06.04.1965
Neðri deild: 64. fundur, 85. löggjafarþing.
Sjá dálk 1963 í B-deild Alþingistíðinda. (1773)

28. mál, landamerki

Frsm. (Björn Fr. Björnsson):

Herra forseti. Frv. það, sem er hér til 2. umr., fjallar um breyt. á I. nr. 41 frá 1919, um landamerki o.fl. Allshn. þessarar hv. d. hefur haft þetta frv. til athugunar og orðið sammála um að leggja til, að frv. verði samþ.

Frv. felur í sér eina meginbreytingu frá því, sem nú gildir, um kaup og ferðakostnað til merkjadómsmanna. Samkv. gildandi lögum um merkjadóm greiða málsaðilar kaup og ferðakostnað til dómenda. Þetta ákvæði er í ósamræmi við hinar almennu reglur um dómgæzlu, bæði hér og víða annars staðar með nágrannaþjóðum. En almenna reglan er sú að laun dómenda séu greidd af almannafé. Um ferðakostnað gildir í einkamálum sú regla, að hann telst yfirleitt til málskostnaðar. Hins vegar er í þessari tegund mála, landamerkjamálum, um nokkra sérstöðu að ræða. Dómendum í merkjadómi er jafnan skylt að fara á vettvang og verður því óhjákvæmilega um nokkur ferðalög að ræða, þar sem dómendur verða að framfylgja þeirri skyldu að ganga á mörk, en það er lögboðið. Af þessu sýnist vera eðlilegt og sjálfsagt, að ferðakostnaður af þessu tagi greiðist úr ríkissjóði eins og laun til dómenda. Frv. gerir því ráð fyrir, að þetta hvort tveggja, kaup til dómenda og ferðakostnaður til þeirra, greiðist framvegis af almannafé.

Aðrar breytingar, sem þetta frv. gerir ráð fyrir á núgildandi löggjöf um landamerki og meðferð þeirra mála fyrir dómi, eru þessar:

Í 8. gr. núgildandi l. segir m.a.: „Nú fær valdsmaður ábyggilega vitneskju um, að ágreiningur, er hann telur máli skipta, sé um landamerki eða ítaks og skal hann þá kveðja aðila sakar á dómþing.“ Í frv. er gert ráð fyrir, að í stað „valdsmaður“ komi „héraðsdómari“ og í stað „ábyggilega vitneskju“ komi „áreiðanlega vitneskju“. Orðið „valdsmaður“ er nú gamalþekkt úr íslenzku máli, en þykir rétt að draga það til baka í þessari löggjöf og að „héraðsdómari“ komi í staðinn og er það eðlileg breyting að minni hyggju og okkar í allshn.

Í öðru lagi er smábreyting í þessari sömu gr., 8. gr. landamerkjalaga, um það atriði, þegar lönd liggja hvort í sínu lögsagnarumdæmi. Segir í löggjöfinni, eins og nú er: „Ákveður ráðherra, í hvort þeirra skuli farið með ágreiningsmálið.“ Í frv. er slegið föstu, að þessi ákvörðun, hvar málið skuli tekið fyrir og rekið, skuli heyra undir dómsmrh. og þykir það einnig sjálfsögð og eðlileg breyting, enda hygg ég, að hafi það komið fyrir á liðnum árum, a.m.k. síðustu 2–3 áratugum, þá hafi sú ákvörðun verið látin liggja undir dómsmrh.

Þetta eru þær höfuðbreytingar, sem frv. gerir á núgildandi lögum um þessi mál, landamerki o.fl. Það eru fáar aðrar breytingar. Það eru kannske nokkrar orðalagsbreytingar á ferðinni í frv., sem gera ekki annað en að færa málfar til nútímahorfs.

Mér þykir ekki ástæða til þess að fara fleiri orðum um frv. Ég hef gert grein í stuttu máli fyrir þeim breytingum, sem það gerir á þessum umræddu lögum og þær eru allar eðlilegar og horfa í þá stefnu, sem nú er talin. sjálfsögð um meðferð dómsmála. Og eins og ég hef áður getið um, hefur allshn. lagt einróma til, að frv. verði samþ.