30.03.1965
Efri deild: 60. fundur, 85. löggjafarþing.
Sjá dálk 1979 í B-deild Alþingistíðinda. (1838)
165. mál, hundahald og varnir gegn sullaveiki
Ég vil leyfa mér að, rekja örlítið sögu þessa máls, það má í raun og veru byrja á því að lesa hér, með leyfi hæstv. forseta, bréf sýslumannsins í Húnavatnssýslum, sem dagsett er 9. okt. 1962, en bréfið er til heilbrmrn. og það hljóðar þannig:
„Sýslunefnd Austur-Húnavatnssýslu gerði eftirfarandi samþykkt á síðasta sýslufundi: „Sýslunefnd Austur-Húnavatnssýslu beinir þeim tilmælum til ríkisstj., að hún beiti sér fyrir hækkun hundaskatts, þannig að skattur af þarfahundum verði 30 kr. og af óþarfahundum 300 kr.“
Efnislega samhljóða samþykkt gerði sýslunefnd Vestur-Húnavatnssýslu einnig á sínum sýslufundi.
Ég vil hér með fara þess á leit við heilbrigðisstjórnina, að hún beiti sér fyrir því á Alþingi, sem kemur saman í haust, að lögum um hundahald og varnir gegn sullaveiki, nr. 7 frá 3. febr. 1953, verði breytt í samræmi við samþykkt sýslunefndafunda Austur- og Vestur-Húnavatnssýslu. Á s.l. hausti varð að greiða kr. 17.50 til hundahreinsunarmanna fyrir hvern hund, sem hreinsaður var, en skatturinn af slíkum hundum er aðeins 15 kr. Auk þess þarf svo sýslusjóður að greiða ferðakostnað og lyf til hundahreinsunarinnar. Fjárhag sýslusjóðanna er þannig komið, að þeir geta bókstaflega ekki greitt með hundahreinsuninni, enda algerlega óþarfi, þar sem hundaskatturinn er hlægilega lágur.
Enn fremur vil ég beina því til heilbrigðismálastjórnarinnar, að hún athugi möguleika á því að takmarka tölu þarfahunda á búendur og enn fremur, að ákvæðum laganna verði breytt í þá átt, að hundahreinsunarmenn gefi skattstjóra skrá yfir hreinsaða hunda í hverri sýslu. Með þessu ætti að nást til flestallra hunda í umdæminu, í stað þess, eins og nú er, að það koma alltaf snöggtum fleiri hundar til hreinsunar, en skattur er greiddur af, en skattskyldan er yfirleitt reiknuð út frá því, hvort viðkomandi hefur dregið hundsfóðrið frá á skattskýrslu sinni og svo auðvitað eftir staðarþekkingu hreppstjóra.
Virðingarfyllst,
Jón Ísberg.“
Síðan er gangur málsins sá, að þetta fer fyrir heilbrmrh. og landbrn. og búnaðarþing, og allir þessir aðilar leggja blessun sína yfir málið. Og búnaðarþing árið 1963 mælir með svofelldri breyt. á l. um hundahald o.fl.: „Af hundum búfjáreigenda skal greiða 30 kr. í skatt árlega, einnig af minkahundum, dýrhundum og sporhundum, enda hafi verið veitt sérstakt leyfi til slíks hundahalds og þeir hundar hafi verið í öruggri gæzlu. Af öðrum hundum greiðist 500 kr. skattur árlega.“ Þetta var álít búnaðarþings 1963. Síðan mun málið eitthvað hafa legið niðri, því að með bréfi, dags. 12. nóv. 1963, þá ritar sýslumaður Húnvetninga bréf til landbrn., þar sem hann er að ýta á eftir málinu og ég vil leyfa mér að lesa það hér, með leyfi hæstv. forseta. Það hljóðar svo:
„Á s.l. hausti sendi ég heilbrmrn. erindi með beiðni um hækkun hundaskatts úr 15 kr. í 30 kr. á þarfahunda. Ekkert hefur komið út af þessu og var mér tjáð, óformlega þó, að erindið mundi hafa verið sent landbrn. og það hafi sent það Búnaðarfélagi Íslands til umsagnar. Það getur vel verið, að mál þetta sé flókið og þæfist fyrir, en mér virðist eitt ljóst, og það er, að sýslusjóðirnir, sem eru fjárvana, verða að greiða með hverjum hundi álíka upphæð og hundaskattinum nemur, eða kostnaður við hundahreinsun s.l. ár var tvöfaldur innheimtur hundaskattur. Ég vil fara þess á leit við hið háa ráðuneyti, að það sjái um, að fram verði lögð tillaga á Alþingi til breyt. á l. um varnir gegn sullaveiki á þann veg, að sýslufundum verði heimilað að ákveða hundaskattinn fyrir hvert ár með hliðsjón af raunverulegum kostnaði næsta ár á undan. Sýslunefndir skipa fulltrúar sveitahreppa, bændanna sjálfra, og þeir geta ósköp vel séð fótum sínum forráð. Ef hið háa rn. telur nauðsynlegt að senda erindi þetta til umsagnar einhverjum aðilum, væri ekki úr vegi að gefa viðkomandi aðila ákveðinn frest.
Ég vil benda á að lokum, að leggi sýslusjóður á t.d. 100 kr. hundaskatt, ef kostnaður er sannanlega svo mikill, sætta menn sig við það, þótt hv. Alþingi mundi fá skammir fyrir að leggja t.d. 50 kr. á, auk þess sem slíkir smámunir mundu verða blásnir út og talað um óhæfilega skattahækkun.
Ég vona svo, að mál þetta fái góða og skjóta afgreiðslu hjá hinu háa ráðuneyti.
Virðingarfyllst,
Jón Ísberg.“
Þarna virðist yfirvald Húnvetninga að vísu vera komið heldur lengra en var í upphaflegri samþykkt sýslunefndanna, þar sem í þeirri samþykkt, sem ég las áðan, er aðeins talað um að hækka skattinn þannig, að hann yrði 30 kr. og 300 kr., en þarna virðist sú hugmynd koma fram, sem ekki hefur fengið undirtektir hjá ráðuneytunum, að sýslunefndirnar sjálfar ákveði upphæð skattsins ár frá ári.
Síðan gerist það svo í vetur, að heilbrmrn. lætur útbúa þetta frv., sem hér liggur fyrir, og sendir það heilbr.- og félmn. d. með ósk um, að hún flytji þetta mál. Það verður auðvitað að teljast eðlilegur hlutur, að þessi hundaskattur sé ákveðinn það hár, að hann standi undir hundahreinsuninni, svo að það þurfi ekki að taka fé úr sýslusjóðunum til þess að standa undir þessu að nokkru leyti. Heilbr.- og félmn. varð því við þessari ósk heilbrmrn. og flytur þetta frv. Þar sem frv. þetta er, eins og áður greinir, flutt af n., þá er óþarft að vísa því til n., og ég vil því, herra forseti, leyfa mér að leggja til, að því verði að lokinni þessari umr. vísað til 2. umr.