05.05.1965
Neðri deild: 82. fundur, 85. löggjafarþing.
Sjá dálk 1989 í B-deild Alþingistíðinda. (1881)

160. mál, atvinna við siglingar á íslenskum skipum

Lúðvík Jósefsson:

Herra forseti. Eins og fram kemur í nál. sjútvn., vildi svo til, að ég gat ekki mætt á fundi n., þegar málið var afgreitt og afstaða mín kemur því ekki fram til málsins í grg. n. En afstaða mín er sú, að ég er andvígur þessu frv. Ég tel mjög varhugavert að fara inn á þá braut, sem hér er lagt til að farin verði og vil sérstaklega benda á það, að hér er um að ræða farþegaskip, sem flytur mikið af farþegum og það eru til fleiri farþegaskip í landinu, sem alveg tvímælalaust mundu koma á eftir. Það hafa verið ákvæði í lögum um fjölda skipstjórnarmanna og þótt alveg sérstök ástæða til þess að vera nokkuð strangir þar varðandi reglur fyrir farþegaskip, og að mínum dómi er það hinn mesti þvættingur að tala um það, að á þessari siglingaleið eigi að gilda einhver sérstök undantekning. Ýmsir aðrir bátar, sem eru reknir annars staðar, hafa miklu meira fram að færa, heldur en það skip, sem siglir á þessari leið. Ég álít því, að það eigi að fara mjög gætilega í þetta, enda kemur það fram, að það stéttarfélag, sem hér á hlut að máli, Farmanna- og fiskimannasambandið, mælir alveg eindregið gegn breytingunni og segir, að grg., sem fylgir frv. í sambandi við vinnuaðstöðu, sé hreinasti þvættingur, sem samtökin lýsa undrun sinni yfir, að skuli koma fram í plaggi, sem lagt er fram hér á Alþingi.

Í stuttu máli er skoðun mín sú, að það eigi ekki að samþykkja frv. eins og þetta. Ég held, að það megi ekki slaka til á öllum öryggisákvæðum varðandi farþegaskip svipuðum og þessu og menn verði að gera sér grein fyrir því, að ef eigi að verða breytingar á reglum sem þessum, verði þær að vera almenns eðlis. En það er ekkert sérmál fyrir eitt skip eins og þetta og ég er ekki a.m.k. tilbúinn til þess fyrir mitt leyti að fallast á það að gera þetta að almennri reglu.