06.05.1965
Efri deild: 82. fundur, 85. löggjafarþing.
Sjá dálk 1906 í B-deild Alþingistíðinda. (1697)

182. mál, tekjuskattur og eignarskattur

Frsm. 1. minni hl. ( Helgi Bergs):

Herra forseti. í nál. mínu og hv. 1. þm. Norðurl. e.; sem lagt var fram við 2. umr. þessa máls og einnig í framsöguræðu minni fyrir því nál. var þess getið, að það væri skoðun okkar, að mikla nauðsyn bæri til þess að tryggja betur, en gert væri rétt framtöl og eftirlit með þeim.

Við lýstum því þá yfir, að við mundum athuga þessa hlið málsins fyrir 3. umr. og það gerði raunar nefndin öll. Þegar við lýstum þessu yfir, höfðum við í huga ýmsar breytingar víðtækari og ekki allar af því tagi, sem þær till. eru, sem nú liggja fyrir frá nefndinni í heild. En þegar það kom í ljós, að í nefndinni gat orðið samstaða um þessar till., sem núna liggja fyrir, þá þótti okkur, að það væri svo mikils virði, að við kusum heldur að standa að þeim till. en að leggja fram till. sjálfir, sem ekki væri samstaða um.

Þessar till., sem lagðar hafa verið fram, eru, eins og hv. þdm. hafa heyrt þannig, að þeim er í fyrsta lagi ætlað að auka sjálfstæði skattrannsóknarstjórans og í öðru lagi auka heimildir hans til rannsókna frá því, sem þær hafa verið, í þriðja lagi að samræma og gera skýrari ákvæði um heimildir til að beita sektum gagnvart undandrætti á tekjuskatti, en einnig öðrum sköttum og þessar endurbætur, sem í þessum till. felast, eru, eins og ég sagði, að okkar dómi svo þýðingarmiklar, að við fögnum því, að um þær skuli hafa náðst samstaða, og höfum þess vegna ekki að þessu sinni talið ástæðu til að bera fram frekari brtt. í þessu efni.

Hitt verður svo að harma, að vinnubrögðum þingsins skuli vera svo komið nú á seinustu dögum þess, að svona umfangsmiklar till. verði að taka til afgreiðslu í hv. deild við síðustu umr. málsins, án þess að þær hafi fengizt prentaðar eða þeim verið útbýtt. Hér er um að ræða 7 till., sumar mjög efnismiklar, þannig að þær fylla stóran hluta úr vélritaðri siðu sumar þeirra. Og í rauninni verður það að segjast, að það eru næsta hæpin vinnubrögð að afgreiða þær, áður en þeim hefur verið útbýtt. En ég skal þó ekki eins og á stendur gera neinn ágreining um það atriði. Við, sem í nefndinni erum, höfum auðvitað haft tækifæri til þess að kynna okkur þessar till. nánar.

En sem sagt, ég vil mæla með samþykkt þessara till., sem fjhn. hefur lagt fram sameiginlega. Og þá vil ég enn fremur minna á það, að við, sem erum í 1. minni hl. fjhn., 1. þm. Norðurl. e. og ég, eigum hér brtt. frá því við 2. umr., sem þá voru teknar til baka til 3. umr. Þessar till. eru tvær: Annars vegar um breytingu á skattstiganum, sem ég gerði grein fyrir við 2. umr. og þarf víst ekki að fara ýtarlegar út í að þessu sinni. Þær voru sniðnar eftir skattstiganum 1960, með umreikningi eftir framfærsluvísitölubreytingum, sem orðið hafa frá árinu 1959 til ársins 1964. Hin till. er um það, að sá umreikningur, sem nú á að taka upp að nýju, sé ekki miðaður við svokallaða skattvísitölu, sem fjmrh. skuli hafa heimild til að ákveða, eins og gert er ráð fyrir í frv., heldur skuli þessi umreikningur miðaður við verðlagsvísitölu tekjuöflunarársins.

Ég vil leyfa mér að fara fram á það, að hv. þdm. samþykki þessar brtt. okkar í 1. minni hl. einnig ásamt till. þeim, sem fjhn. stendur einhuga að.