08.05.1965
Efri deild: 85. fundur, 85. löggjafarþing.
Sjá dálk 1850 í B-deild Alþingistíðinda. (1648)

181. mál, tekjustofnar sveitarfélaga

Fjmrh. (Magnús Jónsson):

Herra forseti. Það er nú orðið mjög áliðið fundartíma og vil ég því eigi vera að þreyta hv. þdm. með langri framsöguræðu, enda gerist þess naumast þörf. Það skýrir sig sjálft í grg., hvaða meginatriði felast í þessu frv., sem hér er um að ræða. Frv. tók allmiklum breytingum í hv. Nd., á þann veg, að þar fór fram frekari lækkun á útsvarsstigum og veitt var heimild til að fella niður útsvör í kaupstöðum, sem eru 1500 kr. eða lægri, en til þess að vinna upp þennan tekjumissi var heimilað að þrefalda fasteignamat til eignarútsvars á sama hátt og áður hefur verið gert til eignarskatts til þess að afla fjár til húsnæðismála.

Ef ekki gefst frekar tilefni til, enda mun málið verða nánar athugað í n., þá mun ég ekki, herra forseti, eyða fleiri orðum um málið, en legg til, að því verði að þessari umr. lokinni vísað til hv. heilbr.- og félmn.