08.05.1965
Efri deild: 86. fundur, 85. löggjafarþing.
Sjá dálk 1753 í B-deild Alþingistíðinda. (1586)
201. mál, Landsvirkjun
Frsm. 2. minni hl (Helgi Bergs):
Herra forseti. Flestar brtt., nánar tiltekið allar nema ein lítil leiðréttingartill., sem fluttar voru af minni hlutum fjhn. við 2. umr. þessa máls, náðu ekki samþykki.
Við 3. gr. þessa frv. komu fram brtt. frá báðum minni hlutunum. Brtt. 2. minni hl., mín og hv. 1. þm. Norðurl. e. (KK), stefndu að því að gera ákvæði þessa frv. víðtækari, að því er lýtur að því, að Landsvirkjun veiti landsmönnum öllum þjónustu og einnig um verðlagsatriði. Þessar till. voru felldar og till. frá 1. minni hl., sem hneig nokkuð í sömu átt, að því er fyrra atriðinu viðvék, var einnig felld.
Það, sem mér virðist fyrst og fremst athugavert við þessa gr., er það, að í gegnum hana skín mjög sterklega, eins og hún er orðuð, sá andi, að það séu hagsmunir fyrirtækisins Landsvirkjunar, sem einir skuli ráða, hvaða framkvæmdir er lagt í, á þess vegum.
Ég vildi nú leyfa mér við þessa umr, að leggja fram litla brtt. við 3. gr., sem dregur úr þessum tón, sem mér finnst ógeðfelldur. Till. er fólgin í því að breyta 2. málsl. 3. gr., sem hljóðar svona: „Sýni áætlanir fyrirtækisins, að fjárhagslega sé hagkvæmt að leggja aðalorkuveitur frá orkuverum Landsvirkjunar til annarra orkuveitusvæða, skal einnig heimilt að tengja þau orkuverum fyrirtækisins.“ Á þessari setningu yrði sú breyting, að það væru ekki áætlanir „fyrirtækisins“ endilega, heldur þær áætlanir, sem um þetta eru gerðar, t.d. af raforkumálastjórn eða öðrum, sem þarna kæmu til athugunar, og ekki aðeins það, hvort það sé „fjárhagslega“ hagkvæmt, sem í þessu tilfelli mundi þá fyrst og fremst vísa til fyrirtækisins, heldur einnig hvort það sé hagkvæmt almennum hagsmunum.
Till. er því þannig, að orðið „fyrirtækisins“ í þessu sambandi falli niður og orðalagið að öðru leyti breytist þannig, að „fjárhagslega“ falli einnig niður og þetta hljóði þá: „Sýni áætlanir, að hagkvæmt sé að leggja aðalorkuveitur frá orkuverum Landsvirkjunar til annarra orkuveitusvæða, skal einnig heimilt að tengja þau orkuverum fyrirtækisins.“ Orðalag till. er þá þannig, að orðið „fyrirtækisins“ í fyrstu setningu 2: málsl. 1. mgr. 3. gr. falli niður og í stað „fjárhagslega sé hagkvæmt“ komi „hagkvæmt sé“.
Ég leyfi mér að leggja þessa brtt. fram og afhenda hana hæstv. forseta og biðja um, að hann leiti fyrir henni afbrigða.