11.05.1965
Efri deild: 89. fundur, 85. löggjafarþing.
Sjá dálk 1867 í B-deild Alþingistíðinda. (1656)

181. mál, tekjustofnar sveitarfélaga

Frsm. 1. minni hl (Karl Kristjánsson):

Herra forseti. Það er ekki vilji minn að teygja úr þessum umr., en ég get varla komizt hjá því að segja nokkur orð, skal þó vera stuttorður.

Hv. 9. landsk. þm, vildi halda því fram, að persónufrádráttur, eins og hann er ætlaður í frv., væri meira gerður í hag gjaldenda, en hefði verið fyrrum. Það er nú alltaf létt að vitna í gamlan tíma, þegar við lifum á tímum, sem sækja fram og sannleikurinn er það sígildur alltaf, sem kveðið var, að það er bágt að standa í stað., því að „mönnunum munar annaðhvort aftur á bak ellegar nokkuð á leið.“ Og á það ber að líta, þegar metinn er persónufrádráttur nú og fyrrum, að nú hafa verið teknir upp neyzluskattar í stórum stíl og sú gjaldheimtuaðferð kallar á hærri persónufrádrátt.

Ég tók það fram, að þó að ekki yrði breytt frv. og ekki hækkaður persónufrádráttur og ekki yrðu lækkaðir stigar frá því, sem þar er, mundu sveitarfélög komast í þá aðstöðu, að þeim hrykki ekki útsvarsstiginn með heimiluðu álagi. Hv. síðasti ræðumaður, hv. 4. landsk. þm. (US), staðfesti það í ræðu sinni.

Hv. 9. landsk. þm. gat þess, að kvartanir hefðu, komið frá Húsavík um, að það bæjarfélag mundi ekki ná í land eftir reglum þeim, sem á nú að lögleiða um útsvarsálagningu. Þetta er vafalaust rétt og þetta mun gilda um fleiri sveitarfélög, en Húsavík og ekki aðeins um Húsavík og Siglufjörð og Ólafsfjörð, heldur mun það koma í ljós, að fleiri bæjarfélög lenda í sömu vandræðum. Það er nú misjafnt, sem á stendur með bæjarfélögin, atvinnulíf er misjafnt, tekjuöflun fólks misjöfn. Það hefur verið lélegt árferði í þeim efnum á Norðurlandi um skeið. En svo eru sveitarfélögin einnig misjafnlega á vegi stödd með framkvæmdir sínar, sjálfsagðar félagslegar framkvæmdir. Sveitarfélög, sem eru í örum vexti eins og Húsavík, þurfa mikið að gera til þess að fullnægja þörf fólksins, sem þar tekur sér bólfestu. Ég gat þess við 1. umr., að þannig væri ástatt t. d. í því bæjarfélagi og ég held, að það sé ekki einstætt, að aðeins 1/4 hluti útgjaldanna er hreyfanlegur og þá um leið 1/4 hluti þeirra tekna, sem þarf að afla vegna útgjaldanna. 3/4 hlutar af útgjöldum eru skyldur, sem sveitarfélagið eða bæjarfélagið þarf að inna vegna lögboða og vegna samninga. Það er þess vegna aðeins 1/4 hluti gjaldanna, sem hægt er að naga utan úr til þess að draga úr álögum. Og þá rekst maður strax á þetta, að framkvæmdaþörfin er mikil og yfirleitt ástandið þannig um framkvæmdaþörfina, eins og sagt var af einum hv. ríkisstjórnarmanni, að bæjarfélögin og sveitarfélögin eru á eftir framtaki fólksins í ýmiss konar framkvæmdum og fjárfestingu. Og þegar svo er, er erfiðlega statt til að minnka athafnir sveitarfélaga.

Ég legg áherzlu á það, sem ég sagði áðan, að til þess að geta verulega breytt álöguréttinum og létt af gjaldendunum þarf að létta af sveitarfélögunum skyldum, sem búið er að leggja á þau. Þannig er t.d., að gjöld fyrir almannatryggingar í þessu sveitarfélagi, sem ég þekki bezt og hefur verið nefnt af öðrum en mér, gera fullan fjórða part útsvarsfúlgunnar. Til þess að inna þau gjöld af hendi, gjöldin til almannatrygginganna, þarf fjórðung allra útsvaranna. Mér virðist, að ætti að taka til athugunar, hvort ekki væri réttara, eins og nú er komið með tekjuöflun ríkisins, að ætla ríkinu að inna þessi gjöld fyrir fólkið og létta með því af álögustofnum sveitarfélaganna. Skólakostnaður í þessu sambandi þyrfti líka að endurskoðast. Og þegar hv. síðasti ræðumaður bendir á það, að skerðing á álögurétti, frekar en gert er ráð fyrir í frv., geti komið illa við sveitarfélögin, finnst mér, að hann hefði sem starfsmaður sambands sveitarfélaganna átt að taka undir þau orð mín, að þetta væri ástæða til þess að taka sig til og láta fara fram endurskoðun á þessum málum, eins og við í 1. minni hl. leggjum til. Og ég vil benda á það, að þessi hv. síðasti ræðumaður, 4. landsk., taldi fram ýmis dæmi þess, að það þyrfti að breyta l. um tekjustofna sveitarfélaganna. Hvers vegna tók hann ekki undir endurskoðunartillöguna? Gerir hann ráð fyrir, að það verði farið í frv. hér á þeim nauma tíma, sem eftir er, að gera gangskör að því að breyta öllum þeim atriðum, sem hann tók dæmi um sem galla á löggjöfinni?

Ég endurtek það, að ég vil vænta þess, að hv. meiri hl. og ekki þá sízt þeir, sem vinna beinlínis fyrir sveitarfélögin, styðji þá till. okkar að taka málin í endurskoðun.