16.12.1964
Neðri deild: 29. fundur, 85. löggjafarþing.
Sjá dálk 169 í B-deild Alþingistíðinda. (184)
91. mál, ríkisreikningurinn 1963
Frsm. minni hl. (Skúli Guðmundsson):
Herra forseti. Hæstv. ráðh. las hér upp úr aths. yfirskoðunarmanna við ríkisreikninginn 1962 viðkomandi Reykjanesbraut. En hæstv. ráðh. sleppti að lesa niðurlag þessarar aths. Í niðurlagi þeirrar aths. um ríkisreikninginn fyrir 1962 sögðu yfirskoðunarmenn, að kostnað við framkvæmd verksins, þ.e.a.s. lagningu Reykjanesbrautar, hefði átt að færa á reikning ríkisins og vegamálanna á 13. gr. Hæstv. ráðh. sleppti þessu. Og eftir þessum fyrirmælum þeirra var ekki farið í rn., og brtt. okkar í minni hl. er um það, að þetta verði gert. Það er því ekki rétt, sem hæstv. ráðh. sagði, og hafði eftir einhverjum starfsmönnum í rn. eða ríkisendurskoðanda, að það hafi verið fylgt þeirri aðferð, sem yfirskoðunarmenn gerðu till. um. Það er ekki rétt.
Hæstv. ráðh. segir, að lagningu Reykjanesbrautar sé ekki lokið og þess vegna hafi ekki átt að færa kostnað við það verk með gjöldum ríkisins á árinu. En við vitum það, að lagningu einstakra vega hér á landi er yfirleitt ekki lokið á 1—2 árum. Það er áframhaldandi verk við þessar vegagerðir, og það hefur aldrei verið gert áður að sleppa því að færa þennan vegagerðarkostnað á rekstrarreikning ríkisins, þar til vegagerðinni við einstaka vegi væri að fullu lokið. Það er nýlunda að taka upp slíkan hátt. Auðvitað átti að færa þennan kostnað með öðrum vegagerðarkostnaði á 13. gr. ríkisreikningsins, eins og yfirskoðunarmenn sögðu í fyrra. Auðvitað átti að gera það. Hitt er fjarstæða, að telja þennan veg með ríkiseignum. Það hefur aldrei verið gert að telja þjóðvegi með ríkiseignum á efnahagsreikningi og fær ekki staðizt.
Um endurskoðunina hjá fjmrn. hefur staðið ágreiningur undanfarandi og er enn. Við teljum, að það eigi að bíða með það að afgreiða ríkisreikninginn endanlega, þar til þessari endurskoðun er lokið. Samþykkt frv. um samþykkt á ríkisreikningi er nokkurs konar kvittun, sem Alþingi lætur ríkisstj. í té fyrir reikningsskilin, og þá kvittun á ekki að láta, fyrr en endurskoðun er að fullu lokið. Það er í samræmi við það, sem alls staðar tíðkast, þar sem um reikningsuppgjör er að ræða, að reikningsskil eru ekki endanlega afgreidd fyrr en reikningar hafa verið endurskoðaðir. Þessari reglu ætti að fylgja vitanlega við þetta stærsta fyrirtæki þjóðarinnar, ríkisbúskapinn. Þannig ætti þetta að vera. Og því er það, að við leggjum til, að nú verði frestað afgreiðslu málsins, og við leggjum að sjálfsögðu áherzlu á, eins og ég hef áður sagt, að okkar brtt. verði samþykktar, því að verði það ekki gert, er reikningurinn rangur, og verði það ekki gert, er ekki farið eftir fyrirmælum yfirendurskoðunarmanna, sem þeir gáfu í aths. við ríkisreikninginn fyrir 1962.