29.04.1965
Neðri deild: 75. fundur, 85. löggjafarþing.
Sjá dálk 1981 í B-deild Alþingistíðinda. (1848)

165. mál, hundahald og varnir gegn sullaveiki

Frsm. (Ágúst Þorvaldsson):

Herra forseti. Þetta frv., sem er á þskj. 373, var lagt fram upphaflega í Ed. og flutt af heilbr.- og félmn. þeirrar hv. d. Aðalefnisinnihald frv. er það, að hundaskattur er hækkaður úr 15 kr., sem hann var áður, í 30 kr. Ég hefði nú talið og lét þess getið í n., þegar málið var þar til meðferðar, að það hefði verið eðlilegra, að þessi skattur væri reglugerðarákvæði og væri ákveðinn af ráðh. með reglugerð, heldur en hafa þetta bundið í lögum, því að eins og allir vita, er verðgildi peninga mjög óvisst og stendur ekki í stað og síðan upphaflega var gerð samþykkt í sýslunefnd Austur-Húnavatnssýslu um þetta mál árið 1963, hefur komið í ljós, að þessi skattur, sem ákveðinn er með frv., muni ekki nægja til þess, sem hann er ætlaður og sveitarfélögin verði áfram eins og hingað til að bera nokkurn hluta kostnaðarins. Hins vegar vildum við í n. ekki tefja málið, þar sem nú er liðið að þinglokum og nál. heilbr.- og félmn. er á þskj. 530, þar sem einróma er samþ. að mæla með samþykkt frv.