11.05.1965
Neðri deild: 88. fundur, 85. löggjafarþing.
Sjá dálk 1781 í B-deild Alþingistíðinda. (1597)

201. mál, Landsvirkjun

Frsm. 1. minni hl. (Skúli Guðmundsson):

Herra forseti. Það frv., sem hér liggur fyrir, er um að reisa stóra rafstöð í Þjórsá við Búrfell, og þar er einnig að finna till. um heimild til ríkisstj. til að ábyrgjast lán til þessarar virkjunar, allt að 1.204 millj. kr. Ef af framkvæmdum verður, verður þetta stærsta átak, sem gert hefur verið hér á landi í virkjunarmálum. Og víst er þess þörf, notkun rafmagns fer ört vaxandi og raforkuskortur yfirvofandi.

Á þskj. 747 liggur fyrir nál. frá 1. minni hl. fjhn. Í honum eru hv. 11. þm. Reykv. og ég. Við mælum með þessu frv. Við byggjum álít okkar á umsögn sérfræðinga, sem fylgja aths. með frv. Þeir telja stórvirkjun Þjórsár heppilegustu lausnina í rafmagnsmálum í þetta sinn.

Hér er stórt og þarft mál á ferð, en frv. þetta er þó gallagripur á ýmsan hátt. Það kemur mönnum ekki á óvart, þegar þess er gætt, að það er borið fram af núv. hæstv. ríkisstj. Þessa galla þarf að laga, en til þess gefst allt of naumur tími, þar sem stjórnin hefur fleygt málinu inn í þingið á allra síðustu dögum þess. Sú meðferð á þessu þýðingarmikla máli er óafsakanleg með öllu.

Frv. gerir ráð fyrir, að orkuverið við Þjórsá verði 210 þús. kw. Þetta er stór rafstöð. Segja má að fullnægjandi hefði verið að veita nú heimild til að ráðast í 1. áfanga væntanlegrar virkjunar og ábyrgð fyrir láni, sem hefði verið nægjanleg til þeirrar framkvæmdar, þar sem Alþ, hefði getað veitt viðbótarheimildir, jafnskjótt sem þörf var fyrir stækkun virkjunarinnar. Við flytjum þó ekki till. um takmörkun á heimildum, hvorki til virkjunar né ríkisábyrgðar fyrir láni, þar sem við gerum ráð fyrir, að fram komnar upplýsingar sérfræðinga um, að hagkvæmt sé að stefna að fullvirkjun Þjórsár við Búrfell, séu réttar og þótt þær framkvæmdir geti tekið alllangan tíma, þar sem hraði þeirra hlýtur að fara eftir orkuþörfinni. En það skal skýrt fram tekið, að þó að við mælum nú þegar með ríkisábyrgð fyrir allri þeirri upphæð, sem nefnd er í 15. gr. frv. og með heimild til þeirrar stóru virkjunar, sem um ræðir í 6. gr. þess, teljum við með öllu óheimilt að gera samning um raforkusölu til útlends fyrirtækis, án þess að sérstök lög um það hafi áður verið sett á Alþingi. Það teljum við heimildarlaust með öllu að gera slíkan samning án þess.

Allar meiri háttar framkvæmdir í raforkumálum hér á landi hafa verið gerðar af ríkinu eða með aðstoð þess. Þegar einstök bæjar- eða sveitarfélög hafa ráðizt í virkjanir fallvatna, hafa þau undantekningarlaust notið ríkisábyrgða til tryggingar lánum, sem þau hafa tekið til framkvæmdanna, og oft einnig beinnar aðstoðar ríkisstj. við útvegun lánsfjár. Með slíkri aðstoð ríkisvaldsins var komið upp virkjunum við Sogið, sem eru stærstu mannvirki þeirrar tegundar hér á landi. Og enn er það íslenzka ríkið, sem veitir ábyrgð og útvegar lánsfé erlendis til væntanlegrar Þjórsárvirkjunar samkv. frv., sem hér liggur fyrir.

Í sambandi við þetta stóra mál er skylt að taka til íhugunar, hvernig séð er fyrir raforkuþörf fólksins, sem býr í öðrum héruðum. Þar hafa verið reist nokkur raforkuver af ríkinu og önnur með aðstoð þess og síðustu 10 árin hefur verið unnið að dreifingu rafmagnsins um kauptún og sveitabyggðir. Enn eru þó hátt á annað þús. sveitabýli á landinu, sem hvorki hafa rafmagn frá samveitum né sérstökum vatnsaflsstöðvum og enn hafa ekki verið teknar ákvarðanir um framhald raflínulagna um sveitirnar, þótt telja megi, að nú sé um það bil lokið framkvæmd þeirrar 10 ára rafvæðingaráætlunar, sem unnið hefur verið eftir síðasta áratuginn. Þm. Framsfl. hafa lagt fram till. á síðustu þingum um, að gerðar yrðu áætlanir um rafvæðingu allra byggða og heimila á landinu og yrðu þær áætlanir miðaðar við, að því verki yrði lokið fyrir árið 1969. Stjórnarflokkarnir hafa staðið gegn þessum till. Till. um þetta efni var enn borin fram af framsóknarmönnum tímanlega á þessu þingi og enn varð ágreiningur um málið í þn., sem fékk till. til athugunar. Stjórnarflokkamennirnir í n., sem eru þar í meiri hl., hafa ekki annað fram að færa í þessu þýðingarmikla máli en till. um, að Alþ. vísi því til ríkisstj., sem hefur sýnt óskiljanlega tregðu í því að fallast á slíka áætlunargerð. Enn er því allt í óvissu um framkvæmdir. Raforkuráð er einn af þeim aðilum, sem á að fjalla um þetta mál, en þar eru engir fundir haldnir tímunum saman. Þar eru stuðningsmenn ríkisstj. í meiri hl. og bera ábyrgð á aðgerðaleysinu.

Það fólk, sem enn er án rafmagnsins, hefur lengi beðið þess með mikilli eftirvæntingu að fá vitneskju um, hvers það má vænta í þessu lífshagsmunamáli. En frá stjórnarvöldunum heyrist hvorki hósti né stuna. Frá þeim heyrist ekkert um fyrirætlanir þeirra og allt bendir til þess, að núv. ríkisstj. hafi svo takmarkaðan áhuga á að ljúka rafvæðingu sveitanna, að þær framkvæmdir dragist úr hófi fram. Af þessu hafa menn áhyggjur, sem vonlegt er. Ætla má, að ekki séu fleiri en 5% landsmanna, sem enn eru án raforku frá samveitum eða sérstökum vatnsaflsstöðvum. Það er ósæmilegt með öllu að láta þetta fólk verða lengi enn utan við ljósið og ylinn, sem rafmagnið veitir. Þjóðfélaginu ber skylda til að ljúka rafvæðingunni á allra næstu árum og það er vel framkvæmanlegt, ef nægur vilji er til þess. Það er lítið fjárhagslegt átak fyrir þjóðina. Og fólkið, sem enn er án rafmagnsins, á heimtingu á því að fá nákvæma vitneskju um það án frekari tafar, hvenær þörf þess fyrir rafmagnið verður fullnægt. Sú vissa, ef veitt verður, getur forðað því, að mörg vel nothæf býli og jafnvel heil byggðarlög leggist í eyði.

Svo að segja allir landsmenn, sem nú njóta rafmagnsins, hafa fengið þau hlunnindi með atbeina ríkisins. Og enn er það ríkið, sem á að útvega lánsféð til þeirrar stórvirkjunar, sem um ræðir í þessu frv. og taka á sig ábyrgð á greiðslu þess. Það er því eðlilegt, að í sambandi við þetta mál verði tekið til íhugunar, með hvaða kjörum landsmenn fá rafmagnið frá þeim aflstöðvum og orkuveitum, sem ríkið hefur komið upp eða veitt óhjákvæmilega aðstoð til að koma upp. Í fjhn. komu fram upplýsingar um þetta atriði frá yfirmönnum raforkumálanna. Rafmagnsveitustjóri ríkisins skýrði okkur frá því, að heildsöluverð á rafmagni frá rafmagnsveitum ríkisins mundi nú vera um það bil 30% hærra, en heildsöluverð frá Sogsvirkjuninni, sem ríkið á að hálfu leyti. Og hann gizkaði á, að söluverð á rafmagni frá héraðsrafmagnsveitum ríkisins sé nú um það bil 40–50% hærra, en verðið hjá Rafmagnsveitu Reykjavíkur. Þessi verðmismunur þarf að hverfa. Ríkið er stærsti raforkuframleiðandi og raforkusali landsins. Það á helming Sogsvirkjunarinnar og rafstöðvar í öllum landsfjórðungum. Allir landsmenn eiga að njóta sömu viðskiptakjara hjá raforkuverzlun ríkisins. Þetta er réttlætismál. Því flytjum við brtt. við frv. um, að inn í það verði bætt nýrri gr., sem mælir svo fyrir, að söluverð rafmagns frá rafmagnsveitum ríkisins til héraðsrafmagnsveitna skuli vera jafnhátt því verði, er Rafmagnsveíta Reykjavíkur greiðir Landsvirkjun fyrir rafmagn og verð á rafmagni frá héraðsrafmagnsveitum ríkisins til notenda skuli vera það sama og rafmagnsverð hjá Rafmagnsveitu Reykjavíkur. Enn fremur að ríkissjóður skuli greiða þann halla, sem verða kann á rekstri rafveitna ríkisins vegna þessarar breytingar. Þetta er 2. brtt. á þskj. 747.

Sumir kunna að segja, að þetta ákvæði eigi ekki heima í frv. um Landsvirkjun, en það er misskilningur. Með þessu frv. er stefnt að því, að ríkið gerist enn stærri raforkuframleiðandi og rafmagnssali en áður og þá er fyllilega tímabært að setja í lög, að ríkið selji öllum landsmönnum þessar nauðsynjar með sama verði. Fleiri rök hníga að því, að einmitt nú eigi að setja þetta í lög. Við 1. umr. um þetta mál vakti hv. 11. þm. Reykv. athygli á fyrirmælum 13. gr. frv., þar segir svo, að fella skuli niður aðflutningsgjöld og söluskatt á efni, tækjum og vélum til virkjunarinnar, en þetta er nýmæli í l. Engar upplýsingar liggja fyrir um þær fjárhæðir, sem ríkissjóður gefur Landsvirkjuninni eftir með þessu ákvæði frv., en þar er vitanlega um stórfé að ræða. Og sú eftirgjöf á ríkisgjöldum styður mjög þá till. að um leið verði ákveðið, að ríkið leggi fram fé til lækkunar á rafmagnsverði í öðrum landshlutum, en af vélum og efni til raforkuvera og orkuveitna, sem þar hefur verið komið upp, hafa ætíð verið greidd full aðflutningsgjöld samkv. landslögum.

Ég vil þessu næst gera grein fyrir öðrum brtt. okkar hv. 11. þm. Reykv., sem við flytjum á þskj. 747.

1. brtt. okkar er við 3. gr. frv. Í henni er rætt um verkefni Landsvirkjunar. Þar vantar skýr fyrirmæli um, að fyrirtækið eigi að fullnægja raforkuþörf allra landsmanna. Sú stofnun, sem ber það stóra heiti, Landsvirkjun, á að vera þjónustufyrirtæki fyrir alla þjóðina. Geri hún það ekki, kafnar hún undir nafni og til þess að ákveða þetta verkefni virkjunarinnar leggjum við til í 1. brtt. okkar, að 3. gr. frv. orðist á þessa leið, með leyfi hæstv. forseta:

„Starfsemi Landsvirkjunar skal í upphafi beinast að öflun raforku fyrir þau orkuveitusvæði, sem nú eru tengd Sogsvirkjun. Það er einnig verkefni Landsvirkjunar að fullnægja raforkuþörf allra landsmanna og reisa í því skyni aflstöðvar og aðalorkuveitur eftir nánari ákvörðun Alþ. Sama gjaldskrá fyrir rafmagn frá Landsvirkjun skal gilda um land allt.“

Það var svartur blettur á frvgr., þegar hún var lögð fyrir þingið. Þar kom fram blákalt peningasjónarmið. Þar var sagt, að ef áætlanir fyrirtækisins sýni, að það sé fjárhagslega hagkvæmt að leggja orkuveitur frá landsvirkjun út fyrir Suðvesturlandið, skuli það heimilt, annars ekki. Ekkert vikið að því, að fullnægja beri þörfum manna fyrir rafmagn. Hv. d. bar gæfu til að þvo þennan ljóta blett af gr. að verulegu leyti. Eins og hún er nú orðuð, má lesa það út úr henni, að gróðasjónarmið eigi ekki að ráða, a.m.k. ekki eingöngu. En þrátt fyrir mikilsverða lagfæringu í Ed. þarf ð gera betur og því flytjum við okkar till., þá er ég las hér áðan.

Upphaf 7. gr. frv. er þannig: „Til byggingar nýrra aflstöðva og aðalorkuveitna þarf Landsvirkjun leyfi ráðh. þess sem fer með raforkumál.“ Samkv. raforkul. á Alþ. að taka ákvarðanir um byggingu stærri rafstöðva. Það fyrirkomulag viljum við láta haldast og leggjum því til í 3. brtt. okkar, að 1. málsl. gr. falli niður. Af því mundi það auðvitað leiða, að þessi ákvæði raforkul. héldust í fullu gildi.

Þá eru loks brtt. okkar við 11. gr. frv. Í fyrri mgr. eru fyrirmæli um ákvörðun raforkuverðs frá Landsvirkjuninni. Samkv. því á Landsvirkjunin sjálf eða stjórn hennar að ákveða verðið á rafmagninu, sem hún selur. Í l. um Sogsvirkjun er ákveðið hámarksverð á rafmagni. Það er ekki í þessu frv.

Ríkið heldur uppi kostnaðarsömu verðlagseftirliti. Það eru margir ríkislaunaðir menn, sem ákveða m.a. útsöluverð á títuprjónum, vasaklútum og öðrum slíkum varningi. En samkv. frv. þessu á einkasölufyrirtækið, sem verzlar með rafmagn, sem almenningur þarf að kaupa og borgar mikið fyrir, að fá sjálfdæmi um söluverð þess. Ekki er hægt að segja, að samræmið sé gott í verðlagningarmálunum hjá hæstv. ríkisstj. Við flytjum till. um, að ráðh. raforkumála skuli staðfesta gjaldskrá Landsvirkjunar.

Síðari mgr. 11. gr. frv. er ekki síður íhugunarverð, en sú fyrri. Þar kemur fram mjög varhugaverð stefna. Því hefur verið haldið fram af lærðum mönnum og leikmönnum í þessum efnum, að einn höfuðkosturinn væri sá við stórar virkjanir, að frá þeim gæti almenningur fengið ódýrara rafmagn, en frá litlum aflstöðvum. Og trúlega er þetta rétt. En ég fæ ekki betur séð, en að með ákvæðum mgr. sé strikað yfir vonir manna um lægra raforkuverð, sem þeir ættu að geta notið vegna þess, hve Þjórsárvirkjunin er stór. Í gr. er m.a. rætt um orkusölusamninga til langs tíma við stóriðjufyrirtæki. Líklega gægist þarna fram draumur ríkisstj. um orkusölusamning við útlent fyrirtæki og síðan segir í niðurlagi mgr.: „Slíkir samningar mega ekki að dómi ráðh. valda hærra raforkuverði til almenningsrafveitna en ella hefði orðið.“

Þarna segir, að stóru samningarnir megi ekki valda hærra raforkuverði til almenningsrafveitna en ella hefði orðið. M.ö.o.: raforkuverðið til almennings má vera jafnhátt og það hefði orðið án orkusölu til stórra iðjufyrirtækja, aðeins ekki hærra. Þetta væri hægt að framkvæma þannig, að hin stóru iðjufyrirtæki hafi ein hagnaðinn af því, hve virkjunin er stór og aðrir ekki. Við teljum ekki rétt að samþykkja þessa mgr., eins og hún liggur fyrir. Því leggjum við til, að hún falli niður, en í hennar stað komi ný mgr., sem verði þannig orðuð, með leyfi hæstv. forseta:

„Til orkusölusamninga við iðjufyrirtæki, sem nota meira en 100 millj. kwst. á ári, þarf Landsvirkjun samþykki Alþingis.“

Þetta er síðasta brtt. okkar á þskj. 747. Herra forseti. Ég hef lokið að ræða um brtt. okkar, sem skipum 1. minni hl. fjhn. Ég vil að síðustu bera fram þá ósk, að væntanleg framkvæmd samkv. þessu frv. verði þjóð vorri til hagsbóta. Það er von mín, að m.a. vegna þessarar framkvæmdar verði vel séð fyrir rafmagnsþörf heimilanna næstu áratugi og að íslenzkur iðnaður, sem rekinn er af íslenzkum mönnum, geti þar fengið nægilegt afl til að knýja sínar vélar.