08.05.1965
Neðri deild: 85. fundur, 85. löggjafarþing.
Sjá dálk 1910 í B-deild Alþingistíðinda. (1702)
182. mál, tekjuskattur og eignarskattur
Fjmrh. (Magnús Jónsson):
Herra forseti. Ég vænti þess, að hv. þdm: afsaki það, þótt ég hafi ekki langa framsögu fyrir þessu máli, enda gerist þess naumast þörf, því að málið er tiltölulega einfalt og skýrir sig sjálft. Grg. frv. gerir nákvæmlega grein fyrir þeim meginbreytingum, sem í frv. felast, en þær eru í rauninni tvær, annars vegar að hækka fjölskyldufrádrátt og breikka þrep í tekjuskattsstigum og í öðru lagi að síðan breytist bæði þessir stigar og frádrættir samkv. skattvísitölu, þannig að árlegar breytingar þurfa ekki að gerast á skattal. af þeim sökum einum saman, að breytingar verði á vísitölu.
Í hv. Ed. voru gerðar nokkrar breytingar á frv. þess eðlis, að það eru gerð ýtarlegri ákvæði þau, sem nú eru í l. um hlutverk rannsóknarnefndar skattamála við ríkisskattstjóraembættið og víkkaðar heimildir til þess að leita skýrslna og starf rannsóknardómarans gert sjálfstæðara en það er og enn fremur ákveðið, að ákvarðanir um sektir samkv. l. verði í höndum sérstakrar n., sem ákveði sameiginlega sektir fyrir hin opinberu gjöld, að undanskildum gjöldum til sveitarfélaga, sem að sjálfsögðu þarf, ef til á að koma, að breyta í l. um tekjustofna sveitarfélaga. Um þessar breytingar varð algert samkomulag í fjhn. d. og í d. sjálfri og tel ég ekki ástæðu til þess að ræða þær frekar, nema tilefni gefist til.
Ég vil svo leyfa mér, herra forseti, að leggja til, að frv. verði að lokinni þessari umr. vísað til 2. umr. og hv. fjhn.