08.05.1965
Neðri deild: 85. fundur, 85. löggjafarþing.
Sjá dálk 2003 í B-deild Alþingistíðinda. (1930)

178. mál, eyðing svartbaks

Björn Pálsson:

Herra forseti. Það eru aðeins örfá orð. — Lögin um eyðingu svartbaks, sem voru eða eru nú enn í gildi raunar, þau eru nokkurn veginn eins vitlaus og þau geta verið. Verðlaunin fyrir að eyða svartbak er sem svarar fyrir skotinu, þannig að menn hafa ekkert fyrir erfiði sitt eða byssuleigu og svo fá þeir ekkert fyrir að drepa ungana. Ef einhver hagsýni væri við þetta, þá ætti að verðlauna það að taka ungana, en menn hafa ekki nennt að vera að elta þessa unga, meðan þeir eru ófleygir, þeir fá ekkert fyrir það. Ég veit það, að í minni sýslu, var mér sagt, komu þeir með einhvern skanka af unga og vildu fá eitthvað fyrir það og fengu ekki neitt og þá geta menn ekkert verið að erfiða við það. En auðvitað er það það, sem eyðir svartbaknum kostnaðarminnst, það er að hirða ungana, meðan þeir eru ófleygir.

Við vitum það, að svartbakurinn gerir ekkert gagn, en mikið illt af sér. Nú var það bannað með lögum að eitra, en hann drapst talsvert af eitri. Þegar hætt var að eitra og enginn fékk neitt fyrir af kála ungunum, þá auðvitað fjölgaði svartbaknum ákaflega ört.

Ég álít, að þetta frv. sé millistig á milli þess, sem viturlegt er og þess, sem vitlausast er, þannig að nú ætlar ríkið að taka í sínar hendur eða í hendur veiðistjóra sennilega, að sjá um það að reyna að eyða svartbaknum. En menn eiga ekkert að fá fyrir að ná í unga, eða það eru engin verðlaun fyrir það eða ekki neitt fyrir það, þannig að þetta er nokkurs konar millistig. Ef það ætti að vera eitthvert vit í þessu frv., þá á eðlilega að borga mönnum sæmilega þóknun fyrir að skila væng af unga, ófleygum unga og þá þyrfti ríkið engu öðru fé að eyða í þetta.

En þessi lög eru skárri en þau lög, sem nú eru í gildi, — þessi lög, sem við erum með núna, — þannig að ég vildi ekki tefja frv. eða spilla því, að það kæmist fram, því að það er þó betra, en þau lög, sem nú eru. En ef við vildum nota einhverja hagsýni viðvíkjandi þessu atriði, þá á bara að borga mönnum hæfilega þóknun fyrir að ná í ungana, meðan þeir eru ófleygir og þá þarf ríkið ekkert að skipta sér af þessu.

En annars er nú lítið hugsað um sparnað. Þetta er hliðstætt ýmsu öðru í okkar þjóðfélagi. Það væri hægt að reka þjóðarbúið af miklu meiri hagsýni, en gert er. En þetta er bara eitt smáatriði. Sennilega kostar þetta svona hálfa eða heila milljón. En það get ég ómögulega skilið, að það sé hagkvæmara að senda veiðistjóra með bíla og byssur og marga aðstoðarmenn til þess að ná í ungana með ærnum kostnaði, heldur en að láta viðkomandi aðila, þar sem svartbakurinn verpir, því að hann verpir nú yfirleitt þar sem sandar eru og á vissum stöðum í hverju héraði, — heldur en láta þá hafa eðlilega þóknun fyrir að hirða þessa unga, þegar þeir eru ófleygir.

Ég vildi aðeins benda á þetta. Ég held, að ég greiði atkvæði með þessu eftir atvikum. Það er betra, en þau lög, sem nú eru í gildi, en langt frá því að vera gott. En ég sé ekki, að það þýði að vera að gera brtt. eða ágreining um þetta mál, eins og sakir standa. Þetta er bara eitt af þeim atriðum, sem hægt er að framkvæma af meiri hagsýni, en lítur út fyrir, að eigi að gera.