03.12.1964
Neðri deild: 23. fundur, 85. löggjafarþing.
Sjá dálk 1953 í B-deild Alþingistíðinda. (1744)

29. mál, stýrimannaskóli í Vestmannaeyjum

Frsm. (Pétur Sigurðsson):

Herra forseti. Sjútvn. hefur haft þetta mál til meðferðar og sent það til umsagnar nokkurra aðila, sem hafa sent svör og athugasemdir. Samtök skipstjórnarmanna, Farmanna- og fiskimannasamband Íslands, mælir eindregið með samþykkt frv., sömuleiðis Félag skipstjóra og stýrimanna í Vestmannaeyjum. Skólastjóri stýrimannaskólans tekur ekki beina afstöðu til málsins, en dregur í efa, að þörf sé fyrir þennan skóla til viðbótar stýrimannaskólanum, sem fyrir er hér í Reykjavík. Og L.Í.Ú. leggst gegn frv. og það er gert með því fororði, að yfir standi endurskoðun á lögum um stýrimannaskólann í Reykjavík, sem hafa muni í för með sér verulegar breytingar á kennslu fyrir stýrimannapróf og það er þess vegna, sem þeir mæla gegn því, að þetta frv. verði samþykkt.

Þetta atriði var sérstaklega rætt í sjútvn., þegar málið var til afgreiðslu þar og nm. voru sammála um það, að þetta ætti auðvitað ekki að hafa neitt það í för með sér, sem tafið gæti fyrir því, að stýrimannaskóli kæmi upp í Vestmannaeyjum. Ef Alþ. á sínum tíma, þegar endurskoðun fer fram, sér ástæðu til að breyta lögunum um stýrimannaskóla, verður auðvitað að breyta lögum um stýrimannaskóla í Vestmannaeyjum til samræmis við það, sem gert verður hér í Reykjavík. En lögin um stýrimannaskólann í Vestmannaeyjum eru sniðin eftir gildandi lögum um stýrimannaskólann hér í einu og öllu, nema til viðbótar þeim kröfum, sem gerðar eru við stýrimannaskólann í Reykjavík, er bætt nokkrum nýjum atriðum, þ. á m. er krafizt, að upp sé tekið nám í meðferð og notkun nýrra siglinga- og fiskileitartækja, enn fremur ákvæði um þekkingu í meðferð sjávarafurða, fiskverkun og fiskmati og enn fremur ákvæði um þekkingu á almennri vinnustjórnun og vinnuhagræðingu. Þetta eru allt saman nýmæli umfram það, sem er í gildandi lögum um stýrimannaskólann í Reykjavík, þótt hins vegar sumt af þessu hafi þegar verið tekið upp við kennslu þar.

Einn af þeim nm., sem voru við afgreiðslu málsins í sjútvn., áskilur sér rétt til þess að fylgja eða flytja brtt. við frv., en hinir nm. eru sammála um að mæla með samþykkt frv. óbreytts.

Það hefur komið skýrt fram hjá 1. flm. frv., að þrátt fyrir þann kostnað, sem kaupstaðurinn óneitanlega leggur í við skóla þennan, er hins vegar um mikinn óbeinan hagnað fyrir kaupstaðinn og kaupstaðarbúa að ræða, sem þeir leggja mikið upp úr í stjórn Vestmannaeyjakaupstaðar.

Við í sjútvn. d. leggjum því til, að þetta frv. verði samþ. óbreytt. Einn nm. hafði þó þann fyrirvara á, Lúðvík Jósefsson, að hann væri efnislega samþykkur þeim brtt., sem fram hafa komið á þskj. 79 frá Óskari Jónssyni, en hann mundi ekki fylgja þeim, til þess að það tefði ekki málið og hann mundi því greiða atkvæði gegn þeim, en með frv., eins og það liggur nú fyrir hv. deild.