells, 210 megavött, þó að vitað sé, að nú um sinn höfum við ekkert að gera með slíka virkjun og Landsvirkjunin gefur þess vegna ekki neina heimild til þess, nema því aðeins að ákveðið sé að nota raforkuna til þarfa annarra, en Íslendinga og þó lýsir hæstv. raforkumrh. því yfir við 1. umr. málsins, að val Búrfells sé algerlega óháð alúminíumbræðslunni og samningum við alúminíumhringinn. Að vísu hafa bæði blöð flokks hans og ræður t.d. frá landsfundinum, sem flestar hafa verið prentaðar orðrétt í Morgunblaðinu, bent til þess, að Sjálfstfl. a. m. k. hafi ákveðið, að hér skuli koma alúminíumver, hvaða samningar sem eru í boði. Þar hefur enginn fyrirvari verið á hafður. Það hefur verið sagt, það er ákveðið, að alúminíumbræðsla verði reist hér. Og ég hlýt að spyrja í þessu sambandi: Hvers vegna er verið að heimila það nú á þessu stigi málsins að virkja 210 megavatta virkjun, ef aðeins á að virkja fyrir íslenzka aðila, sem vitað er að, að svo komnu máli þurfa ekki meira en 70 megavött eða 1. stig þessarar virkjunar? Við skulum ekki blanda alúminíumbræðslunni allt of mikið inn í þetta mál, þó að það sé óhjákvæmilegt að minnast á hana í þessu sambandi. Við skulum segja, að það eigi að standa opið að semja við alúminíumhringinn, við skulum segja það. En hvers vegna þarf þá endilega að ganga út frá því sem gefnu í sambandi við þetta frv., að þessir samningar verði gerðir? Er ekki nægilegt, úr því að þarf að leggja samninginn við alúminíumhringinn fyrir Alþ., að æskja þá þeirrar heimildar, sem svo nauðsynleg er í sambandi við virkjunina? Er það kannske svo óskapleg fyrirhöfn að koma þá um leið með aukna heimild til handa Landsvirkjun til þess að virkja upp í 210 megavött, þegar það liggur fyrir, hvaða samninga er hægt að gera við hinn erlenda auðhring? Hvernig stendur á að svona mikið liggur á? Við skulum meira að segja slá því föstu, að það sé út af fyrir sig af öðrum ástæðum, en þessum gott og hagkvæmt fyrir okkur, að hér verði reist alúminíumver og samið við Swiss Aluminium um þá framkvæmd, en þá kemur spurningin: bætir það samningsaðstöðuna við hinn erlenda auðhring, ef því er strax slegið föstu, að þetta eigi að koma við hvaða kjör sem fáanleg eru? Ég held, að hér sé beinlínis efnt til þess, að það sé verið að spilla allri samningsaðstöðu við alúminíumhringinn með þessu ákvæði, sem við höfum ekkert með að gera, ef það er rétt, ef það er ekki falsið eitt hjá hæstv. ráðh., að val Búrfells sé óháð ákvörðuninni um alúminíumbræðslu. Ég held, að samningsaðstaða okkar við þann erlenda auðhring, sem hér á hlut að, — til þess að hún yrði sæmileg, þá þyrftum við einmitt núna að geta sannað hringnum, að við gætum virkjað sjálfir á hagstæðan hátt fyrir okkur, alveg án tillits til þess, hvort samningarnir verði gerðir eða ekki, þannig að það verði ekki notað sem klemma á okkur í samningunum, að við getum ekki framkvæmt slíkt. Við þyrftum nú þegar að geta sannað það, að við gætum fengið lán til þess að virkja 70 megavött í Þjórsá. Við hefðum þurft að hafa um það svör frá Alþjóðabankanum, að við gætum fengið slik lán, án þess að samið væri við alúminíumhringinn, til þess að við gætum mætt honum í samningum alveg sjálfstæðir og óháðir og værum á engan hátt tilneyddir til þeirra samninga, sem ríkisstjórnin vill að séu gerðir. En þannig hefur ekki verið staðið að þessu máli, og þannig er ekki meiningin að standa að því. Það hefur ekkert komið fram í greinargerðum um þetta mál, sem bendir til þess, að það hafi verið svo mikið sem ýjað í þá átt við Alþjóðabankann að lána til virkjunar á Íslandi, nema alúminíumbræðslu yrði komið á um leið. Og hvernig stendur á þessum vinnubrögðum, ef það er ekki meining hæstv. ríkisstj. að taka hvaða kostum sem í boði eru af hálfu alúminíumhringsins?

Og ég verð svo að segja það í sambandi við þetta mál og með tilliti til þeirrar skýrslu, sem hæstv. iðnmrh. og ríkisstj. hefur lagt hér fram á Alþ. um gang samningaviðræðna við Swiss Aluminium, að það væri vissulega ekki vanþörf á því að bæta samningsaðstöðuna þar. Mér sýnist, að það sé gert ráð fyrir því núna á þessu stigi málsins, að það eigi að selja orkuna undir kostnaðarverði og ég ætla ekki að fara langt út í það og eins og ég sagði, ég ætla ekki að ræða um alúminíumverksmiðjuna meir en þörf er á í sambandi við þetta mál. En ég get þó ekki stillt mig um að sýna fram á það, að samkv. áætlunum, sem fylgja frv., er ráð fyrir því gert, að 2.109 megavatta virkjun kosti nú, miðað við verðlag 1965, því að í bréfi Harza segir, að kostnaðaráætlanirnar ættu að duga út árið 1965, þá kostar 21 megavatta orkuver 1.690 millj. Ég held, að það væri afskaplega varlegt og raunar langt frá því að vera fullnægjandi að gera ráð fyrir því, að á virkjunartímabilinu hækki framkvæmdakostnaðurinn að meðaltali um 20% , þá er virkjunarkostnaðurinn kominn upp í 2.023 millj. kr. Samkv. þeim útreikningum og venjulegum útreikningsreglum með réttum 10% fjárfestingarkostnaðar yrðu 202.3 millj. kr. þá árlegur kostnaður Búrfellsvirkjunar. Ef við gerum ráð fyrir því, að alúminíumhringurinn noti 60% af því, ætti hann að greiða, ef honum væri seld orka nákvæmlega á kostnaðarverði, 121.3 millj. kr., en annars staðar í grg. segir, að hann eigi að greiða sem fast gjald, a.m.k. á því viðmiðunartímabili, sem hér um ræðir, um 104 millj. Hreint tap af orkusölunni við hringinn, miðað við rekstur Búrfellsvirkjunarinnar og það er það eina, sem kemur til greina í þessu sambandi, yrði þá 17 millj. kr. á ári. Á 25 árum yrðu það 425 millj. kr. Og þar að auki er um það að ræða, að þarna yrðu gefin vatnsréttindi, — vatnsréttindi, sem íslenzka ríkið hefur meira að segja þurft á sínum tíma að borga stórfé fyrir og áreiðanlega væru nú fólgin í geipileg verðmæti. Ég held, að þarna séu landsréttindi einnig og þarna er ekki heldur gert ráð fyrir þeim árlega kostnaði, sem stafar af því, sem ég gat um áðan, að við þurfum sjálfir að kynda varaaflstöðvar með rándýrum efnum til þess að mata alúminíumhringinn á raforku við þessu líka bærilega verði í hvert skipti sem truflanir verða á rekstri Búrfellsvirkjunar vegna ístruflana og annars slíks. Og svo er þess að gæta, sem ég reyndar kom inn á áðan, að þarna er verið að selja ódýrasta aflið. Siðar verðum við að virkja á þeim tíma, sem alúminíumverksmiðjan starfar, miklu dýrara afl og það furðulega er í sambandi við þetta mál, sem ég get ekki alveg látið hjá líða að benda á, að hugsanlegar breytingar á rafmagnsverðinu eiga ekki að vera í samræmi við það, hvað við þurfum að virkja dýrt, eftir að Búrfell hefur gengið til þurrðar. Þá er ekki hækkað rafmagnið frá Landsvirkjuninni til alúminíumhringsins á grundvelli þess aukna rekstrarkostnaðar, sem óhjákvæmilega verður þá hjá Landsvirkjuninni. Nei, á bls. 5 í grg. hæstv. ríkisstj. segir, að rafmagnsverðið muni haldast óbreytt fyrstu 15 árin, en breytist þá í samræmi við áorðnar breytingar á rekstrarkostnaði Búrfellsvirkjunar. Ef þetta er ekki prentvilla í frv., ef þarna á raunverulega að standa Búrfell, — það stendur að vísu tvisvar sinnum, svo að það eru litlar líkur á, að það sé prentvilla, — þá fæ ég ekki betur séð en þarna sé verið að finna viðmiðun, sem mundi lækka verðið til hringsins, a.m.k. eftir að afskriftatímanum á Búrfellsvirkjun er lokið, því að þá hlýtur rekstrarkostnaður hennar stórkostlega að lækka og ég vil nú nota tækifærið til þess að spyrja hæstv. ráðh.: Er þetta prentvilla, sem stendur hér á bls. 5 um þetta, eða á þetta svona að vera?

Það kom svo fram í sambandi við samningana til frekari rökstuðnings því, að ekki veiti af því að bæta samningsaðstöðuna í sambandi við þetta frv., það komu að mínu viti mjög athyglisverðar upplýsingar fram í ræðu hv. 9. þm. Reykv. hér í umr. í gær í Sþ., sem m.a. sýndu þann samanburð, að meðan þessi sami auðhringur á í Noregi að borga alla tolla af efnivöru, hráefni, þá á allt hér að vera tollfrjálst. Meðan hringurinn á í Noregi að byggja vegi og hafnir, sem hann þarf til sinna nota, eiga Íslendingar að kosta það hér sjálfir. Meðan alúminíumhringurinn er skyldugur í Noregi til þess að kaupa allar efnivörur og þjónustu, þó að hún sé 10–25% hærri þar en þeir geta annars staðar fengið, þá eru þeir skyldugir til þess að gera það. Þar verða Íslendingar í sömu tilfellum að sæta algerlega heimsmarkaðsverði og færa sönnur á það, að enginn bjóði lægra. Í Noregi þarf alúminíumhringurinn að byggja íbúðir fyrir allt starfsliðið, en hér á ekki um neitt slíkt að vera að ræða og sérstaklega tekið fram, að ekkert slíkt komi til greina. Í Noregi þarf hringurinn að byggja sérstakt sjúkrahús fyrir þessa einu verksmiðju fyrir starfsfólk sitt og greiða sjúkrasamlögunum norsku stórfé, m.a. af því að vinnan er talin óhollari, en flest önnur vinna. Hér er um ekkert slíkt að ræða. Og síðast, en ekki sízt, Norðmenn fá í hreinar gjaldeyristekjur af þessu fyrirtæki milli 500 og 600 millj. ísl. kr. á ári, en hér á Íslandi er hæsta talan, sem nefnd er af hæstv. ríkisstj. og hefur verið sýnt fram á, að er fölsuð, 350 millj. kr., en er sennilega ekki meira, en 150–200 millj. og kannske ekki það. Þetta sýnir það auðvitað ásamt öðru, að þó að menn væru í hjarta sínu á því, að hér ætti að semja við alúminíumhringinn, hér ætti að koma upp alúminíumbræðsla, þá vantar samningsaðstöðuna til þess að geta gert þá samninga, eins og áreiðanlega eru möguleikar á að gera, ef vel væri á málunum haldið. Ég vil svo bæta því aðeins við í sambandi við þetta atriði, að ég tel, að hérna þurfi líka að hindra það, við þekkjum orðið það vel vinnubrögð íslenzkra stjórnarvalda fyrr og síðar í sambandi við samninga við erlenda aðila, að það verður enginn sakaður fyrir það, þó að hann hafi alltaf vissar grunsemdir í sambandi við það og ég held, að það sé nauðsynlegt nú að hindra það, að það geti átt sér stað, að ríkisstj. ráðist t.d. í slíkar framkvæmdir í raforkumálum okkar algerlega á grundvelli þess, að samningur verði gerður við alúminíumhringinn og ég held, að það þurfi að hindra það, að slík aðstaða geti komið upp, að Alþ. verði stillt upp fyrir gerðum hlutum, sem síðar verkuðu sem nauðung gagnvart því, þegar ákvörðun um alúminíumsamninginn yrði tekin.

Ég tel mig hafa rökstutt tvennt með því, sem ég hef nú sagt, þ.e.a.s. í fyrsta lagi, að það sé engin ástæða til og engin skynsamleg rök fyrir því út frá íslenzkum hagsmunum séð, að Búrfellsvirkjun verði að svo stöddu heimiluð stærri en 700 megavatta virkjun. Og í öðru lagi hef ég sýnt fram á, að þeim samanburði, sem gerður er á smávirkjanaleiðinni og Búrfellsleiðinni, sé ekki á nokkurn hátt treystandi og þess vegna beri að breyta 6. gr. frv. á þá lund, eins og ég legg til, að auk þess sem heimildin nái til 70 megavatta stöðvar við Búrfell, nái hún einnig til smávirkjunarleiðarinnar, þannig að Alþ. verði ekki neytt til þess nú, meðan málið er á rannsóknarstigi, að taka ákvörðun um það, hvor leiðin verður heldur valin, heldur verði sú ákvörðun tekin, þegar rannsóknir eru fullgerðar og ekki um neitt annað að villast lengur í þessu sambandi. Það yrði svo að sjálfsögðu opið, þó að mín till. yrði samþ., hvor leiðin yrði farin og það yrði einnig opið, hvort farið yrði í eina, tvær eða þrjár smávirkjanir, áður en ráðizt yrði í Búrfellsvirkjun. Og þar sem mín till. er aðeins um að leggja þetta vald í hendur hæstv. ríkisstj. að athuguðu máli, hlýtur það að vera af einhverjum annarlegum hvötum, ef hún beitir sér mjög gegn því, að till. mín um þetta efni verði samþ.

Þá kem ég að því atriði þessa frv., sem varðar nýja stefnu í raforkumálum. Með frv. er gert ráð fyrir því, að Landsvirkjunin yfirtaki meginhluta af yfirráðum í raforkumálum þjóðarinnar. Það er horfið frá því sjónarmiði, sem réð við setningu raforkulaganna um, að virkjanirnar, okkar stóru virkjanir og smærri virkjanir einnig, yrðu smátt og smátt þjóðnýttar og það yrði yfirleitt ekki ráðizt í virkjunarframkvæmdir nema af ríkinu sjálfu og ekki heldur í aðalorkuveitu og þar var gert ráð fyrir því, það var stefnan í sambandi við raforkulögin, þegar þau voru sett, að það var þjóðnýtingarstefna á orkuverunum og aðalorkuveitunum og öll yfirstjórnin átti að vera í höndum löggjafarvaldsins, ríkisvaldsins og þeirra, sem það skipaði til. En með þessu frv., sem hér er á ferðinni og ákvæðum þess er horfið að því ráði að gera Reykjavíkurborg í fjölmörgu, sem mestu máli skiptir og reyndar öllu í sambandi við orkumálin á því svæði, sem þarf á að halda meginhlutanum af allri raforku, sem þjóðin getur framleitt, jafnvaldamikla og ríkið. Henni er m.a. fengið í hendur neitunarvald um allar frekari framkvæmdir í raforkumálunum, sbr. 12. gr. frv. og borgarstjórn Reykjavíkur þarf yfirleitt að samþ. allt, sem máli skiptir að gert sé í rakorkumálunum í framtíðinni, meðan þessi skipan helzt. Í samræmi við þetta er svo sett inn ákvæði í 3. gr. frv., um það, að það séu aðeins peningaleg rekstrarsjónarmið fyrirtækisins, sem eigi að ráða því, í hvaða framkvæmdir er ráðizt fyrir dreifðari hluta á orkuveitusvæðinu, en hvorki er þar gengið út frá þörfum elnstakra sveitarfélaga né út frá því, hvað þjóðhagslega er hagkvæmast. Það er aðeins fjármálasjónarmið bisnessfyrirtækis, sem á að ráða. Allt þetta er geysileg stefnubreyting frá því, sem hefur verið ráðandi í raforkumálum þjóðarinnar á undanförnum árum og áratugum.

Í sambandi við þetta aukna vald Reykjavíkur í raforkumálum þjóðarinnar verð ég að segja, að það vald, eins og gert er ráð fyrir að það verði samkv. frv., er undir öllum kringumstæðum óeðlilegt, en þó alveg sérstaklega óeðlilegt og fráleitt, ef það á að vera verksvið Landsvirkjunar, sem maður verður að trúa eftir öllum yfirlýsingum hæstv. ríkisstj., ef það á að vera verksvið Landsvirkjunar að verulegu leyti að selja raforku til erlendra aðila. Ég held, að jafnvel þeir, sem út af fyrir sig teldu það ekkert fráleitt, að við gerðum orkusölusamninga við erlend fyrirtæki, hljóti margir hverjir að vera þeirrar skoðunar, að þar ætti ríkið sjálft eitt að koma til greina. En það er ekki annað sýnt en borgarstjórn Reykjavíkur eigi að vera jafnvaldamikill aðili um allt, sem að þessu lýtur, eins og ríkið, þ. á m. að vera algerlega jafnvaldamikill aðili í sambandi við alla orkusölusamninga. Ég heyrði hæstv. iðnmrh. lýsa því yfir seint í umr. í gærkvöld í hv. Sþ., að auðvitað yrði það stjórn Landsvirkjunarinnar, sem gerði orkusölusamninginn. Nú skulum við gera ráð fyrir því, að þrátt fyrir það, þótt það verði stjórn Landsvirkjunar, sem gerir orkusölusamninginn í fyrstunni, sé hann lagður fyrir Alþ. til staðfestingar og Alþ. fái tækifæri til þess að fjalla þannig um málið. En ég get þó ekki betur séð, en það verði í síðasta skipti, sem það gerist, því að önnur ákvæði frv. fela það í sér beinlínis, að allir orkusölusamningar eigi að gerast af stjórn Landsvirkjunar og hvergi settur sá varnagli, að um það gildi sérstök ákvæði, þótt um erlenda aðila sé að ræða. Ef þessi er ekki meiningin, sem ég held þó að hljóti að vera og er raunar viss um eftir þessa yfirlýsingu hæstv. iðnmrh. í gærkvöld, þyrfti auðvitað að taka af allan vafa um þetta efni og setja inn gr. í frv., eins og ég geri ráð fyrir, um það, að ef gerðir eru samningar við erlenda aðila, þurfi samþykki Alþ. að koma til. Við ræddum þetta á fundi fjhn. í gærkvöld. Þessi breyting mun hafa verið rædd við hæstv. ráðh. og hann harðlega neitað henni. Það getur auðvitað ekki þýtt nema eitt, það að um orkusölusamninga í framtiðinni við erlenda aðila á borgarstjórn Reykjavíkur að vera jafnrétthá Alþ. Það er svo auðséð, bæði af ákvæðunum um eignaraðildina og ekki síður um það, hvernig velja á stjórn fyrirtækisins, að það er meiningin ekki aðeins að koma miklum völdum í hendur borgarstjórnar Reykjavíkur, heldur um leið og jafnvel miklu frekar að koma öllum tökum í þessum málum í hendur Sjálfstfl., a.m.k. um verulega framtíð. Þannig var staðið að öllum ákvæðum um stjórnarkjör og annað, sem eiga að tryggja það, að Sjálfstfl. hafi hreinan meiri hl. í stjórn og geti algerlega ráðið þessu fyrirtæki um langan aldur og það er kannske miklu veigameira atriði frá þeirra hálfu, sem að þessu frv. standa, heldur en það, hvort Reykjavík er gefin þarna stór aðild eða ekki. Þetta stangast óneitanlega nokkuð á við það, sem hæstv. raforkumálaráðh. sagði hér við 1. umr. málsins, að Landsvirkjunin ætti að vera fyrirtæki allrar. þjóðarinnar, þar ættu þess vegna að sitja fulltrúar allra flokka og ef ríkisstj. tilnefndi í stjórnina, væri það alveg öruggt, að hún mundi tilnefna þá úr þremur flokkum, þá þrjá fulltrúa, sem í henni ættu að vera af hálfu ríkisstj. Þetta voru orð og ummæli hæstv. ráðh. En ég er anzi hræddur um, að önnur muni verða raunin á, enda er beinlínis þannig að þessu staðið, að það geta í raun og veru, það er varla fræðilegur möguleiki á því, að aðrir eigi þarna aðild en tveir stærstu flokkarnir, og eins og nú standa sakir Framsfl. þó aðeins í gegnum kjör á Alþ., þ.e.a.s. Sjálfstfl. getur auðveldlega eignazt þarna mikinn meiri hluta og miklar líkur á því, að með þessu fyrirkomulagi geti hann haldið þeim meiri hl. a.m.k. um alllangt skeið, ef hrun hans verður ekki því meira. Ég er alveg sammála því, sem kom hér fram í ræðu hæstv. ráðh., að svona fyrirtæki, sem er stórt, þjóðin á mikið undir því og þar sem landsmenn allir eiga mikið undir því, þá eiga ákvæðin m.a. um stjórn að vera þannig, að þau tryggi aðild helzt allra þeirra flokka, sem eitthvert verulegt fylgi eiga með þjóðinni. En það er ekki meiningin. Þarna er meiningin að hafa möguleika á því að útiloka alla nema stærstu flokkana og jafnvel flesta nema fulltrúa Sjálfstfl. Ég tel þess vegna nauðsynlegt, að á þessu sé gerð breyting og látið reyna á það, hver hugur fylgdi máli, þegar hæstv. raforkumálaráðh. viðhafði sín ummæli um þetta hér við 1. umr. málsins.

Það er auðséð og er ég þá kominn að síðasta þætti þessa máls, sem ég ætla nú að ræða, að ein stærsta breytingin, sem nú á að gera í sambandi við þetta frv., er að taka á upp nýja stefnu í verðlagsmálum raforkunnar. Í 11. gr. segir, að stjórn Landsvirkjunar, þ.e.a.s. Sjálfstfl., ákveður að fengnum till. Efnahagsstofnunarinnar heildsöluverð Landsvirkjunar á raforku. Skal raforkuverð vera við það miðað, að eðlilegur afrakstur fáist af því fjármagni, sem á hverjum tíma er bundið í rekstri fyrirtækisins. Einnig skal að því stefnt, að fyrirtækið skili nægilegum greiðsluafgangi, til þess að það geti jafnan með eigin fjármagni og hæfilegum lántökum tryggt notendum sínum næga raforku. Þetta kann kannske í fljótu bragði að virðast ekki fela í sér neina sérstaka ákvörðun um það, með hvaða hætti raforkan verður verðlögð hér á næstu tímum. En engum getur þó dulizt það, að hér er um mikla breytingu að ræða frá þeim meginreglum, sem gilt hafa um þetta efni fram að þessu. Eins og kunnugt er, eru þau ákvæði í virkjunarl. og ég held raforkul., að verðlagningu á raforku á að miða við það að greiða árlega tilfallandi kostnað og greiða 5% í varasjóð, þ.e.a.s. á að vera kostnaðarverð að viðbættum 5%. Og ef þeirri reglu væri fylgt varðandi Landsvirkjunina, mundi það þýða, að við ættum að sjálfsögðu virkjunina skuldlausa eftir 25 ár og einnig álitlegan varasjóð. En í staðinn fyrir þessi ákvæði, sem fylgt hefur verið fram að þessu og fyrst og fremst hafa miðazt við þetta, þ.e.a.s. greiða niður áfallandi kostnað virkjananna og eignast þær skuldlausar á 10–20 árum, er nú meiningin að hverfa að því ráði að koma á stórfelldri auðsöfnun á kostnað almennings í landinu og raforkunotenda. Þetta verður að vísu kannske ekki fullkomlega ljóst af orðalagi greinarinnar, en það verður fullljóst af öðrum upplýsingum um það, hvað ráðgert er í þessum efnum.

Á fundi fjhn. spurðum við um það, hvaða áætlanir lægju fyrir um reksturinn, því að í slíkum rekstraráætlunum, sem eru til og raunar hljóta að vera til og hljóta að vera eitt af því fyrsta, sem gert er í sambandi við undirbúning að stofnun svona fyrirtækis, er auðvitað gengið út frá einhverjum ákveðnum hlutum í þessum efnum. Og það kann vel að vera, að ástæðan til þess, að okkur er neitað um það að fá rekstraráætlun, sé sú, að það eigi að leyna þeim fyrirætlunum, sem uppi eru um raforkuverðið, fyrirætlunum um það að stórhækka raforkuverðið frá því, sem nú er og selja raforkuna á margföldu kostnaðarverði við það, sem verður. Einu upplýsingarnar, sem við fengum um þetta, voru þær, að rafmagnsveitustjóri ríkisins sagði, að hann teldi það vera eðlilegt, að þegar í næstu virkjun yrði ráðizt, þ.e.a.s. að 10 árum liðnum, ættum við 30% af kostnaði við næstu virkjun. Þegar þess er nú gætt, að þarna er um tvöföldun raforkukerfisins að ræða og við eigum á 10 árum að geta staðið undir þessum kostnaði, sjá allir, að hér er um stórkostlega fjármuni að ræða. Ég hef því miður ekki reiknað nákvæmlega út, hvað þetta þýðir, en mér sýnist, að þetta muni þýða gífurlega og áður algerlega óþekkta auðsöfnun í landi okkar. Þó að við höfum ekki fengið þessar áætlanir, sem ættu að geta varpað nokkru ljósi á það, hver stefnan á að vera í þessum efnum, hef ég fengið upplýsingar um það frá fyrstu hendi, að samkv. þeim áætlunum, sem lagðar hafa verið fyrir borgarráð Reykjavíkur, er gert ráð fyrir því, að raforkuverðið verði 27 aurar við stöðvarvegg, þ.e.a.s. um 40% hækkun frá því, sem verðið er núna frá stöðvarvegg við Sogið, en verðið núna frá Sogsvirkjuninni er miðað við 20 aura frá stöðvarvegg. Þessi áætlun um verðið til íslenzkra neytenda mun vera miðuð við þær áætlanir, sem nú eru að vísu orðnar úreltar, sem telja kostnaðarverðið frá stöðvarvegg við Búrfellsvirkjun 8.6 aura og sést þá, að hér er um rúmlega þreföldun að ræða á því raunverulega kostnaðarverði, og væri þá rökrétt að hugsa sér, að ef þessi kostnaður yrði nú eftir allt saman, þegar búið væri að leysa ísvandamálið og annað í Þjórsá, 13–14 aurar, hækkaði verðið til innlendra notenda að sama skapi. Þetta væri algerlega óraunhæft að hugsa sér, og sýnist mér koma til mála, að verðið væri orðið fjórfalt til fimmfalt við fyrra kostnaðarverð. Það getur auðvitað verið fullkomið álitamál, hvort stefnan í þessum málum hefur verið algerlega rétt hjá okkur og hvort nægilega hefur verið lagt fyrir í sambandi við virkjunarframkvæmdir. En ég vil þó benda á það, að með þeirri stefnu, sem ríkt hefur í þessum málum, hafa öll orkuver okkar í landinu reynzt traust og góð fyrirtæki, sem fullkomlega hafa staðið fyrir sínu, getað staðið við allar skuldbindingar sínar og getað fram að þessu endurnýjað sig með eðlilegum hætti. Og ég tel enga sérstaka ástæðu til þess að taka upp þá stefnu, að sú kynslóð, sem nú er í landinu og komin á miðjan aldur, skulum við segja og hefur byggt upp allt landið úr niðurníðslu og skilað því að öllu leyti betra til næstu kynslóðar en það var, svo að hrein bylting hefur orðið, að hún þurfi að taka þær kvaðir ofan á aðrar að borga raforkuverðið einnig fyrir næstu kynslóðir, ekki aðeins fyrir sjálfa sig. Ég er það bjartsýnn um hag þjóðarinnar á komandi árum, að ég held, að næstu kynslóðir verði alveg færar um að borga sitt rafmagn sjálfar og það sé engin ástæða til þess í sambandi við slíka virkjun sem þessa að taka upp þá stefnu í verðlagningarmálinu, sem mundi þýða það, að á næstu 20 árum mundi verða tekið í hreinan gróða af því fyrirtæki af landsmönnum, af almenningi, af lífskjörum hans og af atvinnurekstrinum í landinu um 2 milljarðar kr., a.m.k., kannske miklu meira. En áætlunin, sem lögð var fyrir borgarsjóð Reykjavíkur, var um það, að hreinn gróði átti að skila sér á 20 árum um 1.700 millj. kr.

Vegna tímaskorts við athugun á þessu frv. hefur ekki verið aðstaða til þess að gera till. um þær gerbreytingar, sem nauðsynlegar hefðu verið á þessu frv. og hef ég þess vegna valið þann kost í málinu að miða aðeins till. mínar við allra nauðsynlegustu breytingar á veigamestu atriðunum. Till. mínar stefna sem sagt að því í fyrsta lagi, að ótímabær ákvörðun verði ekki tekin nú um virkjunarstaðinn og ekki heldur um virkjunarstærðina, heldur verði valið lagt í hendur fyrirtækisins og ríkisstj., þegar nauðsynlegar forsendur eru fyrir hendi. Í öðru lagi geri ég till., sem miða að því, að hindrað verði flokkseinræði Sjálfstfl. yfir fyrirtækinu og yfir orkumálunum í næstu framtíð, og í þriðja lagi till., sem miða að því, að komið verði í veg fyrir stórfellda og ástæðulausa hækkun á raforkuverði með gerbreyttri stefnu í verðlagningarmálum. Ágreiningurinn um þessi þrjú atriði veldur því fyrst og fremst, að ég get ekki staðið að samþykkt frv., eins og það nú er, en legg hins vegar til eftir atvikum, að það verði samþykkt að þeim brtt. samþykktum, sem ég flyt. Þetta þýðir þó alls ekki, að ég telji till. mínar vera neina allsherjarbót á frv. og að ég að þeim samþykktum sé alveg ásáttur um fyrirkomulag raforkumálanna, eins og það er ákveðið í þessu frv. Mín skoðun er sú, að alger þjóðnýting, a.m.k. á öllum aðalorkuverum og aðalveitum, sé bráðnauðsynleg í náinni framtíð og jafnvel alls dreifikerfisins líka, enda hefur sú þróun mála orðið víðast um heim á síðari tímum og m.a. í flestum eða öllum löndum Vestur-Evrópu. Með samþykkt þessa frv. er ekki aðeins horfið í bili frá þessari stefnu með því að stórauka hlutdeild annarra aðila, en ríkisins í eignarhaldi og í stjórn orkumálanna, því að þessi breyting mun sérstaklega vegna hinna miklu framkvæmda, sem nú eru fram undan, torvelda siðar nauðsynlega yfirtöku ríkisins á eignum og mannvirkjum, þegar heilbrigðari stefna verður tekin upp, en nú er ráðandi og sérhagsmunir einstakra flokka verða ekki látnir sitja í fyrirrúmi fyrir þjóðarhagsmunum.