11.05.1965
Neðri deild: 88. fundur, 85. löggjafarþing.
Sjá dálk 1927 í B-deild Alþingistíðinda. (1711)

182. mál, tekjuskattur og eignarskattur

Fjmrh. (Magnús Jónsson):

Herra forseti. Ég þakka hv. 1. þm. Norðurl. v. fyrir hans ágætu ræðu hér og sérstaklega fyrir þær vinsamlegu móttökur, sem hann veitti mér sem fjmrh. Og ég er ekki svo ákaflega kvíðinn yfir þessari minni fyrstu göngu, þó að honum þyki hún ill og kannske ekki sízt af því, að honum þykir hún ill.

Ræða hans hér var mjög fróðleg fyrir þá sök, að hann rifjaði upp fyrir okkur eftirtektarverðar staðreyndir í sambandi við þetta mál, allt frá því að nafni minn Guðmundsson, sem hann vitnaði til, átti hlut að því, sem ég efast ekkert um, að sé satt, — ég hef ekki þann sögulega fróðleik hv. þm., en ég er ekki að efa, að hann hafi farið rétt með, — að hlutast til um, að sett yrði inn refsiákvæði í skattalög um viðurlög við að svíkja undan skatti. En mér hefði þótt ákaflega fróðlegt, ef hinn fróði þm. hefði jafnframt upplýst okkur um tekjur ríkissjóðs af skattsektum, síðan þessi lög voru sett, eða hvort það mundi vera hans skoðun, að frá setningu laganna og þangað til nú upp á síðkastið, hafi ekki verið svikið undan skatti á Íslandi. Eða hefur engin tilraun þá verið gerð, fyrr en nú til þess að hafa upp á skattsvikum? Ég skal ekki fara lengra út í þessar hugleiðingar en ég held, að öllum hv. þm. hljóti að hafa orðið það ljóst, einmitt við þennan málflutning hv. 1. þm. Norðurl. v., að þetta mál hefur aldrei verið sérstaklega einfalt mál og þrátt fyrir öll þessi refsiákvæði hafa áratugum saman, — það er ekkert nýtt, — átt sér stað stórfelld skattsvik á Íslandi, — skattsvik, sem hafa með vaxandi peningamagni aukizt ár frá ári. Ég skal ekkert segja um, hvort þau hafa hlutfallslega aukizt, en ýmsar aðstæður valda því í þjóðfélaginu, að það er auðveldara nú að svíkja undan skatti en áður var, og ég býst við, að það séu fáir hv. þm., sem hafi ekki einhvern tíma komizt í kynni við það, að það hafi verið farið fram á það við þá, að það vær ekki taldar fram vissar tekjur, sem þessi eða hinn hafi haft fyrir eitt eða annað, sem hann hafi fyrir þá gert, svo að við sleppum nú öllum öðrum, sem atvinnurekstur og annað hafa með höndum. Með þessu er ég ekki að ber sakir á einn eða neinn, en þetta er viðurkennt og er alvitað mál. Spurningin er aðeins sú, hvernig við bezt getum lagað þetta nú. Það er eina spurningin. Og ég held ekki, að hv. 9. landsk. þm. þurfi að biðja neitt afsökunar á ræðu sinni hér í gærkvöld, þó að þessi till, mín sé flutt hér í dag. Hún er í nákvæmu samræmi við þá stefnu að vilja lagfæra þetta með eðlilegum hætti. Ég var ekki að kalla þær samþykktir, sem gerðar hafa verið, ofsóknaraðgerðir. Ég sagði, að það væri nauðsynlegt í sambandi við þetta mál allt, að borgararnir litu ekki á það sem ofsóknaraðgerðir, heldur að þeir hefðu skilning á því, að þessi rannsóknarstarfsemi og þessi rannsóknardeild væri í þágu þjóðfélagsins og í þágu borgaranna allra, en ekki sett þeim til höfuðs. Tel ég sem fjmrh. nauðsynlegt, að sá hugsunarháttur komst inn hjá fólkinu.

Ég lít ekki á mig sjálfan sem neinn ofsóknaraðila gagnvart borgurunum. Ég vil stuðla að því, að heiðarleikur ráði í sambandi við þær greiðslur, sem menn eiga af höndum að inna til þjóðfélagsins og ég vil reyna að hvetja borgarana til þess að hjálpa til við að koma þessum málum í rétt horf með því að gefa þeim þann möguleika, sem hér er um að ræða. Þetta er efni málsins og ekkert annað. Hér er ekki verið að tala um að gefa eitt né neitt, heldur spurning um það, hvort hér séu ekki skynsamleg vinnubrögð og hér er ekki á einn né neinn hátt verið að draga úr því, að rannsóknardeild skattamála haldi áfram störfum sínum. Hún getur gert það. Þetta felur ekki í sér neina kröfu frá einum né neinum skattborgara um það, að hann megi bíða þangað til tiltekinn dag að koma sínum málum í horf og geti svarað skattrannsóknarmönnum þannig. Hér er aðeins um heimildarákvæði að ræða, — heimildarákvæði, sem ég vil heldur hafa á þennan hátt, en að verði byrjað nú strax að taka upp mildilegar sektir, vegna þess að þetta hafi verið svona almennt ástand. Ég vil, að þessi heimild sé tímabundin og eftir það verði teknar upp ákveðnari og harðari sekti,r en ella hefðu verið teknar upp, vegna þess að þá álít ég, að frá þjóðfélagsins hálfu hafi verið gefið fullkomið tækifæri á þennan hátt til þess að koma þessum málum í lag. Og ég held, að við getum alveg sparað okkur allar ásakanir á einn né neinn um það, að nokkur hér í þingsölum vilji halda verndarhendi yfir skattsvikum. Ég dreg það ekki í efa, að hver einasti þm. vill hafa skynsamlegan máta á þessum efnum og ég held, að við ættum öll að reyna að sameinast um það með þessari merkilegu tilraun, sem nú er gerð með rannsóknardeild skattamála, að hafa þetta frá byrjun í það skynsamlegu horfi, að við fáum samúð þjóðfélagsins með okkur og það verði innan ekki langs tíma talin óhæfa á Íslandi að svíkja undan skatti.