08.02.1964
Neðri deild: 25. fundur, 85. löggjafarþing.
Sjá dálk 155 í B-deild Alþingistíðinda. (171)

91. mál, ríkisreikningurinn 1963

Fjmrh. (Gunnar Thoroddsen):

Herra forseti. Í byrjun þings var ríkisreikningnum fyrir 1963 útbýtt meðal hv. alþm. Yfirskoðunarmenn ríkisreikninga höfðu þá ekki endanlega lokið aths. sinum og gátu þær því að sjálfsögðu ekki fylgt með. Nú hefur reikningnum verið útbýtt að nýju meðal þm. með aths. yfirskoðunarmanna, svörum ráðh. og till. yfirskoðunarmanna. Þá er einnig síðast í reikningnum það nýmæli, að mjög ýtarlegt efnisyfirlit er með reikningnum til þess að gera mönnum auðveldara að finna það, sem þeir óska eftir í reikningnum.

Það, sem hér liggur fyrir, er frv. til l. um samþykkt á þessum ríkisreikningi fyrir 1963, og tel ég ekki ástæðu til þess að rekja niðurstöður hans í einstökum atriðum, þar sem það var gert við 1. umr. fjárl. nú nýskeð.

Ég vil leggja til, að frv. verði vísað til 2. umr. og hv. fjhn.