03.12.1964
Neðri deild: 23. fundur, 85. löggjafarþing.
Sjá dálk 1954 í B-deild Alþingistíðinda. (1745)

29. mál, stýrimannaskóli í Vestmannaeyjum

Björn Fr. Björnsson:

Herra forseti. Frv. það, sem hér liggur fyrir til umr. um stýrimannaskóla í Vestmannaeyjum, er góðra gjalda vert að sjálfsögðu og ekki nema eðlilegt, að það komi fram. Hin mikla verstöð, Vestmannaeyjar, hlýtur að sjálfsögðu að hafa mikla þörf fyrir slíka stofnun,óvíða mun í landi okkar meiri öflun verðmæta úr sjó en einmitt þar, og sjávarútvegur er höfuðundirstaða Vestmannaeyjakaupstaðar, svo að það er ekki nema eðlilegt, að slíkt frv. sjái dagsins ljós á hv. Alþingi og er vel um það.

Mér skilst, að efni frv. sé með eðlilegum hætti og unnið upp í samræmi við hliðstæða löggjöf um slíka skóla sem þann, er hér um ræðir. Það er aðeins eitt atriði, sem ég vil leyfa mér að fara nokkrum orðum um og nokkuð stingur í augu. Það er, hverjir aðilar skuli bera kostnað af skólahaldi þessa skóla.

Í frv. er gert ráð fyrir því, að kostnaður við skólahaldið verði greiddur úr bæjarsjóði Vestmannaeyjakaupstaðar. En ég vil líta svo á og ég veit, að margir hv. þm. eru mér sammála um það, að svo eigi ekki að vera, heldur eigi ríkissjóður að standa undir eigi einungis stofnkostnaði þessa skóla í Vestmannaeyjum, heldur og rekstrarkostnaði, ef Alþingi á annað borð samþ. frv. um stofnun stýrimannaskóla. Vestmanneyingar hafa að sjálfsögðu, eins og aðrir kaupstaðabúar, í mörg horn að líta og þurfa á öllu sínu fjármagni að halda, ekki síður nú á næstu árum, heldur en verið hefur. Þessi skóli er til þess kjörinn að auka enn á þá þekkingu, sem sjávarútvegi er nauðsynleg, til þess að afla enn meira í þjóðarbúið. Þess vegna lít ég þannig á og sjálfsagt margir aðrir, að kostnaður við þennan skóla eigi skilyrðislaust að greiðast úr sameiginlegum sjóði landsmanna, ríkissjóði.

Í grg. frv. segir m.a., að bæjarstjórn Vestmannaeyja hafi ekki aðeins samþ., að stofnaður verði stýrimannaskóli á staðnum, heldur enn fremur, eins og ég hef getið um, að kostnaður yrði greiddur, a.m.k. fyrsta kastið, af hálfu bæjarsjóðs Vestmannaeyja. Þessi ákvörðun bæjarstjórnarinnar, að bjóða það fram, að kostnaður verði greiddur úr bæjarsjóði, sýnir aðeins áhuga Vestmanneyinga á því, að þessi skóli rísi á legg þarna á staðnum sem allra fyrst og enn fremur, að þeir séu reiðubúnir að leggja fram fjármagn til stofnkostnaðar og rekstrar, ef því er að skipta. Það er einmitt þessi ríki áhugi, sem kemur fram í þessum ályktunum bæjarstjórnar Vestmannaeyja, sem ætti að opna augu okkar þm. fyrir því, að hér eigi að koma til breytingar á frv., þannig að ríkisvaldið komi með eðlilegum hætti á móti þessum áhuga Vestmanneyinga og hinni miklu þörf á þessum skóla og ákveði, að ríkissjóður taki að sér stofnkostnaðar- og rekstrargreiðslur skólans. Í grg. er reyndar vikið að því, að þróun mála kunni að verða sú og það fyrr en seinna, að ríkissjóður taki að sér skólahaldið til fulls. Ég lít þannig á, að það sé bezt í upphafi að ganga þannig frá þessu máli, að ríkissjóður leggi fram greiðslur allar í sambandi við kostnaðinn. Mér sýnist þetta vera augljóst réttlætismál og ekki nema eðlilegt, að landsmenn allir standi undir þessum kostnaði.

Vestmannaeyjabær hefur á ýmsan hátt verið afskiptur — og kannske orðið að vera það vegna sérstakrar legu sinnar og afstöðu — um ýmiss konar gæði, sem öðrum landsmönnum hafa veitzt. Með hliðsjón af því er ekki nema eðlilegt, að ríkissjóður komi þarna til sem greiðsluaðili, þar eð hægt er um vik til jöfnunar á aðstöðumun.

Af þessum sökum hafa komið fram brtt. á þskj. 79. Brtt. eru frá Óskari Jónssyni. Þessar brtt., sem eru í 5 liðum, hníga allar í eina og sömu átt, þ.e. að ríkissjóður taki að sér kostnaðargreiðslur í sambandi við skólann og aðrar brtt. í samræmi við þá stefnu.

Við 10. gr. verði breyt. á þá lund, að laun fastakennara við skólann verði ákveðin samkv. kjarasamningum opinberra starfsmanna, við 11. gr., að síðasta málsgr. falli niður, sem er á þá leið, að stundakennara ráði bæjarstjórn hverju sinni samkv. tillögum skólastjóra. Við 12. gr., að í stað 5 manna skólanefndar, eins og kveðið er á í frv., komi, að yfirstjórn skólans hafi samgmrn. á hendi. Og loks við 13. gr., sem er höfuðbreytingin, að kostnaður við stofnun skólans og rekstur greiðist úr ríkissjóði.

Ég sé ekki ástæðu til að fara fleiri orðum um þetta mál, en ég vildi fastlega vona, að hv. þm. fallist á þessar brtt. og samþ. þær.