05.04.1965
Neðri deild: 63. fundur, 85. löggjafarþing.
Sjá dálk 1983 í B-deild Alþingistíðinda. (1855)
156. mál, sala dýralæknisbústaðar í Borgarnesi
Hannibal Valdimarsson:
Herra forseti. N. hafði verið beðin að flytja þetta frv. og er efni þess það að staðfesta þegar gerðan hlut. Það mun hafa legið erindi fyrir hv. fjvn. í upphafi þingsins um þetta mál og þá hafa verið ákveðin kaup á húsi í Borgarnesi, sem vera skyldi bústaður fyrir dýralækninn þar. Síðan er þarna farið fram á að selja gamla dýralæknisbústaðinn og mun áður einnig hafa verið búið að auglýsa eftir kaupanda að honum og n. tilkynnt, að fáanlegur væri kaupandi að honum fyrir 600–650 þús. kr., en hitt húsið mun hafa verið keypt fyrir 11/2 millj. kr., eftir því sem okkur nm. var tjáð. Þarna er því verið að gefa 900 þús. kr. á milli hins gamla dýralæknisbústaðar og hins nýja, og ég sé ekki annað en það hljóti að byggjast á því, að það séu meir en nógir peningar í ríkissjóði. 900 þús. kr. eru þarna gefnar á milli og er þó gamla húsið talíð seljanlegt fyrir 600 þús. kr. og virðist því hafa verið íbúðarfært. Ég sá hins vegar enga möguleika á því að koma í veg fyrir þessa sölu, því að hún hafði þegar verið ákveðin að öllu leyti og frv. er sem sé flutt til þess að fá heimildir fyrir þegar afgreiddum málum. Ég taldi rétt, úr því að þessi vitneskja fékkst til handa nm., að hv. þm. fengju einnig um það að vita.