08.05.1965
Efri deild: 86. fundur, 85. löggjafarþing.
Sjá dálk 1870 í B-deild Alþingistíðinda. (1669)

185. mál, verðjöfnun á olíu og bensíni

Frsm. (Jón Þorsteinsson):

Herra forseti. Í frv. þessu til l. um breyt. á l. nr. 34 1953, um verðjöfnun á olíu og benzíni, sem er stjórnarfrv., felst sá viðauki við gildandi lög, að ráðh. skuli heimilt að ákveða tímabundna greiðslu úr verðjöfnunarsjóði til rekstrar innflutningsstöðva, sem reistar kunna að verða utan Faxaflóa, ef ætla má, að flutningur olíu og benzíns á viðkomandi svæði verði ódýrari með því móti.

Eins og í aths. við lagafrv. þetta greinir, þá segir, að það sé orðið tímabært að stuðla að því, að komið verði fyrir innflutningsgeymi eða geymum fyrir olíu á Austfjörðum og e.t.v. á Norðurlandi, en eins og kunnugt er, þá eru innflutningshafnir á olíu hér fyrst og fremst Reykjavík og Hafnarfjörður. En með því að gera einhvern stað á Austfjörðum eða einhverja höfnina þar að innflutningshöfn og reisa þar stóran geymi, sem gæti tekið heilan skipsfarm, þá mundi verðjöfnunarsjóðnum sparast greiðsla á flutningskostnaði á olíunni frá Reykjavík til Austfjarðahafna, en einungis í staðinn þurfa að greiða flutningskostnaðinn milli hafnanna á Austfjörðum.

Það virðist því vera skynsamlegt að stuðla að því, að slíkir geymar verði byggðir. Mest þörfin virðist vera á Austfjörðum, en einnig gæti Norðurland komið til greina. Auk þess er allmikil trygging í þessu fólgin. Um hásíldarvertíðina stendur það alveg í járnum, að þau olíuskip, sem nú eru tiltæk til flutninga, hafi undan að flytja olíur austur á firði og þess vegna væri mikið öryggi í því að hafa þar stóran geymi og einnig væri fólgið í þessu öryggi, ef svo færi, eins og átti sér stað í vetur, að þarna verði hafís landfastur vikum saman. Þá er auðvitað einnig mikill kostur að hafa slíka stóra birgðageymslu til staðar.

Það er því, eins og ég gat um í upphafi, efni þessa frv., að það sé heimilt að styrkja rekstur slíkra innflutningsstöðva með tímabundnum greiðslum.

Þessu máli var vísað til fjhn. og n. hefur lagt til, að þetta frv. verði samþ., en tveir nm. voru þó eigi reiðubúnir til að taka afstöðu til málsins, eins og kemur í ljós í nál. á þskj. 707.