27.10.1964
Neðri deild: 7. fundur, 85. löggjafarþing.
Sjá dálk 1949 í B-deild Alþingistíðinda. (1740)
29. mál, stýrimannaskóli í Vestmannaeyjum
Óskar Jónsson:
Herra forseti. Ég fagna fram komnu frv. til I. um stýrimannaskóla í Vestmannaeyjum og hef ekkert annað en gott eitt um þetta mál, sem hér er til umræðu, að segja. Þó er eitt atriði, sem mér þykir dálítið einkennilegt í þessu frv. og það er 13. gr., þar sem talað er um, að kostnaður við stofnun skólans og rekstur greiðist úr bæjarsjóði Vestmannaeyja. Ég hefði talið eðlilegt, að þessi skóli væri kostaður af ríkisfé. Ég tel það algerlega eðlilegt og ég sé ekki annað, en það væri fullkomlega réttmætt, að svo væri. Ég tel því fráleitt, að bæjarsjóður Vestmannaeyja standi undir skólanum og stofnun hans, heldur verði stofnkostnaður og reksturinn einnig greiddur úr ríkissjóði. Mér finnst það eðlilegt, því að ég veit ekki betur en að þessi skóli eigi að vera opinn öllum landsmönnum og er því eðlilegt, þar sem um jafnnauðsynlegan skóla er að ræða, að kostnaður við hann verði greiddur af almannafé.