05.05.1965
Neðri deild: 82. fundur, 85. löggjafarþing.
Sjá dálk 1834 í B-deild Alþingistíðinda. (1638)

181. mál, tekjustofnar sveitarfélaga

Frsm. 2. minni hl. (Hannibal Valdimarsson):

Herra forseti. Undir venjulegum kringumstæðum hefðu sennilega orðið alllangar og ýtarlegar umr. um mál eins og það, sem hér er á dagskrá útsvarslög. Bæði er það, að málið er allvíðtækt og stórt, kemur við margra hag, og ekki skiptir raunar litlu máli, hvaða ytri ramma Alþ. markar meðferð þessara mála, skattlagningu á þegnana að því er varðar greiðslu þeirra til sveitarfélaganna. En eins og nú stendur, þegar Alþ. er í algerri tímaþröng og þarf að afgreiða fjölda stórmála á örskömmum tíma, held ég, að sé rétt að beygja sig undir það að stytta mál sitt og hjálpa þannig heldur til, að það megi takast að afgreiða sem flest af þeim stórmálum, sem að þinginu kalla núna á allra síðustu dögum.

Ég er þeirrar skoðunar, að það sé full þörf á því að gerbreyta tilhögun skattlagningar á þegnana til ríkis og sveitarfélaga og e.t.v. væri það réttasta leiðin, að ríkið innheimti einn skatt, sem síðan væri skipt milli ríkissjóðs og sveitarfélaganna eftir ákveðnum reglum. En slík grundvallarbreyting verður vafalaust ekki gerð nema að vandlega athuguðu máli og að höfðu samráði við sveitarstjórnarmenn víðs vegar um landið eða þá samtök sveitarfélaganna a.m.k. Þá er ég einnig þeirrar skoðunar, að við séum e.t.v. á rangri leið með því að lögbjóða útsvarsstiga fyrir hinar ólíku gerðir sveitarfélaga í landinu og tel raunar misráðið að hafa þá tilhögun. Ég held, að ef vit ætti að vera í þyrfti að vera þrenns konar útsvarsstigi fyrir hinar þrjár megintegundir sveitarfélaga, þ.e.a.s. sveitarfélög með þrenns konar mjög mismunandi aðstöðu, eða þá, sem ég gæti einnig fellt mig við, að einungis væri lögfestur útsvarsstigi fyrir kaupstaðina, en kauptúnahreppum og sveitahreppum væri eins og áður fyrr gefið frjálsræði til að haga álagningu eftir efnum og ástæðum og það fyrirkomulag er í hinum fámennari sveitarfélögum a.m.k. mjög vel framkvæmanlegt og yrði í mörgum tilfellum réttlátara, en þegar farnar eru hinar vélrænu leiðir, því að þá er með þeirri aðferð hægt, þegar kunnugleiki og samvizkusemi fylgjast að hjá forráðamönnum sveitarfélags, niðurjöfnunarnefnd eða sveitarstjórn, að taka mannleg tillit, sem eiga einnig í peningasökum, einnig í skattlagningu á þegnana fyllilega rétt á sér.

Þá get ég enn fremur lýst því sem minni skoðun, að ég teldi það mjög æskilegt, að útsvör væru innheimt um leið eða samtímis því sem tekjur falla til og menn fengju þannig ekki í hendur þær stóru upphæðir, sem þeir í raun og veru eiga ekki sem ráðstöfunarfé, heldur verður frá upphafi að reikna með, að sé þeirra framlag til hinna sameiginlegu mála sveitarfélagsins. Þetta mál hefur verið rætt við hæstv. ríkisstj. m.a. í sambandi við þetta mál, og þær upplýsingar gefnar, að unnið sé að því að breyta fyrirkomulagi útsvarsmálanna á þann veg, að útsvörin verði innheimt samtímis því sem tekjur falla til og ætlunin sé þannig að koma til móts við þessar almennu óskir, en þetta sé svo erfitt og vandasamt mál, að þó að unnið sé kappsamlega að því geti það ekki komið til framkvæmda á árinu 1965 og það muni í fyrsta lagi geta komið til framkvæmda á árinu 1966. Um það er því ekki að ræða að gera þá breytingu nú.

Allt það, sem ég nú hef nefnt, mætti kalla grundvallarbreytingar á útsvarslöggjöf. En þegar málið ber að af slíkri skyndingu sem nú og svo seint á þingtíma, er engin aðstaða til þess að athuga eins og nauðsynlegt er slíkar grundvallarbreytingar og undirbyggja þær þannig, að á viti væri byggt. Allt slíkt verður því að láta bíða í trausti þess, að unnið verði að æskilegum og nauðsynlegum breytingum þessara mála í grundvallaratriðum og láta þær lagfæringar koma til framkvæmda eins fljótt og tök væru á.

Um málið almennt skal ég ekki ræða frekar að þessu sinni og mun þá snúa mér fyrst að því frv., sem hér liggur fyrir, eins og það var lagt fram, þeim breyt., sem það hefur hlotið í meðferð n., og þeim brtt., sem ég flyt við frv.

Þegar frv. var lagt fram, var auðséð, að ef það yrði samþ. í því formi, mundu útsvarsgreiðslur gjaldenda velflestra, sennilega nálega allra verða að krónutölu eigi lægri en á s.l. ári. En á s.l. ári reis mjög mikil óánægja með útsvörin, ekki hvað sízt hér í Reykjavík og held ég, að segja megi, að sú óánægja var ekki innantómt nöldur skattþegna, sem alltaf eru óánaegðir með sínar útsvarsbyrðar, — en slíkir nöldrarar eru til, það vitum við allir eða flestir, – heldur var þarna verið að tjá almenna óánægju, það var verið að kveinka sér undan því, að skattlagningin gengi of nærri brýnustu þurftartekjum fjölda heimila í landinu. Aðalbroddur óánægjunnar var vafalaust fólginn í þessu, að menn töldu, að þeir hefðu ekki fjárhagslegt bolmagn til að inna af hendi þá skatta, sem skattskráin gerði þeim að greiða. En tvo þætti óánægjunnar, hinnar almennu óánægju, verður þó ekki komizt hjá að nefna einnig. Það var í annan stað óánægja út af því, að margir af hinum sterkustu máttarstólpum þjóðfélagsins efnahagslega bæru hins vegar, samanborið við hinar lægri tekjustéttir, einkanlega í röðum launamannanna, tiltölulega léttar skattabyrðar, þannig að menn þóttust geta fótað sig á því, að skattabyrðunum væri ranglátlega deilt niður á þegnana, sumir bæru allt of þungar byrðar og öðrum væri gerð byrðin svo létt, að engu tali tæki og ekkert samræmi væri í. Og þriðji þátturinn í óánægjunni var tvímælalaust byggður á því, að menn töldu sig hafa það fyrir augum, að skattaeftirlitið væri svo slappt, að stórfelld skattsvik ættu sér stað og um leið og hinar þyngstu byrðar væru lagðar á suma þegnana, héldist öðrum uppi að gefa upp til skatts það, sem þeim þóknaðist og bera þannig byrðar eftir eigin ákvörðun, sjálfsákvörðun, þoka sér þannig undan því að bera sínar réttmætu byrðar og auðvitað koma þeim þar með yfir á herðar annarra, sem minni styrkleika hefðu þó í mörgum tilfellum til þess að bera þær.

Þegar frv, lá hér fyrir, var sem sé ljóst, að ef því yrði ekki breytt, mundu útsvarsbyrðar á launastéttunum a.m.k. verða að krónutölu, sízt minni en á s.l. ári, en að vísu að hundraðshluta í flestum tilfellum ívið lægri, en á liðnu ári. Það var því sýnt, að í frv. fólst ekki sú leiðrétting, sem mjög almennt var lofað af framámönnum þjóðfélagsins á liðnu sumri, að gera þyrfti og gera skyldi, áður en menn þyrftu að opna budduna aftur til þess að greiða sín útsvör og sína skatta. Leiðréttingin, sem í frv. fólst, var eingöngu lagfæring í samræmi við aukna verðbólgu eða vegna aukinnar verðbólgu og hækkaðra tekna í krónutölu, sem þó er vafasamt að hafi nú meira kaupgildi, en þær tekjur, sem menn höfðu árið áður. Það var sýnt, að útsvörin mundu verða flestum, a.m.k. launastéttunum, jafnþungbær og s.l. ár, en það þýðir, að þá, ef ekki eru neinar breytingar á, mundi reyndin verða sú, að mikill þorri gjaldþegnanna teldi gjaldgetu sinni ofboðið og sams konar alda mundi rísa út af meintri ofsköttun og reis s.l. sumar.

Síðan frv. var lagt fram, hafa verið gerðar á því nokkrar lagfæringar, sem er hægt að meta þannig, að útsvarsbyrðin mundi verða nokkru léttari á lágtekjufólki, en s.l. ár og núna í meðferð n. var gerð ein breyt., sem ég skal ekki gera of lítið úr, þ.e. sú breyting, að frádráttur fyrir hvert barn á framfæri gjaldþegns innan 16 ára aldurs skuli hækka úr 5 þús. kr., eins og nú er í lögum og í 10 þús. kr., þ.e.a.s. hækka um 100% . Þarna er greinilega, — því verður ekki neitað, — komið til móts við hagsmuni barnafjölskyldnanna og tel ég það mjög vel farið. Persónufrádrátturinn, sem nú er 25 þús. kr., hefur að tillögu meiri hl. n. verið hækkaður í 25 þús. kr. á einstakling og 50 þús. kr. á hjón, og er það um 40% hækkun. Hins vegar er talið, að tekjur manna að meðaltali muni eftir þeim könnunum, sem fram hafa farið, hækka nálægt 30%. Allar þessar breytingar, sem felast í nál. meiri hl., stefna í rétta átt og munu allir nm. fylgja þeim, þar sem þær eru vissulega til bóta. Þó klofnaði n, um afgreiðslu málsins og er þríklofin og hefur 1. minni hl. nú þegar gert grein fyrir áliti sínu og brtt. Mun ég nú með örfáum orðum gera grein fyrir þeim brtt., sem ég flyt fyrir hönd Alþb.

1. brtt. mín er við 10. gr. gildandi útsvarsl., en sú gr. fjallar um aðstöðugjöldin. Það er skoðun mín, að það sé ekki auðvelt mál að létta, eins og nauðsyn er, útsvarsbyrðarnar á einstaklingunum og þar með ekki heldur á launastéttunum vegna tekjuþarfar, brýnnar tekjuþarfar sveitarfélaganna, nema því aðeins að þyngd sé byrðin á félagsrekstri og atvinnurekstri yfirleitt og þá m. a, hækkuð aðstöðugjöldin. Í 10. gr. útsvarsl. eru heimildir til þess að leggja aðstöðugjald á eftir vissum reglum, þannig að greiða skuli allt að 1/2% af rekstri fiskiskipa og flugvéla, allt að 1% af rekstri verzlunarskipa og af fiskiðnaði, allt að 11/2% af hvers konar iðnaðarrekstri öðrum og allt að 2% af öðrum atvinnurekstri. Sum sveitarfélög nota þessar heimildir til fulls, en önnur sveitarfélög hafa ekki notað þær til fulls og eru heimildirnar þó að mínu álíti sízt of rúmar, ef jafnvægi á að vera á milli þeirra byrða, sem lagðar eru á atvinnulífið annars vegar og á einstaklingana hins vegar. Ég tel ekki rétt, að sveitarfélögin hafi þá leið opna að nota kannske þessar heimildir til aðstöðugjaldsálagningar, ekki nema að hálfu leyti t.d., önnur nota þær hins vegar að fullu, en þau, sem ekki nota heimildirnar að fullu, velta enn þyngri byrði yfir á einstaklingana. Brtt. mín við þessa grein er því á þá lund, að aðstöðugjaldið skuli ekki aðeins vera í heimildarformi, megi ekki hærra vera, en þarna segir, heldur skuli vera eins og þarna segir: 1/2%, 1%, 11/2% og 2%, en við prósentufætinum hreyfi ég ekki og ætlast þannig ekki til, að aðstöðugjöldin hækki í þetta sinn umfram það, sem verið hefur hjá þeim sveitarfélögum, sem hafa notað heimildina til fulls.

Þetta er hugsað á þann veg, að sveitarfélög þau, sem hafa ekki notað heimildina til fulls, verði nú að gera það og geti þannig þolað eitthvað af þeirri tekjuskerðingu, sem vissulega leiðir af till. eins og þeim, að persónufrádráttur sé hækkaður, frádráttur fyrir börn innan 16 ára aldurs sé hækkaður o.s.frv., sem leiðir af þeim till., sem um það eru að lækka útsvarsbyrðar á lágtekjum og miðlungstekjum. Till. mín er sem sé, að í staðinn fyrir, að aðstöðugjald megi vera allt að, eins og í l. segir, skuli aðstöðugjaldið vera sem hér segir og sömu prósentutölur nefndar og í gildandi lögum. Þetta er 1. brtt. mín.

Þá er 2. brtt. einnig hugsuð á sama veg, þann, að sveitarfélög þau, sem verða fyrir tekjuskerðingu vegna till., sem miða að því að létta útsvör á lágtekjum og miðlungstekjum, fái aukinn tekjustofn til þess að fylla þarna í skarðið að nokkru og gera þeim fært að létta byrðina eitthvað á einstaklingunum, sérstaklega lágtekjufólki, og þessi till. er um landsútsvörin og efni hennar er það að leggja landsútsvör á miklu fleiri aðila, en gert er samkv. gildandi lögum. 17. gr. núgildandi útsvarslaga er um landsútsvör og þar eru talin upp þau fyrirtæki, sem slík útsvör eiga að greiða, en þessi landsútsvör eiga síðan, eins og kunnugt er, að skiptast niður á sveitarfélögin eftir brýnustu þörfum þeirra samkv. ákveðnum reglum. Eins og nú er ákveðið í l., eru það fyrst og fremst viðskiptastofnanir ríkisins sjálfs og svo olíufélögin, sem greiða landsútsvör. Till. mín um þá aðila, sem landsútsvör skulu greiða, er á þessa leið, með leyfi hæstv. forseta:

„Þau fyrirtæki og stofnanir, sem reka starfsemi, sem nær til landsins alls, svo sem olíufélög, skipafélög, bankar, tryggingafélög, heildsölufyrirtæki, þar með Samband ísl. samvinnufélaga, útflutningssamtök, verzlunarstofnanir ríkisins, þar með talin Sölunefnd varnarliðseigna, einnig Síldarverksmiðjur ríkisins, Áburðarverksmiðjan, Sementsverksmiðja ríkisins, Viðtækjaverzlun ríkisins, Landssmiðjan og Ríkisprentsmiðjan Gutenberg, svo og þau fyrirtæki önnur, sem félmrn. úrskurðar, að samkv. eðli málsins falli undir þessi ákvæði.“

Ef þessi till. væri samþ., mundu landsútsvörin nema miklu hærri upphæðum en nú, jöfnunarsjóður sveitarfélaganna þannig fá miklu meiri tekjur og þau félög, sem harðast yrðu úti vegna minnkaðra útsvarstekna af lágtekjufólkinu, fengju þannig nokkrar uppbætur á móti. Þetta er sem sé hugsað til þess að gera ýmsum sveitarfélögum auðveldara að létta nokkuð útsvarsbyrðina á einstaklingum.

Næsta brtt. mín er við 18. gr. útsvarsl., en í þeirri gr. segir, að upphæð landsútsvaranna skuli vera 5% af hagnaði ríkisfyrirtækja, 11/2% af heildarsölu stofnana þeirra, sem um getur í 17. gr., þ.e.a.s. ríkisfyrirtækjanna, sem þar eru talin upp og 11/3 af heildarsölu olíufélaga, sbr. 17. gr., c–lið. Ég legg til, að upphæð landsútsvaranna verði eins og segir í gildandi gr., 5% af hagnaði ríkisfyrirtækjanna, því breyti ég ekki, en síðan 2% af heildarsölu annarra stofnana og fyrirtækja, sem landsútsvör skulu greiða, í staðinn fyrir 11/2 og 11/3%. Sé ég sízt ástæðu til þess að lægst prósentutala sé á landsútsvari olíufélaganna. Ég held, að þau hljóti að geta borið 2% eins og þær aðrar stofnanir, sem þá byrði eiga að bera.

Þá er næsta till. mín, hún er við 30. gr. útsvarsl. og er um það, að verkafólki, sem vinnur við fiskiðnað, svo og hafnarverkamönnum verði veitt nokkur fríðindi um útsvarsgreiðslur, að upphæð mjög áþekk þeim fríðindum, sem veitt hafa verið um skeið og veitt eru sjómönnum. Þetta er ekki hugsað einu sinni sem fríðindi fyrir þetta láglaunafólk, sem þarna á hlut að máli, hafnarverkamenn og það fólk, sem vinnur við fiskiðnaðinn í landinu, heldur einnig til þess að stuðla að því að greiða nokkuð úr þeim vanda, sem atvinnurekendur, eigendur hraðfrystihúsa og þeir, sem eiga að sjá um afgreiðslu skipa í höfnum, eru í og þeir geti fengið nauðsynlegan vinnukraft, nauðsynlegt vinnuafl til þess að inna þessi störf af hendi. Ýmsar aðrar atvinnugreinar gera það nú að yfirborga fólk, borga því miklu hærra kaup, en umsamdir stéttarfélagataxtar og samningar segja til um og draga þannig fólk frá framleiðslustörfunum og svo er komið, að það er miklum erfiðleikum bundið hér í Reykjavíkurhöfn og í Hafnarfirði að afgreiða togara, losa togara, nema hyllzt sé til þess, að togarinn komi inn, þegar helgidagur fer í hönd. En það hentar ekki alltaf. En komi skipin inn á öðrum tímum, er mjög undir hælinn lagt, að hægt sé með eðlilegum hætti að losa togara. Þetta er af því, að vinnuaflsskorturinn er slíkur. Aðrar atvinnugreinar eru búnar að taka fólkið til sín með yfirborgunum, að sumu leyti er í ýmsum tilfellum um léttari vinnu að ræða, en svo vantar fólkið þarna til starfa. Ég er þess vegna alveg viss um, að atvinnurekendur, sem hér eiga hlut að máli, mundu telja, að þessi brtt. væri alveg eins sér í hag og verkafólkinu hins vegar. En brtt. er á þá leið, að aftan við k– lið 30. gr. komi nýr bókstafsliður, I. svo hljóðandi:

„Verkafólki, sem vinnur við hvers konar fiskiðnað og hafnarverkamönnum skal veittur sérstakur frádráttur, 700 kr. fyrir hverja viku, sem þeir vinna að viðkomandi störfum, enda hafi þeir unnið þau störf, ekki skemur en sex mánuði af skattárinu. Nánari reglur um skattfríðindi þessi skulu settar með reglugerð, ef þurfa þykir.“

700 kr. á viku, það eru tæpar 3 þús. á mánuði,og er sú upphæð mjög í samræmi við þau skattfríðindi, sem sjómenn hafa notið. Um þessa till. skal ég ekki fjölyrða frekar, en tel, að þessi fríðindi, sem þarna er lagt til að veitt verði, beri að veita verkafólki, sem vinnur á lægstu töxtum karla og kvenna, vinnur beint að framleiðslustörfunum, þar sem nú skortir vinnuafl og mundi sem sé að mínu áliti vera til hags báðum aðilum vinnumarkaðarins, svo langt sem þessi till. nær. Vissulega kostar hún sveitarfélögin skerðingu tekna, hjá því verður ekki komizt og það er kannske ókostur hennar, að hún skerðir mismunandi mikið tekjur sveitarfélaganna eftir því, hvað fiskiðnaður og hafnarvinna er mikill þáttur í atvinnulífinu, og þar mest, sem mest er byggt á þeirri atvinnugrein. En það skiptir líka mestu máli, að það takist að fá fólk til þessara starfa.

Næsta brtt. mín er við 31. gr. og er um persónufrádráttinn. Ég legg til, að persónufrádráttur einstaklinga verði 50 þús. kr. og fyrir hjón 70 þús. kr. og fyrir hvert barn innan 16 ára aldurs verði frádráttur 10 þús. kr., en sú till. er shlj. þeirri till., sem meiri hl. flytur og ég hef áður minnzt á. Ég tel það fásinnu mestu að ætla sér að seilast eftir útsvarstekjum af tekjum fyrirvinnu innan við 50 þús. kr. og ég tel, að þjóðfélagið geti ekki gert það og verði, ef sveitarfélögin eru í tekjuþröng, að leita einhverra annarra úrræða, en að skerða slíkar lágtekjur, 50 þús. kr., sem vitað er, að engan veginn duga neinum manni til neins sómasamlegs lífsframfæris og mega þannig ekki skerðast, en hljóta þó að skerðast af þeim beinu útgjöldum, sem á hvern einasta einstakling leggjast, hvort sem hann er tekjuhár eða tekjulágur, þ.e.a.s. almannatryggingagjöldum og sjúkrasamlagsgjöldum, sem samtals nema ekki minna en milli 5 og 6 þús. kr. og kemur sú skerðing óumflýjanlega á, þó að þessi upphæð væri útsvarsfrjáls og er það ærin skerðing.

Ég taldi ekki ástæðu til að nefna hærri upphæð vegna barna á framfæri gjaldenda, en 10 þús. kr. Það var sú upphæð, sem við höfum í tilmælum okkar til hæstv. ríkisstj. nefnt, og ég fer ekki í neitt yfirboð yfir það, þó að meiri hl. hv. n., sjálfsagt að tilstuðlan ríkisstj., hafi orðið við þeirri upphaflegu kröfu. Þess vegna held ég mér við þá upphæð. Hitt er rétt, að barnafjölskyldum veitir auðvitað ekki af meiri frádrætti vegna barna innan 16 ára aldurs, einkanlega þegar þau eru komin á unglingsaldurinn, heldur en þarna er farið fram á. Það veitir ekki af því. En hér er um mikla lagfæringu að ræða frá því, sem var, þegar þessi frádráttur var einungis 5 þús. kr., og hækkun þannig 100%.

Þá er næstsíðasta till. mín, sem er um breytingu á útsvarsstiganum, en hann er í gildandi l. ákveðinn í 32. gr. Þar er meginbreyting mín sú, að skattþrepunum verði fjölgað, þau verði sex og að fyrsta þrepið byrji með 5%, en hæsta þrepið endi á 30% og þannig verði efri hluti útsvarsstigans eins og hann er samkv. till. meiri hl., en breytingarnar séu einungis á neðri hluta stigans, þ.e.a.s. á hinum lægri tekjum, frá 20 þús. og upp í 60 þús. kr., en eftir það er ekki um breytingu að ræða í þessari till. Till. er, með leyfi hæstv. forseta, á þessa leið, að einstaklingar og hjón greiði af fyrstu 20 þús. kr. útsvarsskyldum 5%, fái 1.000 kr. útsvar, af 20–30 þús. kr. greiðist 1.000 kr. af 20 þús. og 10 þús. af afganginum, af 30-40 þús. kr. greiðist 2.000 kr. af 30 þús. og 15% af afganginum, af 40–50 þús. kr. greiðist 3.500 kr. af 40 þús. og 20% af afganginum, af 50–60 þús. kr. greiðist 5.500 kr. af 50 þús. og 25% af afganginum og af 60 þús. kr. og þar yfir greiðist 8.000 kr. af 60 þús. kr. og 30% af afganginum.

Að lokum legg ég svo til, að síðasti málsl. 34. gr. útsvarsl., sem er á þá leið, að sveitarfélögum sé heimilt að leggja allt að 20% ofan á hinn löggilta útsvarsstiga, ef sveitarfélagið er í fjárþröng og getur ekki staðið við fjárhagsáætlun sína að öðrum kosti, — ég legg til, að þessi heimild verði þrengd og engu sveitarfélagi verði heimilað að bæta ofan á útsvarsstigann meira en 10%. Þessi rúma heimild um að gefa afslátt af útsvörunum eða leggja prósentu ofan á öll álögð útsvör gerbreytir í raun og veru útsvarsstiganum, á hvorn veginn sem þessari reglu er beitt. Ef gefinn er afsláttur af álögðum útsvörum eftir hundraðshlutum, fá hæstu gjaldendurnir mestan afslátt, en lægstu gjaldendurnir smámuni eina. Þannig er útsvarsstiginn, ef afsláttur er gefinn, gerður flatari, það er gerður á honum minni munur á hinum tekjulægri og hinum tekjuhærri. En með álagi á útsvarsstigann prósentvís er stiginn gerður brattari og ég held, að þegar búið er að taka 30% af tekjum manna í útsvar, allt upp að 30% einnig í tekjuskatt, held ég, að skattlagningin sé orðin sæmileg, jafnvel af hátekjum, svo að ég felli mig ekki við, að sveitarfélögin hafi svona rúmar hendur um álag á útsvarsstigann. Það mundi sem sé í þessu tilfelli gera hann brattari. Ég tel líka, að með till. minni um eflingu jöfnunarsjóðsins, með því að fjölga mjög þeim aðilum, sem eigi að greiða landsútsvör og með því að skylda öll sveitarfélög til að nota aðstöðugjaldið til fulls, eins og það er í lögunum, sé búið að auðvelda sveitarfélögunum að komast af án þess að leggja á fimmtungshækkun ofan á þau útsvör, sem koma út, þegar útsvarsstiginn hefur verið notaður til fulls.

Ég skal játa, að það hefði vafalaust, ef nægilegt tóm hefði gefizt, verið ástæða til að gera fleiri brtt. til lagfæringar á útsvarsl. En það fær ekkert mál nú vandaða afgreiðslu. Þetta er allt með hálfgerðum flaustursbrag og ber að harma það og taldi ég, að helzt skipti máli að bera fram þessar breytingar. Þær eru í fyrsta lagi um það, að aðstöðugjöldin, sem nú eru heimiluð í l., skuli notuð til fulls, að landsútsvörin skuli aukin og þar bætt við ýmsum fjárhagslega sterkum stofnunum, sem eigi að bera landsútsvör, þ. á m. eru bankarnir, og að persónufrádráttur sé hækkaður, útsvörin leggist þannig léttar á lágtekjur og að skattþrepunum eða útsvarsþrepunum sé fjölgað, svo að lægri álagningarprósenta komi á hinar lægstu tekjur, en haldi sér óbreytt á hinum hærri tekjum.

Ég fagna þeim breytingum, sem gerðar hafa þó verið á frv. í meðferð þingsins, tel sumar af þeim hafa verulega þýðingu, hef áður nefnt þær nema eina, ákvæðið um það, að bæjarfélög skuli fella niður 1500 kr. álagt útsvar og lægri útsvarsupphæðir, og jafngildir það því, að persónufrádrátturinn sé raunverulega hækkaður nokkru meir en segir í till. þar um. Af þessu leiðir hins vegar, að tekjuskerðingu í hærri enda útsvarsstigans leiðir ekki af þessari till., eins og vera mundi, ef byggt væri á hækkuðum persónufrádrætti.

Ég læt svo máli mínu lokið. Að mínum brtt. felldum mun ég að sjálfsögðu greiða brtt. meiri hl. atkv., þar sem þær eru til verulegna bóta á frv, og frv. sjálfu mun ég að lokum greiða atkv., þar sem það er þó til bóta frá gildandi útsvarslöggjöf.