05.05.1965
Neðri deild: 82. fundur, 85. löggjafarþing.
Sjá dálk 1989 í B-deild Alþingistíðinda. (1880)

160. mál, atvinna við siglingar á íslenskum skipum

Sigurður Jóhannesson:

Herra forseti. Ég vil leyfa mér að gera í nokkrum orðum grein fyrir afstöðu minni, þeirri afstöðu að skrifa ekki undir álít sjútvn. í þessu máli.

Það er skoðun mín, að þetta mál verði að leysa í sambandi við heildarendurskoðun á lögum um siglingar, endurskoðun, sem framkvæmd sé af fulltrúum samtaka sjómanna og útgerðarmanna í n., sem ráðh. skipar, en ekki með lagabreytingu hér á Alþ. samkv. beiðni eins aðila.