18.12.1964
Efri deild: 33. fundur, 85. löggjafarþing.
Sjá dálk 173 í B-deild Alþingistíðinda. (192)

91. mál, ríkisreikningurinn 1963

Björn Jónsson:

Herra forseti. Ég hef ekki séð mér fært að taka þátt í afgreiðslu þessa máls, eins og hún hefur verið hjá hv. fjhn., og ég get í því efni sagt í raun og veru nákvæmlega það sama og hv. ræðumaður, sem talaði hér á undan mér, um ástæðurnar. Í gær, eftir að þessu frv. hafði verið vísað til n., var ég staddur á öðrum fundi hér í húsinu, en skilaboð komu til mín, að formaður fjhn. bæði mig að finna sig í stigaherbergið. Það gerði ég, og það var þá settur fundur í fjhn. til að afgreiða þetta mál. Ég hafði í fyrsta lagi alls ekki tök á að sitja á fundinum og í öðru lagi taldi útilokað, að hægt væri að afgreiða málið með sómasamlegum hætti á örfáum mínútum, því að ég hafði ekki þá kynnt mér þetta mál neitt og hef ekki gert það enn þá. Ég tel, að mér hafi ekki borið skylda til þess að vera búinn að pæla í gegnum þetta frv., sem er mikið verk, ef það á að gerast þannig, að maður sé í raun og veru fær um að taka nokkra afstöðu til þess, — mér hafi ekki borið skylda til þess, fyrr en málinu var vísað til n., en það var sem sagt gert á samri stundu og fundur var kallaður saman og þess krafizt, að við tækjum þá þegar afstöðu til þess. Ég sagðist ekki taka þátt í slíkri afgreiðslu á málinu. Og sú afstaða mín er óbreytt. Ég hef ekki haft tækifæri til þess að athuga neitt það, sem ég vil kalla stórfelldar aðfinnslur, sem fram hafa komið í neðri deild hjá minni hl. fjhn. þar, þar sem m.a. er talið, að stórlega séu rangfærðar bæði tekjur og eignir ríkissjóðs og einnig skuldir, og þar að auki hafðar uppi miklar aths. um sjálfa endurskoðunina. Nú rétt á stundinni, þegar ég var að líta á þetta, sá ég m.a., að frá því er skýrt, að ástandið í þessu efni, þ.e.a.s. varðandi endurskoðunina, væri engan veginn gott og hefur því miður gengið í öfuga átt við það, sem yfirskoðunarmenn hafa gert sér vonir um og gert ráð fyrir að undanförnu. Þetta er umsögn yfirskoðunarmanna um það, hvernig endurskoðun á reikningunum sé háttað. Ég tel, að bæði í þessu og eins eftir þeim ásökunum, sem komu að öðru leyti fram frá minni hl. fjhn. í Nd., sé þetta mál allt þannig vaxið, að við, sem ætlað er að taka afstöðu til málsins, hljótum að krefjast þess að fá eitthvert tóm til þess. Ég hef verið með í því hér í hv. fjhn. í þessari d. að gera mjög miklar breytingar á ríkisreikningnum, áður en hann hefur verið samþ., en ég er alls ekki viss um það, að eftir að þetta frv. hefði verið athugað, væri þörf á því að gera það. Ég skal ekkert um það fullyrða. Mér hefur ekki gefizt tækifæri til að rannsaka það mál, þannig að ég geti tekið neina afstöðu til þess. Og ég kalla það furðulega ósvífni af hæstv. fjmrh., sem áreiðanlega stendur fyrir því, að slíks og annars eins er krafizt af okkur þm., að við tökum afstöðu til mála án þess að hafa tækifæri til að kynna okkur þau. Það er algert lágmark, sem við hljótum að krefjast, og vissulega ætti sú krafa einnig að vera krafa þeirra, sem nú skipa stjórnarflokkana.

Það má vel vera, að það sé rétt hjá hv. 6. þm. Norðurl. e., að það sé lofsvert, að hægt sé að afgreiða ríkisreikninginn, áður en ár er liðið frá reikningslokum þess fjárlagaárs, sem um er að ræða. Ég skal ekkert um það dæma. Það má vel vera, að þetta sé sérstaklega lofsvert, en því aðeins getur það verið lofsvert, að málsmeðferðin sé með sómasamlegum hætti, en á það tel ég mjög skorta. En gæti þá ekki það eins verið tilefni til þess fyrir hæstv. fjmrh. og aðra talsmenn hæstv. ríkisstj. að gæta að því, að nýr háttur hefur verið tekinn upp að öðru leyti í sambandi við afgreiðslu ríkisreiknings, þ.e.a.s., að hann væri þvingaður í gegn með meirihlutavaldi hér á hv. Alþingi, því að ég hygg, að það hafi allajafna getað orðið samkomulag um jafnsjálfsagða hluti. En jafnvel því ætlar hæstv. ríkisstj. að spilla.