10.05.1965
Neðri deild: 87. fundur, 85. löggjafarþing.
Sjá dálk 1804 í B-deild Alþingistíðinda. (1619)

202. mál, Laxárvirkjun

Landbrh. (Ingólfur Jónsson):

Herra forseti. Frv. til l. um Laxárvirkjun var flutt í Ed. og hefur fengið afgreiðslu þar. Smávegis breytingar voru gerðar á 2. gr. frv. og eru þær prentaðar á þskj. 705. Þetta eru nánast aðeins orðalagsbreytingar, en meiningin sú sama.

Með þessu frv., sem hér liggur fyrir, er öllum megindráttum að núgildandi l. um Laxárvirkjun fylgt, en með frv. er ætlazt til, að heimilað verði að virkja til viðbótar í Laxá 12 þús. kw virkjun, sem gert er ráð fyrir, að kosti um 160 millj. kr., án línu til Akureyrar. Verði hins vegar virkjuð 23 þús. kw virkjun þar, kostar hún 294 millj., en þá er komin þar í ný lína, þar sem gamla línan er ekki talin geta flutt svo mikið. Það er álít Laxárvirkjunarstjórnar, að fyrst um sinn sé nóg að virkja 12 þús. kw. og er því heimildin miðuð við það. Þessi virkjun er ekki mjög hagstæð, en þó með betri virkjunum af minni stærðinni og eru ýmsir bæði í bæjarstjórn Akureyrar og Laxárvirkjunarstjórn, sem telja eftir atvikum hentugra að virkja til viðbótar við Laxá nú þegar frekar en að ganga inn í Landsvirkjunina og gerast aðilar í henni strax og fullnægja þá orkuþörfinni á Akureyri með dísilvélum, þar til raforka fengist þaðan. Um það skal þó ekkert fullyrt, hvort þessi heimild verður notuð, um 12 þús. kw. virkjun eða hvort Norðlendingar ganga strax inn í Landsvirkjunina, eins og heimilt er.

Með þessu frv. er gert ráð fyrir því að heimila einnig Laxárvirkjunarstjórn að leggja streng frá Laxárvirkjun til Austurlands og einnig að leggja streng frá Akureyri til Norðvesturlands. Þetta er aðeins heimild og er sá möguleiki vitanlega fyrir hendi eftir sem áður að taka til nánari athugunar, hvort unnt er með hagkvæmari hætti að leysa raforkumál Norðvesturlands fyrst um sinn með því, að virkja Svartá, eins og lagt hefur verið til, en enn hefur ekki fengizt nákvæmur úrskurður um það, hvort það muni vera hagstæðara að virkja þar heldur en að leggja streng. Raforkumálastjóri hefur verið að vinna að því að gera þennan samanburð, en skýrsla frá honum um þetta atriði liggur ekki enn fyrir og bíður það þess vegna síns tíma. Sama máli gegnir með strenginn frá Laxá austur, að það er vitanlega mögulegt þrátt fyrir þessa heimild að halda áfram athugunum um raforkumál Austurlands, hvort mögulegt væri að leysa þau með öðrum og heppilegri hætti, en fróðir menn telja, að það muni naumast vera.

Gert er ráð fyrir, að stjórn Laxárvirkjunar skipi 5 menn, 2 verði kosnir af bæjarstjórn Akureyrar, 2 skipaðir af ríkisstj. og 1 kosinn af eignaraðilum og nái þeir ekki samkomulagi, skipi hæstiréttur, það er sama ákvæði og er í Landsvirkjunarfrv. Eins og nú er, á ríkissjóður 35% í Laxárvirkjun, en Akureyrarkaupstaður 65%, en eftir næstu stækkun við Laxá gerist ríkið eigandi að helmingi.

Um tollaeftirgjöf er sama ákvæði og í Landsvirkjunarfrv. Er og gert ráð fyrir því, að ríkissjóður láni Laxárvirkjun 120 millj. kr. með kjörum, sem fjmrh. ákveður og er það nokkru hærra hlutfall, en gert er ráð fyrir, að ríkissjóður láni Landsvirkjun. Þá er gert ráð fyrir, að ríkissjóður leggi Laxárvirkjun til óafturkræft framlag, 5 millj. kr., gegn jöfnu framlagi Akureyrarkaupstaðar.

Ég tel ekki ástæðu til við þessa 1. umr. að fara fleiri orðum um þetta mál, en vil leggja til, herra forseti að, að lokinni þessari umr. verði málinu vísað til 2. umr. og hv. fjhn.